Vikan - 10.02.1983, Side 10
— Trúður. Hárið er gert úr krep-
pappír. Klippið þrjú lög, 15x40 cm.
Leggið þau saman og brjótið síðan
saman um mjórri endann, heftið
saman miðjuna á ræmunni sem þá
myndast. Það verður skiptingin í
hárinu. Klippið því næst i átt að
skiptingunni. Skellið þessu á
höfuðið og hattinum yfir til þess að
halda hárinu á sinum stað. Skyrtu-
brjóst og flibbi eru klippt úr stífum
hvítum pappa (sjá teikningar).
Buxurnar eru hér sérsaumaðar (sjá
teikningu). Teygja er sett í mittið og
að neðan. En það er tilvalið að nota
gamlar víðar buxur og klippa þær til.
— Leðurblökumaðurinn. Hettan
með eyrunum er sniðin samkvæmt
teikningu. Notið filtefni, það sparar
vinnu við að falda. Skikkjan er snið-
in úr sams konar efni, breidd (sidd)
48 cm, lengd (vidd) mest 90 cm.
Rykkið í hálsinn og tyllið við hett-
una. Hettan er fest saman að
framan með Velcro-böndum (renni-
lásaböndum). Blár leikfimibolur,
svartar sokkabuxur og leðurblöku-
merkið er úr gulu filti.
— Sjóræninginn skýrir sig sjálfur.
Hatturinn var keyptur í leikfanga-
verslun. Leppurinn getur verið úr
svörtu leðurlíki eða filti. Hringirnir
eru stórir gardinuhringir og
saumaðir neðan i klútinn.
— Blómálfurinn er í bleikum nær-
bol og hvitum sokkabuxum. Pilsið
er saumað úr nælon-netefni. Hár-
skrautið er jólaskraut. Vængirnir
eru klipptir úr pappa (sjá
teikningu).
— Rauðhetta er með rauða hettu
úr filtefni, 75 x 90 cm, og í kjól. Karf-
an er ómissandi.
— Aðrar hugmyndir. IVIeð
svörtum bol, sokkabuxum, hettu
og eyrum (sjá leðurblökumanninn)
má útbúa kattarbúning. Málið
síðan andlitið og útbúið rófu eftir
teikningu. Á sama hátt má útbúa
bangsa, hund og fleira. Randaflugu
má útbúa á sama hátt nema sleppa
hettunni og eyrunum, sauma gular
rendur á bolinn þveran og útbúa
fálmara eftir teikningu. Sjónvarp er
búið til þannig að klippt er gat
(skermur) úr hæfilega stórum
pappakassa. Takkar úr gosflösku-
töppum limdir á. Ef vill má útbúa
loftnet úr tré- eða jámstöfum sem
standa upp úr á ská. Chaplin er ein-
faldur. Skellið ykkur i gömul svört
jakkaföt, setjið á ykkur kúluhatt og
málið yfirskeggið ómissandi. Stóra
slitna skó má ekki vanta.
Grímuböll og grimubúningar
hafa tíökast hér á landi í
langan tíma. Til gamans
birtast hér til hægri nokkrar
myndir sem fundust i fjöl-
skyldualbúmi. Myndin af spá-
kerlingunni og sú af stúlkun-
um þremur er frá því á öðmm
tug þessarar aldar en myndin
af taflmönnunum er frá sjötta
áratugnum. Síðastnefndu
búningamir fengu verðlaun.
I *öujtiöicurt\trlci S
o
Teikningamar sem vísað er til
í textanum.
IOVikan 6. tbl.