Vikan - 12.04.1984, Page 11
Yul
Brynner
ábata-
vegi
Yul Brynner hefur að
undanförnu átt viö mikil veikindi
aö stríöa. Hann þjáist af lungna-
krabbameini og hefur veriö í
meöferð hjá frægustu læknum í
Bandaríkjunum og Evrópu. Hann
var nýlega viðstaddur kvik-
myndafrumsýningu í New York
og undruðust allir hve hressilegur
hann var útlits. Síöan hélt hann
Það er Kathy að þakka að ég er nú
svona hress, segir Yul Brynner.
mikla veislu og bauö þangaö bestu
vinum sínum, syninum Roc,
Shirley MacLaine, Michael Jack-
son og Liza Minelli.
I veislunni lýsti hann því yfir aö
hann hefði verið ákveðinn í því aö
yfirvinna sjúkdóminn og aö
honum heföi nú líklegast tekist
þaö. Yul Brynner telur þó stærstu
ástæöuna fyrir bata sínum vera
hina nýbökuöu eiginkonu sína,
Kathy, sem hefur staðið viö hliö
hans trygg og trú í gegnum
veikindi hans. „Kathy er mér
allt,” sagöi Yul Brynner. „Það er
henni að þakka að ég er nú svo
hress. Húnermín lífsvon.”
iSnsuí
OG TILVERAN
ÞRENN
VERÐLAUN:
Vegna vinsælda þáttarins VIKAN OG TILVERAN, sem hóf göngu sína með 1. tbl. VIKUNNAR
þessa árgangs, hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um frásagnir af þessu tagi. Heitið er
þrennum verðlaunum: 1. verðlaun kr. 10.000,- 2. verðlaun kr. 7.500,- og 3. verðlaun kr. 5.000,-
VIKAN áskilur sér birtingarrétt að þessum frásögnum án frekari greiðslu og að velja úr öðrum
frásögnum sem berast kunna og verða þá greiddar kr. 2.000 fyrir hverja birta frásögn.
Eins og lesendum VIKUNNAR er kunnugt er hér um að ræða lifsreynslufrásagnir af ýmsu tagi
og eru þær birtar nafnlausar. Þær geta verið af basli í daglegu lífi, mannraunum, merkilegri
heppni, gleðilegum atburðum og raunalegum eða nánast hverju því sem hægt er að segja frá af
persónulegri reynslu á læsilegan og eftirtektarverðan hátt. Heimilt er að breyta staðarnöfnum
og mannanöfnum og öðru því sem nauðsynlegt er til að Ijóstra ekki upp um hver skrifar frá-
sögnina eða þá sem í henni koma við sögu. Æskileg lengd er 5—8 vélritaðar síður, miðað við ca
30 línur á hverri síðu.
Handrit þurfa að hafa borist VIKUNNI, pósthólf 533, 121 Reykjavik, auðkennd VIKAN OG TIL-
VERAN, eigi siðar en 1. mai 1984. Handrit skulu merkt með dulnefni en rétt nafn fylgi í lokuðu
umslagi merktu með heiti frásagnarinnar og dulnefni höfundar. Dómnefnd mun gæta nafn-
leyndar höfundanna.
Dómnefnd skipa: Guðrún Birgisdóttir fjölmiðlafræðingur, sr. Jón Helgi Þórarinsson, fri-
kirkjuprestur i Hafnarfirði, Sigurður Hreiðar, ritstjóri Vikunnar.
Handritin verða metin á grundvelli atburðar og frásagnar en ekki sem bókmenntaverk.
15. tbl. Vikan II