Vikan - 18.08.1983, Side 34
in fárra breskra kvikmynda
sem hlotið hefur nær einróma lof
gagnrýnenda í ár er Educating
Rita eftir Lewis Gilbert sem bæði
er leikstjóri og framleiðandi.
Myndin er gerð eftir samnefndu
leikriti Willy Russel sem frumsýnt
var hjá Royal Shakespeare
Company árið 1980. Það var sýnt í
tvö ár í London við mjög mikla að-
sókn og var valið besta gaman-
leikrit ársins 1980.
Með annað aðalhlutverkiö í
myndinni, hárgreiðslukonuna
Ritu, fer Julie Walters, sú sama og
lék hlutverkið í leikritinu en þetta
var fyrsta stóra hlutverk hennar.
Fyrir túlkun sína á Ritu var hún
útnefnd besta byrjandaleikkonan
1980 og efnilegasti sviðslista-
maðurinn. Rita er fyrsta kvik-
myndahlutverk hennar. Mót-
leikari hennar í myndinni,
Michael Caine, er öllu frægari og
reyndari.
Myndin segir frá háskóla-
kennaranum dr. Frank Bryant,
sem kominn er á miðjan aldur og
er alldrykkfelldur, og nemanda,
sem hann hálfpartinn neyðist til
að gerast leiöbeinandi, hár-
greiðslukonunni Ritu. Sögu-
þráðurinn endurómar leikrit
Shaw, Pygmalion,(sem síðan var
fært í söngleikjaform undir nafn-
inu My Fair Lady) um samskipti
menntamannsins og alþýðu-
stúlkunnar. Rita er á margan hátt
einföld og barnaleg og talar með
sterkum lágstéttarhreim. En á
ýmsum öðrum sviðum er hún vel
að sér og lífsreynd. Hún hefur
þurft að sjá sjálfri sér farboröa
með þreytandi og tilbreytingar-
litlu starfi. Eiginmaður hennar
hefur varla áhuga á öðru en aö
hitta strákana á pöbbnum. Rita
klæðir sig, talar og hegðar sér allt
öðruvísi en hinir nemendurnir. En
hún elur í brjósti sér ríka þrá eftir
að afla sér meiri þekkingar og aö
kynnast lífinu frá nýjum sjónar-
hóli. Hún lætur innritast í Opna
háskólann sem krefst engra inn-
tökuskilyrða og námið fer að
mestu fram í gegnum útvarp,
sjónvarp, bréfaskóla og í stað-
bundnum námshópum og sumar-
námskeiðum. Dr. Frank Bryant
er ekki sérlega hrifinn af þessum
nemanda sínum sem skjögrar um
á háum hælum og litar hárið ljóst í
dag og rautt á morgun. En það
tekst með þeim sérstæð vinátta.
Rita er áhugasamur námsmaður
og auk þess lærir hún ýmsar lífs-
reglur og tekur upp breytta háttu.
Hún lærir að meta bókmenntir og
listir og auk þess lærir hún að
klæða sig á nýjan hátt, að meta
„réttu” leikritin, lesa „réttu”
bækurnar og að þekkja vín og
mat. Hún skilur líka við manninn
sinn sem brenndi skólabækurnar
hennar og skilur ekki breyttan
lífsstíl hennar. Sá sem hefur kennt
Ritu mest er Frank Bryant. Hann
er miðaldra, fráskilinn, óánægður
og lífsþreyttur. Hann dreymdi um
að verða ljóöskáld en varð aldrei
annaö en kennari. Hann drekkur
of mikið og það bitnar á starfinu.
Kynni hans af Ritu eru honum
ekki síður dýrmæt. Fyrir hennar
tilstuðlan lærir hann einnig að líta
á sjálfan sig og lífið í nýju ljósi.
Þegar öllu er á botninn hvolft er
ekki gott aö segja hvort hefur
kennt hinu meira og hvort er dýr-
mætara. Menntunin sjálf er
einskis viröi ef hún hefur ekki í för
með sér dýpri skilning á mann-
eskjunni sjálfri og umhverfinu,
menntunin er heldur ekki mark-
mið í sjálfu sér heldur opnar hún
leiðir í ýmsar áttir.
1 lok myndarinnar halda þau
Rita og Frank hvort í sína áttina.
Vegna drykkjuskapar er Frank
sendur í tveggja ára „leyfi” til
Ástralíu. Rita fylgir honum á flug-
völlinn en á leiðinni fær hún að
vita að hún hefur staðist prófiö.
Julie Walters er tvímælalaust
„stjarna” myndarinnar. Hún
leikur hlutverk sitt af alúö og
sannfæringarkrafti og gerir því
frábær skil. Samstarf þeirra
Michael Caine og Julie Walters
var með eindæmum gott og þau
hafa keppst við að lofa hvort
annað í viðtölum. Michael Caine á
að baki um fimmtíu kvikmyndir
og miðlaði Julie Walters kennara-
lega af reynslu sinni. Á sama hátt
hafði leikgleði og einlægni Julie
Walters jákvæð áhrif á Michael
Caine. Hann kenndi henni sitt af
hverju, hún kenndi honum sitt af
hverju.
Julie Walters var ekki með öllu
óþekkt nafn í Bretlandi áður en
hún lék í þessari kvikmynd. Eins
og áöur sagði fékk hún mikið lof og
viðurkenningu fyrir frammistöðu
sína á leiksviðinu. Hún hefur
leikið í föstum sjónvarpsþáttum
og ýmsum sjónvarpsþáttum og
myndum. En nú er henni spáð
mikilli frægð og frama. Það var
kvikmyndin Alfie sem gerði
Michael Caine frægan og því er
spáð að Educating Rita eigi eftir
að hafa svipuð áhrif fyrir Julie
Walters.
34 Vikan 33. tbl.