Vikan - 18.08.1983, Blaðsíða 30
Peningamaskínan
P
o
c
£
UM FERIL EINNAR
fflSSSSS" he.ms
Hljómsveitin Police gaf nýlega
út fimmtu LP-plötu sína sem
nefnist Synchronicity. Platan hef-
ur fengiö mjög góöa dóma bæði
vestan hafs og austan. Lag af
henni, Every breath you take, hef-
ur orðiö mjög vinsælt. Sagt er aö
Sting hafi samiö það um fyrrver-
andi konu sína, leikkonuna
Frances Tomelty. Ferill hljóm-
sveitarinnar hefur veriö mjög
glæsilegur. Hún hefur átt 5 lög í 1.
sæti breska vinsældalistans og er
ein af örfáum hljómsveitum sem
hefur náð því marki. Undanfarið
hefur hljómsveitin einnig náö
miklum vinsældum í Bandaríkjun-
um og var sú fyrsta af þeim sem
Bandaríkjamenn kalla nýjar
hljómsveitir til að ná því.
I kjölfar Police hafa síöan kom-
ið hljómsveitir eins og Go Go’s,
Stray Cats og ekki síst Men at
Work. Men at Work minnir mjög á
Police, en hinar hljómsveitirnar
flytja rokk eða rokkabilli. Police
ruddi sem sagt veginn fyrir nýja
tegund tónlistar á Bandaríkja-
markaði.
Saga Police hefst árið 1978 þeg-
ar hún gaf út stóru plötuna Out-
landos d’Amour. Sú plata kostaöi
mjög lítið í vinnslu og þegar upp
var staðið hafði hún halað inn
margar milljónir punda. Platan
kom út í september 1978 og henni
fylgdi smáskífan Roxanne. Hún
vakti nokkra athygli, en stóra
platan seldist lítið í fyrstu.
Skömmu síöar ákvað hljómsveitin
aö fara í hljómleikaferðalag um
Bandaríkin, andstætt ráðum
hljómplötufyrirtækisins sem þeir
voru ráðnir hjá. Hljómleikaferðin
gekk mjög vel og Rozanne varð
vinsæl í Bandaríkjunum, komst
inn á topp 30. Eftir þaö fór aö
vakna áhugi í Bretlandi og Out-
landos d’Amour var endurútgef-
in. 1 ágúst 1979 komst lag af þeirri
plötu, Can’t stand losing you, inn á
eitt af fimm efstu sætum breska
vinsældalistans.
Um sama leyti var kvikmyndin
Quadrophenia frumsýnd í London.
Sting, söngvari Police, lék þar eitt
af aðalhlutverkunum. Þetta stuöl-
aði enn frekar að því að fólk veitti
hljómsveitinni athygli og þegar
smáskífan Message in á Bottle
kom út um miðjan september ’79
fékk hún rífandi móttökur, fór
beint í fyrsta sæti vinsældalistans.
Stóra platan, Regatta de Blanc,
fór sömu leið í byrjun október og á
meöan hún var í fyrsta sæti var
Outlandos d’Amour í 9. sæti.
Police haföi fest sig í sessi sem
stórhljómsveit.
ÁFRAMHALDAIMDI
SIGURGANGA
1 desember 1979 fór ný smá-
skífa hljómsveitarinnar enn beint
í fyrsta sætið. Þaö var Walking on
the Moon. Regatta de Blanc sat
sem fastast inni á topp fimm og
hreyföi sig ekki þaðan fyrr en eftir
áramótin, hafði setið þar í þrjá
mánuði samfleytt.
Rokksagan greinir frá fáum
slíkum afrekum. Police kom fram
meö frábært efni nákvæmlega á
þeim tíma þegar þess þurfti.
Hljómsveitin var sérstæð og féll
ekki inn í neina flokkun. Það var
vegna þessa og einnig vegna
persónulegra vinsælda söngvar-
ans að hljómsveitin náöi þessum
árangri. Kvikmyndaleikur Stings
og vinsældir hljómsveitarinnar
héldust í hendur og studdu hvort
annað. Á einu ári höfðu hljóm-
sveitarmeðlimir risið úr því að
vera nokkurn veginn óþekktir og
til þess að vera þjóðhetjur í Bret-
landi.
