Vikan - 12.04.1984, Blaðsíða 36
Létt skíðapeysa
Eitt af þvi fáa sem hægt er að treysta á í tilverunni er sú staðreynd að á eftir sumri kemur haust og
siðan vetur — venjulega kaldur. Og svo koll af kolli. Einhverjar nöldurskjóður vilja halda þvi fram að
hérna hafi sumarið siðan i fyrra ekki enn látið sjá sig og líklega er það fólk sem ekki elskar vætu. Þeir
sömu segjast hafa átt erfitt með að sætta sig við veturinn og við ráðleggjum þeim að iðka vetrariþrótt-
ir i framtiðinni því það getur gefið þeim árstima jákvæðara yfirbragð. Skíðaiðkun er eitt af þvi góða í
þeim efnum og hérlendis er einnig hægt að skiða á sumrin — til dæmis i Kerlingarfjölium.
Hérna höfum við skíðapeysu fyrir lesendur sem fylgja vilja heilræðinu, flikin er reyndar sérhönnuð
fyrir Vikuna og Álafoss sá um þá hlið málanna. Efnið er garnið lopi-lyng og flikin því bæði létt og
þægileg. Myndin er tekin i skíðalandi höfuðborgarbúa — Bláfjöllum.
Stærð (eftir þvottl.
Yfirvídd: 777 cm.
Öll sidd: 62 cm.
Ermal. að handvegi: 45 cm.
Efni: Álafoss lopi lyng.
Hvitt nr. 351, 500 g.
Blátt nr. 373, 100 g.
Bleiktnr. 371, 100 g.
Prjónar: Hringprjónar nr. 4 1/2 og 7,
40 og 70 cm langir.
Sokkaprjónar nr. 4 112.
Prjónfesta: 12 I. og 17 umf. sl. á
prjóna nr. 7 = 10x10 cm.
Þessi prjónfesta er nauðsynleg tH
þess að flikin heppnist, skiptið um
prjónastærð efmeð þarf.
A thugið: Bolur er prj. i hring upp að
handvegi, eftir það fram og aftur.
Ermar eru prj. i hring. Peysan er að
lokum bleytt og ýfð til þess að ná
fram mjúkri, loðinni áferð.
Bolur: Fitjið upp á hringprj. nr. 4
1/2 108 /. Tengið i hring og prj.
brugðning, 1 I. sl., 1 /. br., 7 cm.
Skiptið yfir á hringprj. nr. 7, aukið
út með jöfnu millibili i fyrstu umf.
22 I.Þá eru á prj. 130 I. Prj. eftir
mynsturteikningu upp að handvegi
(40 umf.), þá er bol skipt i fram- og
bakstykki og hvort stykki prj. fyrir
sig, fram og til baka, slétt prj. (sl. á
réttu, br. á röngu). Fyrsta og sið-
asta I. er alltaf prj. sl.
Framstykki: Prj. fyrst 5 umf. með
bláu, siðan hvitt 19 cm. Þá er komið
að hálsmáli og fellið þá af 13 /. fyrir
miðju að framan. Hvor boðangur er
nú prj. fyrir sig, tekin er úr 1 /. 4
sinnum i annarri hverri umf. háls-
megin (i byrjun umf.). Prj. siðan 7
umf. án úrtöku, 22 /. á prjóni, fellið
af axlarlykkjurnar.
Bakstykki: Prj. 5 umf. með bláu,
síðan hvitt þar til bakstykki mælist
jafnstórt framstykki. Prj. siðustu
umf. þannig: Prj. 221., fellið af 21 /.,
prj. 22 I. Lykkið nú axlarlykkjur á
bakstykki saman við samsvarandi
lykkjur á framstykki frá réttu. (Ath.
axlarlykkjur á framstykki eru
felldar af til þess að það teygist
ekki.)
Ermar: Fitjið upp á sokkaprj. nr. 4
1/2 32 I., tengið i hring og prj.
brugðning, 1 /. sl., 1 /. br., 7 cm.
Skiptið yfir á hringprj. nr. 7 og auk-
ið út með jöfnu millibili 8 I. Þá eru á
prj. 40 I. Prj. mynstur, i 4. umf. er
byrjað að auka út á miðri undirermi.
Aukið er út 101. (1 /. eftir fyrstu I. og
1 /. fyrir siðustu /. umf. ) i 6. hverri
umf. alls 5sinnum. Þá eru á prj. 501.
Prj. eftir mynsturteikningu: Prj.
mynstur 135 umf., siðan mynstur
II, þá mynstur III, síðan 5 umf. með
bláu. Þá er ermin lykkjuð á bolinn.
Prj. seinni ermina eins og lykkið á
bolinn.
Hálslining: Prj. upp frá réttunni I.
i hálsmálinu með hvitu á hringprj.
nr. 4 1/2. Byrjið á vinstri hlið þar
sem bak og öxl mætast. Prj. upp 15
I. af hliðinni, þá 13 I. fyrir miðju að
framan, 151. afhægri hlið og að lok-
um 21 /. fyrir miðju að aftan, alls 64
I. Tengið i hring og prj. brugðning, 1
I. sl., 11. br., og takið jafnframt úr i
fyrstu umf. 4 !., þá eru á prj. 60 I.
Prj. alls 3 cm brugðning. Fellið af.
Frágangur: Saumið myndina i
peysuna, sjá teikningu. Bleytið
peysuna og leggið irétt mál.
ifi«i *«t • 111 §\t/|
i9!|\t/f 9 i 14 v f v fij
i»\9/t\t/íf/«\t/í\l/í\t/f\V/a|
Prjónaspor er saumaÖ frá hægri
til vinstri. SaumiÖ utan um 1
L, stingiÖ niöur i sömu L og
byrjaö var á. StingiÖ inn í
næstu L (á röngunni liggja
stuttir láráttir þræÖir),
niöur í sömu L og svo
framvegis.
Hönnun: Sigurmunda Guðmundsdóttir
36 Vikan 15. tbl.