Vikan


Vikan - 18.08.1983, Side 35

Vikan - 18.08.1983, Side 35
vikmyndamarkaðurinn er að verða eins og sjónvarpið — eilífar framhaldsmyndir. Það er ein af aðferðum kvikmyndaframleið- endanna til að lokka fólk í bíó á tímum versnandi efnahags- ástands og vídeós að gera fram- hald af hverri einustu mynd sem fellur í kramið hjá áhorfendum. Að baki liggur boðskapur til áhorf- enda: „Manstu hvað þér fannst gaman að fyrstu myndinni? Þú skalt ekki halda aö allt hafi verið búið þegar ljósin kviknuðu og þú labbaðir út. Nei, myndin heldur áfram og þú verður að fara og sjá framhaldiö.” Þaö var eins gott að menn þekktu ekki þetta ráð þegar myndin Á hverfanda hveli var gerð. Annars væri sjálfsagt verið aö sýna nú Á hverfanda hveli XXXVI. Myndin Superman III hefur verið frumsýnd en hver Superman-mynd endar á loforði um að sú næsta sé væntanleg bráðum. í Bretlandi og Bandaríkj- unum eru hafnar sýningar á þriðju Stjörnustríðsmyndinni, en upphaflega var áætlað að hafa þær sjö. Þriðja Rocky-myndin hefur undanfarið verið til sýning- ar í Reykjavík. Síðasta myndin verður frumsýnd árið 2020 og segir frá viðureign Stallone við fé- laga sína á dvalarheimili aldraðra hnefaleikara. Fyrr á árinu var frumsýnd kvik- myndin Pscycho II með Anthony Perkins í hlutverki geðsjúklings- ins eða mömmu hans og gerist 20 árum eftir moröin í sturtunni. Þá er mamma hans dáin úr elli og þess vegna hægt að láta Perkins lausan fyrir góða hegðun. En lengi lifir í gömlum glæðum eins og sagt er. I fyrra var það Grease II og nú er það Stayin’ Alive, framhald af Saturday Night Fever meö John Travolta í aðalhlutverkinu. Og nú tíu árum síðar lítur framhaldið af hinni óborganlegu kvikmynd Sting dagsins ljós. Aðalsprauturnar í Sting, þeir Paul Newman og Robert Redford, koma að vísu hvergi nærri þessari mynd sem gerist 10 árum síöar en Sting. Aðalleikararnir í Sting II eru Mac Davis, Jackie Gleason og Oliver Reed. Af væntanlegum framhalds- myndum eru helstar Kramer gegn Kramer II og The Graduate II (það er að segja ef Dustin Hoffman fær aö leika frú Robinson). Framha/dskvikmyndir 33. tbl. Vikan 35

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.