Vikan


Vikan - 18.08.1983, Qupperneq 15

Vikan - 18.08.1983, Qupperneq 15
kvíðaköst. Foreldrar í skilnaöi eiga því oft erfitt með að taka tillit til þarfa barna vegna eigin vanlíðunar. Þá geta fjölskylda, ættingj- ar og vinir verið mikill stuöningur. Amma og afi, sem hafa tengst barninu frá byrjun og þekkja það vel, geta verið því mikilvæg á þessum tíma og sama á við föður- og móður- systkini sem geta fengið barniö til sín um tíma og geta þannig minnkað álag á foreldri en um leið gefið barninu góðar stundir þar sem það getur slakað á og gleymt áhyggjum sínum. Fóstrur og kennarar þurfa einnig að vita um breyttar aðstæður til að geta verið barn- inu til aðstoðar ef þaö verður órólegt og á erfitt meö að einbeita sér um tíma. Tengsl við báða foreldra eftir skilnað eru mikilvæg Innra með sér hefur barnið mynd af sjálfu sér sem persónu. Sú persóna er í djúpum tengslum viö báða foreldra. Þó foreldrar skilji og annað þeirra flytji að heiman breyt- ast tilfinningatengsl barnsins við það for- eldri ekki að sama skapi. Foreldriö er fyrir- mynd bamsins eftir sem áður. Þess vegna þarf barnið að geta umgengist það foreldri sem flytur eins oft og eðlilega og hægt er. Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á skilnað- arbörnum sýna aö þau börn sem samband hafa við báða foreldra eftir skilnaö eru mun fljótari að aölaga sig breyttum aðstæðum en hin sem ekki njóta umgengni við foreldrið sem flytur. En það er ekki sama hvernig um- gengnin fer fram. Samvinna miili foreldra um umgengni er oft ýmsum erfiðleikum háö. Fyrst og fremst er um það að ræða að foreldr- ar eru alls ekki búnir að gera upp sakirnar hvort við annaö og börnin verða auðveldlega bitbein þegar svo er. Oft geta foreldrar ekki stillt sig um að spyrja barnið spjörunum úr þegar það kemur úr heimsókn. Það vill t.d. vita hvernig var hjá pabba, hvort einhverjir komu í heimsókn, hvert þau fóru. Það foreldri sem hefur forræði barns vill oft hafa áhrif á hvernig heimsóknin verður og hverja barniö heimsækir. Alverst er þó þegar foreldrar tala illa um eða fordæma hvort annað í eyru barns og blanda því í skilnaöaruppgjörið. Barnið finnur þá hvernig togað er í það. Það getur ekki veriö báðum foreldrum til hæfis þegar þeir eru í innbyrðis stríði og það finnur þetta stríð í sjálfu sér því það er einmitt órjúfanlegur hluti af þessum báöum foreldr- um. Samvinna foreldra Þeim tíma sem er varið til að reyna aö koma á samvinnu er vel varið. Foreldrar halda áfram að vera foreldrar barna sinna þó svo að þeir skilji. Það eru ótal atvik og at- burðir í lífi barns þar sem því er mikilvægt aö foreldrar þess báðir samfagni því eða hugsi um það í samvinnu, sem dæmi má nefna af- mæli, kennarafundi, sjúkrahúsdvalir, ferm- ingu og giftingu. Þegar skilnaðurinn stendur yfir er hins vegar oft erfitt aö hafa yfirsýn og gera það sem rétt er hverju sinni. Þess vegna ættu foreldrar ekki að hika við að fá aðstoð og ráðgjöf varðandi sjálfa sig og börnin. 33. tbl. Vikan 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.