Vikan - 18.08.1983, Page 3
Hver röndótturl
TÍW11*??
Hver er það sem ákveöur hvað ttm-
inn er dýrmœtur? Kannski fara þeir
að taka hann inn í vísitöluna.
ýlega rak á fjörur blaðsins athyglis-
verða bók — PLAIN JANE WORKS OUT.
Plain Jane er röndótt eins og nafna hennar
Fonda og gerir æfingarnar jafnlipurt og létt —
eða sýnist ekki svo?
I bókinni eru kaflar um gildi líkamsræktar,
um næringarfræði, megrun og rétt mataræði
og heppilegar æfingar sem hægt er að iðka
næstum hvar sem er til dæmis í eldhúsinu,
kjörbúðinni og víðar. Athyglisverð bók til að
lesa uppi í sófa á fallegu sumarkvöldi þegar
maður ætti helst að vera á skokki uppi í Öskju-
hlíð.
iÍtóí»U
SKOP
Flestar myndirnar sem sýndar
eru sem miðnæturmyndir í sjón-
varpinu eru orðnar svo gamlar að
þær ættu alls ekki að vera í gangi
svona seint um kvöld.
Þar var komið sögu í kvikmynd-
inni að kvenhetjan stóð í
kjallaranum, bundin og kefluð, og
umhverfis hana hækkaði vatns-
borðið stöðugt. Þá heyrist
stundarhátt úr salnum:
— Hvernig ætli það gangi
annars hjá barnapíunni
okkar...?
Strútur nokkur fann filmuhylki
og gleypti umsvifalaust.
— Hvemig var það? spurði
næsti strútur.
— Mér fannst nú bókin betri,
sagði strúturinn þurrlega.
Þekktur leikari hitti vin sinn og
kynnti hann fyrir nýjustu konunni
sinni.
— Því miður get ég ekki óskað
vini mínum til hamingju með þig,
sagði vinurinn við konuna, þar eð
ég þekki þig ekki. Og því miður
get ég ekki óskað þér til hamingju
heldur, því HANN þekki ég.
Þessi auglýsingamynd utan á
byggingu einhvers staðar í Bret-
landi hljómaði svona: endur-
VEKID ÁHUGA HANS Á TRÉ-
smíði. Einhver hugmyndaríkur
bætti fyrir neðan: sagið af hon-
UM HAUSINN.
33. tbl. Vikan 3