Vikan


Vikan - 18.08.1983, Síða 46

Vikan - 18.08.1983, Síða 46
FRA MHA LDSSA GA lætur drauginn láta öllum illum látum. I mars 1966, tveimur mánuöum eftir réttarhöldin, var haldin al- þjóðleg ráðstefna um mannleg samskipti. Um það bil sextíu fræðimenn og sérf ræðingar hópuð- ust saman til aö eyða fimm dögum á fyrsta flokks lúxushóteli, héldu fyrirlestra og hlustuðu hver á annan. Hvar sem á var litið var þetta fyrsta flokks framkvæmd. Ekki var boðið nema bestu mönnum í hverri sérgrein og sagnfræðingurinn sem varö fyrir valinu var Charlie. Charlie tók mig með sér á ráðstefnuna ein- faldlega vegna þess að viö vorum ástfangin og vildum ekki skilja lengi. Við flugum til Chicago aðra vikuna í mars og svo til Boston, þar sem límúsína frá hótelinu beið okkar og þriggja annarra þátttak- enda. Við ókum í nærri því þrjá tíma upp í hæðirnar í New Hampshire og Charlie og hinir mennirnir voru í andlegum tennis alla leiðina en ég sat lotningarfull og steinþagöi. Ég var tuttugu og þriggja ára og nýlega byrjuð að vinna aö magistersprófi. Eftir þrjá tíma í límúsínunni var ég að gráti komin í örvæntingu. Ég fékk ekki séð að ég myndi nokkru sinni vita jafnmikið og nokkur þeirra fjögurra eða geta farið með þá þekkingu með svona kæruleysis- legum hrokafullum léttleika. Rétt áður en við komum á hótel- ið teygði skeggjaði gamli rafstýri- tæknirinn fram höndina og klapp- aði mér á hnéð, strauk það losta- fullt. „Guði sé lof fyrir að maðurinn þinn hafði þig með, elskan,” sagöi hann. „Þú ert nákvæmlega það sem við þurfum allir — falleg ung kona sem kemur blóði okkar til að ólga svo að við getum haldið áfram þessu eigingjarna kjaft- æði.” Ég brosti til mannsins, var raunverulega ánægð. Mér fannst hann vera að gefa mér hlutverk að leika, ástæðu til að vera þarna. Ég einsetti mér að vera jafnlagleg og ég gæti á ráöstefnunni og hlusta jafnfleöulega og ég gæti. En ráöstefnan fór framhjá mér í móðu og það sem ég bar með mér frá þessari ráöstefnu 1966 var vissa um að ég gæti ekki ennþá drukkið í mig, gæti enn ekki notað. Ég komst að því aö á ráð- stefnum eru margar tegundir karlmanna en ekki nema tvær kvengerðir, ef þjónustustúlkur hótelsins eru undanskildar. Það eru þær gáfuðu sem eru þátttak- endur og þær laglegu sem eru eiginkonur. Þegar ég kom fyrst inn í matsal- inn létti mér að sjá konur hér og hvar dreifðar milli karlanna. Heima höfðu ekki verið nema þrjár konur af tuttugu og tveimur nemendum við magistersnám. Hlutföllin hér virtust ósköp ámóta og það kom mér ekki á óvart. Það sem kom mér á óvart, það sem síaöist undrahægt inn í þykka höfuðskel mína þegar dagarnir liðu var aö það var enginn kven- kyns þátttakandi þarna sem ég hefði viljað vera. Þarna var ljúf, þreytt, friösælt syrgjandi nunna sem hét systir Grace Anthony Morrow og var sérfræðingur í málvísindum. Þarna var há, breið kona úr Bandaríkjaher, sem sér- hæfði sig í utanríkismálum, hún var fjörutíu og eins árs og ein- hleyp, notaði þykk gleraugu og þung, dökk jakkaföt og var með hárið klippt eins og karlmaöur. Og þarna var næstum því laglegur félagsfræöingur, kona sem faldi sig undir víöum, dökkum fötum og var með gleraugu sem duttu í sí- fellu af henni. Hún skalf svo mikið þegar hún stóð upp til að kynna erindið sitt að enginn skildi hvað hún varaðsegja. Ég komst að því að mér líkaði vel að vera talin falleg og ég hafði gaman af því að karlmennirnir brostu til mín. Mér líkaði vel að vera kát, hjálpfús og hlýleg. Ef kona þurfti að glata því öllu til aö ná hátindi í starfi var ég ekki viss um að ég vildi leggja á brattann. Ég býst við að ég hafi í örvænt- ingu verið að leita mér að fyrir- mynd. En á ráðstefnunni 1966 fann ég enga þannig að ég komst ekki að neinu á ráðstefnunni sem gat orðið mér að gagni á því tímabili ævi minnar. Charlie reyndi auð- vitað alltaf aö verða mér að liði á sinn óljósa, viöutan hátt, en ég vissi að hann skildi ekki vandamál mitt. Það var naumast að ég geröi mér sjálf grein fyrir því. Þegar ég byrjaöi að vinna að magistersprófinu mínu þennan ■ 100% bómullarkvenfatnaður 46 Vlkan 33. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.