Vikan


Vikan - 18.08.1983, Blaðsíða 62

Vikan - 18.08.1983, Blaðsíða 62
POSTIRIW Pennavina- klúbbar í öðrum löndum Kœra Vika. Ég hef mikinn áhuga á bréfaskiptum, sérstaklega vid fólk í öðrum löndum. Þess vegna þœtti mér vœnt um að þið settuð í Vikuna eða senduð mér bréf meö nöfnum á pennavinaklúbb- um eða blöðum í þessum löndum: Danmörku, Sví- þjóð, Noregi, Bretlandi, Frakklandi, Tyrklandi og Ástralíu. Þökk fyrir. SBF. Því miður getur Póstur- inn ekki orðið við öllum þessum óskum en hér koma nokkrar utanáskrift- ir sem einn af lesendum blaðsins var svo vinsam- leguraðsenda. IYS, P.O. Box 125 SF-20101 Abo 10 Finland. Bornebladet Junior Brendstrupsvej 119 Arhus Danmark. Norsk Barneblad Akersgata 7 Oslo Norge. Kameratposten Sveováget 53 Stockholm Sverige Því miður hefur Póstur- inn engin nöfn í Frakk- landi, Bretlandi, Tyrklandi og Ástralíu og biður lesend- ur endilega um að senda sér nöfn pennavinaklúbba í þessum löndum, ef þeir hafatöká. 2x2 = 4 Hœ, hœ, œðislegi Póstur! Við erum hér 2 vinkonur fyrir vestan og okkur langar ofsalega til að spyrja þig að svolitlu. Ég er hrifin af strák sem á heima langt frá mér. Hann kemur eins oft og hann getur heim til mín þannig að við þekkjumst ágœtlega. En vandamálið er að ég er svo feimin að ég þori ekki að spyrja hann hvort hann vilji byrja með mér. Hvað á ég að gera? Hann er 4 árum eldri, en hann á afmœli svo seint á árinu en ég svo snemma að það má kalla það þrjú ár. Og svo er það ég sem er líka hrifin af strák sem er svo sœtur. Hann er í sveit á næsta bœ. Ég þekki hann mjög vel en ég þori ekki að segja honum frá því að ég sé hrifin af honum. Hvað á ég að gera? Hann er þremur ár- um eldri en ég. Tvœr í vanda. P.S. Hvorugur strákurinn veit að við erum hrifnar af þeim. Já. Ýmsar leiðir eru fær- ar í þessu máli. Þið getið unnið saman í málinu, fyrst þið eruð tvær. Sú vinkonan sem er skotin í stráknum á næsta bæ getur sagt hinum stráknum, þeim sem á heima langt í burtu, að vin- kona hennar sé skotin í hon- um. Og sú sem er skotin í þeim strák getur sagt stráknum á næsta bæ að vinkona hennar sé skotin í honum. Síðan getið þið bor- ið saman bækur ykkar um viðbrögð strákanna, hvort þeir fengu áfall eða hvort þeir urðu yfir sig glaðir. Síðan má vinna áfram að málinu með því að bjóða strákunum í ferðalag eða útreiðatúr, nú eða fjall- göngu og sjá hvað gerist. Einnig er það til í málinu að hvor um sig segi þeim sem hún er skotin í að hún sé skotin í honum. Til þess þarf auðvitað að hrista af sér feimnina, en eitthvað verður jú að gera ef þið ætl- ið ekki að bíða eftir því að þeir byrji að reyna við ykk- ur. Það getur samt alltaf gerst og þá er jú málið leyst, ekki satt? 62 Vikan 33. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.