Vikan


Vikan - 18.08.1983, Page 51

Vikan - 18.08.1983, Page 51
Hjól í fjöru Kæri draumráðandi! Mig dreymdi svo ein- kennilegan og skrítinn draum fyrir stuttu og mig langar mikið til að fá ráðn- ingu á honum svo ég leita tilþín. Eg vona að þú getir ráðið hann. En hér kemur draumurinn: Mér fannst ég vera í H þar sem vinkona mín, G, á heima, en um- hverfið var allt öðruvísi en það er í alvörunni. Húsið sem vinkona mín á heima i var að ég held bara á einni hæð en í alvörunni er það tvær hæðir og íbúðin var að öllu leyti öðruvísi en hún er í rauninni og það var allt í drasli. Eyrst þegar ég kom að húsinu og ætlaði að fara inn þurfti ég að ganga meðfram húsinu. Grasið var alveg ofsalega grænt og fallegt en samt var fullt af drasli þar eins og annars staðar. Stígurinn meðfram húsinu var um það bil 1,5—2 metrar og síðan var sjórinn þar fyrir neðan. Hann var alveg tær. Ein- hvern veginn vissi ég að þegar flóð væri flæddi al- veg upp að grasinu. Allt í einu fannst mér ég vera komin inn og allt var auðvitað í drasli ('allt þetta drasl var gamlir húsmunir eða eitthvað í þá áttina). Um leið og ég var komin inn fór mamma vinkonu minnar að reyna að taka til og ég held vinkona mín líka. Svo fannst mér alveg eins og ég væri komin inn í herbergi, langt og frekar mjótt en stórt, sem hafði alltaf verið lokað og ég hafði aldrei vitað að væri til. Og þær mæðgurnar voru þar að reyna að laga til, voða aumingjalegar því þær skömmuðust sín fyrir draslið. Eg man líka vel eftir rúmgafli sem var uppv við húsið á stígnum sem maður þurfti að ganga til að komast inn. Mamman virtist einhvern veginn vera í vandræðum með að koma honum fyrir. Eg var allt í einu komin út og ég var fyrir framan húsið. (Það var gengið inn í húsið baka til.) Grasið var mjög grænt og veðrið alveg æðislega gott, alveg logn og mjög bjart en samt bar ekki mikið á sólinni. Svo sé ég bryggju þarna (litla bryggju) og ég fer út á hana en samt finn ég svo mikið gras í kringum mig og það eru steinar t fjörunni, ósköp venjulegri fjöru, en þegar ég horfi niður í sjó- inn, sem er alveg tær, þá sé ég 3 barnavagna og 2 kerr- ur sem hafði verið hent í sjóinn. Einn vagninn var sokkinn og lá á hliðinni, hann var hvítur og byrjaður að ryðga. Kerrurnar og hin- ir vagnarnir sýndust heil- legir og flutu næstum því. Síðan sé ég fjöldann allan af hjólum sem búið var að henda í sjóinn og sum höfðu verið hengd utan á bryggjuna. Hjólin voru ekkert ryðguð en mér fannst afturhjólið á einu hvítu hjóli þarna vera bráðnað, felgan og brettið líka. Mig langaði mjög mikið íþetta hjól. Það er ekki allt búið enn. Síðan fannst mér ég sjá mjög mikinn þaragróður í tærum sjónum. Jæja, nú labba ég aðeins af stað og fer að tala við G en ég man ekki eftir að hafa séð hana og ég sagði henni að við ættum endilega að taka hvíta hjólið og eitthvert annað hjól og láta nýtt dekk á hvíta hjólið. Allt í einu lít ég við og sé lítið en æðislega fallegt hús spöl- korn í burtu. Landslagið var frekar hæðótt en fallegt og það var ekkert drasl á leiðinni að litla húsinu og t kringum það. Eg fór ekki þangað, horfði bara lengi á það. Mér fannst endilega að viti ætti að vera rétt hjá litla húsinu og ég sá eitt- hvað langt og mjótt standa upp úr jörðinni en það var of lítið til þess að vera viti. Og nú var draumurinn bú- inn. Eg ætla að geta þess að ég sá aldrei vinkonu mtna eða mömmu hennar en fann nálægð þeirra og ein- hvern veginn fann hvernig þeim leið þegar þær voru að taka til. Að vísu sá ég mannveru en hún var bara svört, ég sá bara útlínurnar og ég held hún hafi haldið á rúmgaflinum. Eg vona að þú hafir skilið þetta bréf og getirráðið drauminn. Bless, Eröken draumgjörn. Þessi draumur er þér fyr- ir fjárhagslegum ávinningi en ekki er allt sem sýnist og ýmislegt fleira en peninga- lán mun standa í sambandi við þetta. Þú verður að taka á til að bregðast rétt við og munt þroskast mjög fyrir bragðið. Draumatáknin eru mjög á sömu leið en greinilegt er að þetta er ekkert einfalt mál, það er hætta á misskilningi, ýmiss konar flækjum og vanda- málum, þó flest það sem gerist verði að teljast óvenju hagstætt. Þú þarft greinilega að vera mjög skýr í hugsun og gætin til að halda rétt á spöðunum og segja mætti að þú þyrftir á því að halda að vera mjög skilningsrík en getur hugg- að þig við að að minnsta kosti einn aðili málsins sýn- ir þér mikinn skilning og stuðning. Þetta gæti verið stórt tækifæri í lífi þínu og mjög til farsældar ef þú heldur rétt á spöðunum. Að minnsta kosti verður þetta ekki til neins ills þó þú ráðir ekki við það. Draumurinn segir því miður ekkert um hvernig þér muni farnast heldur er hann fyrirboði þess sem koma skal. hókí blaðformi fæstá næsta blaðsölustað 33. tbl. Vikan 51

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.