Vikan - 18.08.1983, Blaðsíða 29
Vtn og vínmennt
stöðu til vínsins. Það geta allir
sem vilja og hafa áhuga.
Að kalla saman góðan vinahóp
og njóta saman góðs víns, eða
' hafa samanburðarsmakk, getur
orðið hin ágætasta samverustund
ef skapaðar em réttar aðstæður.
Litlu serímóníurnar, sem óhjá-
kvæmilega fylgja vínsmakki,
geta orðið hvati að skemmtilegri
stemmningu sem gefur samvem-
stundinni ómetanlegt gildi.
Ég hef oft á tíðum undrast það
umburðarlyndi sem íslenskir
neytendur sýna þegar Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins er ann-
ars vegar. Það em fáar verslanir
nú til dags sem ekki leggja
áherslu á það að kúnninn geti
skoðað þá vöm sem á boðstólum
er. Upplýsingar um vömna em
oftast auðfengnar, annaðhvort af
merkingum, sem henni fýlgja
eða frá sérfróðu afgreiðslufólki.
Við þurfum ekki að líta lengra en
í næstu matvöruverslun til að sjá
dæmi um slíkt. Meðvitund ís-
lendinga um gæði neysluvara
hefur verið vakin undanfarin ár,
t.d. með virkum neytendasam-
tökum og auknu vömframboði,
en áfengisútsölurnar virðast hafa
orðið útundan hvað þetta varðar.
Þó vil ég ekki kasta rýrð á af-
greiðslumenn þessara verslana.
Þeir em í langflestum tilfellum
liprir og snarir í snúningum, en
það er greinilegt að þeir hafa
ekki fengið ítarlega fræðslu um
þá vöm sem þeir afgreiða og þá á
ég sérstaklega við léttu vínin.
Það ætti að vera einfalt mál að
ÁTVR gefi reglulega út verðlista
með upplýsingum um þau vxn
sem fást í verslununum. Verðlist-
ar ÁTVR, sem reyndar em tor-
fengnir, em líkari lagerlistum en
upplýsingapésum.
Þeir sem em áhugamenn um
léttvín kannast sjálfsagt við hina
dapurlegu útstillingarskápa sem
em í verslunum ÁTVR. Þeir em
troðfylltir af flöskum, að því
marki að ekki er hægt að sjá
hvaða upplýsingar em á miðum
þeirra flaska sem innstar em og
oft er stillt út flöskum sem em
ekki lengur á boðstólum.
Svíar em okkur framar á þessu
sviði. í sænsku áfengisútsölunum
em rúmgóðir glerskápar sem
innihalda snyrtilegar raðir þeirra
vína sem þær selja. Hver vínteg-
und hefur númer svo að kúnninn
þarf ekki að reyna að bera fram
erfið, frönsk og þýsk vínheiti. Ég
er næstum viss um að þeir em
margir, íslensku kúnnarnir, sem
veigra sér við að biðja um Puilly
Fuissé, tali þeir ekki frönsku. I
því tilfelli getur lítið númer
komið að góðum notum auk þess
sem það getur verið afgreiðslu-
manninum til hagræðingar. í
þessum sænsku verslunum liggja
auk þess frammi pésar sem inni-
halda upplýsingar um vínin og
þar er tekið fram hvaðan vínin
koma, hverjir helstu eiginleikar
þeirra em og við hvaða fæðuteg-
undir þau eiga best. Það mætti
segja mér að þvílíkur pési yrði
einnig vel þeginn af íslenskum
vínáhugamönnum.
33. tbl. Vikan 29