Fyrri hluta ársins 1980 fór
hljómsveitin í heimsreisu. Hún
heimsótti hina ólíklegustu staði,
spilaði fyrir 50 manns í Hong
Kong, fyrir 3500 manns í Indlandi
þar sem engin rokkhljómsveit
hafði komið áöur og fór svo til
Aþenu og hélt þar fyrsta konsert-
inn sem haldinn hafði verið síöan
Rolling Stones voru þar 1967.
I september 1980 komu litla
platan Don’t stand so close to me
og LP-platan Zenyatta Mondatta
út. Þær fóru báðar beint í fyrsta
sæti í Bretlandi og inn á topp tíu í
Bandaríkjunum sem hingað til
hafði ekki verið stór markaður
fyrir Police. Á eftir fylgdi hljóm-
leikaferðalag til allra heims-
horna, Norður- og Suður-Ameríku,
Ástralíu, Japan, Nýja-Sjálands og
Evrópu. Á árinu 1981 tók hljóm-
sveitin það rólega framan af, fór í
frí aö mestu, en tók svo til viö aö
hljóörita fjórðu LP-plötuna, Ghost
in the Maschine. Það brást ekki,
hún fór beint í 1. sætið í október ’81
og á eftir kom smáskífan Every
little thing she does, sem fór sömu
leið. Síðan hefur hljómsveitin tek-
iö sér hvíld þar til nú aö
Synchronicity kemur út og nær
sömu vinsældum og allar hinar
plöturnar.
PENINGAMASKÍNA
Eins og ljóst má vera er hljóm-
sveitin Police einhver allra örugg-
asta peningamaskína sem hljóm-
plötuiðnaðurinn hefur nokkurn
tímann fengiö upp í hendurnar.
Frá sjónarmiði iðnaðarins er
þetta frábær hljómsveit. Hljóm-
sveitin er ein af fáum eftir 1977
sem tekist hefur að halda stöðugri
sölu um allan heim ár eftir ár.
Spurningin er hins vegar hvers
vegna? Svarið liggur ekki í augum
uppi því hljómsveitin er hvorki
sérlega frumleg né sérstaklega
glæsileg. Sting er að vísu mikil
stjarna og kvikmyndirnar sem
hann hefur leikið í hafa hjálpað
hljómsveitinni mikið.
Tónlist hljómsveitarinnar var í
fyrstu hvítt reggae, popp-reggae
flutt á mjög aðgengilegan hátt.
Síðar breyttist það og nú er tónlist-
in nærri eingöngu popp/rokktón-
list, en heldur sem fyrr aögengi-
leika sínum. Svarið við því hvers
vegna hljómsveitin hefur haldið
vinsældum sínum í sviptingum
undangenginna ára felst líklega í
því hve óháð hún hefur verið þess-
um tískubylgjum og því hve auð-
veldlega hún hefur getað sent frá
sér straum af aðgengilegum popp-
lögum. Að þessu leyti líkist Police
ABBA.
í júlí fór hljómsveitin í hljóm-
leikaferðalag til að fylgja nýju
plötunni eftir. Það ferðalag
stendur fram í september og
síöar er áætluð önnur ferð. Sam-
hliða hljómleikaferðalaginu mun
Sting leika í nýrri kvikmynd sem
gerö er eftir hinni frægu vísinda-
skáldsögu Frank Herberts, Dune.
Stewart Copeland gítarleikari
mun semja tónlist við nýja kvik-
mynd Coppola, Rumblefish. Andy
Summers gefur út bók með ljós-
myndum eftir sjálfan sig. Reiknað
er með að nýja platan seljist í allt
að þremur milljónum eintaka og
að eldri plötur hljómsveitarinnar
muni taka við sér í sölu, en þær
seljast mjög stöðugt, í 46000—
60000 eintökum á mánuöi. Búast
má við að velgengni Police iialdi
áfram, hún hefur fundiö pottþétta
formúlu og ætti að geta haldið
dampi í tvö—þrjú ár í viöbót.
Og látum við þá lokið að segja
frá Police að sinni.
30 Vikati 33. tbl.