Vikan - 10.02.1983, Qupperneq 39
■
kistubotninum, hann fékk hana
og fór heim með hana. Þegar
hann var kominn í hana leit
hann varkárum augum út í eld-
hús þar sem Mary Ann, kona
hans, stóð snöktandi í sínu fín-
asta pússi.
— Drífum okkur þá af stað,
sagði hann. Honum tókst að
drösla Mary Ann inn í Fordinn
og svo skjöktu þau af stað áleiðis
til litlu timburkirkjunnar í Black
Fork. Mary Ann tuðaði eitthvað
um að Silas hefði nú getað farið
í sparibuxurnar sínar en hann
staðhæfði að blái samfestingur-
inn hans væri alveg nógu góður
fyrir þessa jarðarför og það orð
sem fór af tengdamóður hans —
að hún væri argasta skessa á öllu
svæðinu frá Phelps Kearney tii
Lambs Cliffs — svo það kæmu
tæpast aðrir en þau og prestur-
inn.
En hann hafði alrangt fyrir sér.
Þegar hann ók upp að litlu kirkj-
unni sá hann líkfylgd sem var svo
löng að sjaldan ef nokkurn tíma
hafði annað eins sést í Black
Fork. Þarna voru Josh bóndi,
Mose bóndi, Zeke bóndi, Seth
bóndi, Ephraim gamli bóndi og
bændur úr öllum dalnum.
— Þetta er enginn smáræðis
fólksfjöldi, sagði Mary Ann og
lifnaði öll við. Það höfðu þá þeg-
ar allt kom til alls ýmsir metið
móður hennar að verðleikum.
— Holy Smoke! tautaði Silas
bóndi og klóraði sér í hnakkan-
um.
Hann skildi hvorki upp né
niður í þessu öllu. Hér hlaut eitt-
hvað að búa undir. Josh bóndi,
Zeke bóndi og Ephraim gamli
bóndi voru ekki í hópi þeirra sem
sóttu kirkju í tíma og ótíma og
jarðarfarir voru þeir ekki við
nema brýnustu nauðsyn bæri til.
Það var þá helst að þeir yrðu við
sína eigin.
Nú kom presturinn, sagði
nokkur vel valin orð yfir Söru og
notaði tækifærið til að fara
nokkrum orðum um óguðleik
bændanna í dalnum, svona al-
mennt. Síðan var Söru holað nið-
ur, sálmur sunginn — og þá var
allt búið.
— Þú verður að standa upp og
þakka líkfylgdinni, hvíslaði Mary
Ann og þá stóð Silas bóndi upp í
fallega bláa samfestingnum sín-
um og sagði að allt þetta ágæta
Þýðandi: Anna
fólk ætti þakkir skildar fyrir að
hafa komið, svona margt. Þá
rumdi í Zeke bónda og hann
spurði hvort það væri rétt að
múlasninn hans Silasar hefði
sparkað svo útundan sér að Sara
gamla hefði dáið. Silas kinkaði
kolli og Zeke leit varlega á Mary
Ann sem enn var snöktandi en
reyndar lögð af stað að gamla
Fordinum. Zeke dró Silas bónda
ögn nær og sagði í hálfum hljóð-
um:
— Þú skilur, kæri Silas minn,
að ég og allt þetta indæla fólk,
sem hér er saman komið, á líka
tengdamóður. . . . og við kom-
um nú eiginlega til að bjóða í
múldýrið!
Skop
Manstu eftir stráklingnum sem
ég róð í vinnu i fyrra? Hann
sagði mór upp i dag.
Manstu eftir þessu óþolandi
glotti sem hann gekk með áður
en óg giftist honum?
Bíltæki á tombólu verði
AUDIOLINE
HARRY MOSS 33510 w KR. 2.830,-
Útvarps- og kassettutæki
með LW/MW, hraðspólun
áfram, sjátfkrafi stöðvun
á tækinu við enda á
kassettu o.fl.
Heildsala — Smása/a
HARRY MOSS 336 10 w KR. 3.560,-
Útvarps- og kassettutæki
með FM stereo, LW og
MW, hraðspólun áfram,
sjálfkrafa stöðvun á
tækinu við enda á
kassettu, Ijós fyrir
útvarp /kassettu o.fl.
AUDIOLINE
Henta sérstaklega fyrír SUBARU þar sem kassetta er tekin út að
neðan. Ennfremur eigum við fyriríiggjandi 10 aðrar gerðir af bíi-
tækjum með og án kassettu + kraftmagnara með og án equaliser
40 gerðir af hátölurum. SÉ ALLT \ bílinn keypt hjá okkur
VEITUM VIO 15% ÍSETNINGARAFSLÁTT
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN
Síðumúla 2 — Sími 39090
6. tbl. Vikan 39