Vikan - 18.08.1983, Blaðsíða 19
dóttir. . í fréttum er þetta he/st
TEXTI: GUÐRÚN BIRGISDÓTTIR LJÓSMYNDIR: RAGNAR TH.
Þú ert ung og sæt í sokkabuxum
frá Nínu.
Þú ert ungur, sætur og æðisgenginn
í nærbuxum frá Lillu.
Ég er stundum spurö aö því hvort við
gerum mikiö að því að breyta því sem við
eigum að lesa. Auðvitað er okkur ekki sama
hvað við segjum, viö erum endastöðin og
eigum að reyna að hafa augun opin og betur
sjá augu en auga. Það er til dæmis betra að
segja ekki að maður sem er dæmdur „in
absentia” hafi verið dæmdur í þorpinu
Absentia í Frakklandi, þar sem átt er við aö
hann hafi verið fjarverandi, og það er heldur
ekkert sniöugt að þurfa að segja að lögin séu
eftir Paso Doble, sem er dansspor.
Manni verður nú sjálfum á og einu sinni
sagði ég í afkynningu „rak endurminningar
sínar”, í stað rakti, og mikið brá mér. Þaö fer
áreiðanlega í taugarnar á sumum sem í hlut
eiga þegar orðalagi er breytt. Einu sinni sagði
einhver: „Hvaö ertu að klóra í fréttirnar
mínar?” En þetta eru bara alls ekki „frétt-
imar mínar”, þetta eru fréttir útvarpsins,
fréttir hlustenda. Við Gerður fórum einu sinni
fram á að sleppa við að lesa ruddalegt hljóm-
sveitarheiti í auglýsingu. Við vitnuðum í út-
varpslögin og sögðumst ekki ráðnar til að
klæmast í útvarpið. Það var víst minnst á
þetta á útvarpsráðsfundi og þá var talað um
pempíuhátt í kvenþulunum, en við sluppum
öll við að lesa auglýsinguna, karlþulirnir voru
nefnilega ekkert hrifnir af henni heldur.
Þularstarfið er fólgið í þessu; að lesa frétt-
ir, tilkynningar og kynna dagskrárliði og
spila á grammófónana. Við vinnum vakta-
vinnu og höfum samstarf við allar deildir.
Þegar dagskrárliðir eru langir gefst tækifæri
til þess að blanda geði við samstarfsfólkið, en
á Skúlagötunni er alveg afbragðs fólk. Viö
þulirnir höfum mikið samband við tækni-
mennina og símastúlkurnar og deilum með
þeim setustofu og það er hreint úrvalslið.
Ekki versnaði liðið þegar tvær stúlkur bættust
í tæknihópinn.
Losið ykkur við
umframþungann
Það gerist margt skrítið og skemmtilegt í
20 ára starfi. Einu sinni sprakk ég og skellihló
33. tbl. Vikan 19