Vikan - 12.04.1984, Blaðsíða 60
Madam
Madonna
Upphafið
Fyrir mörgum, mörgum árum kom óþekktur
ítali til Ameríku. Það var með hann eins og svo
marga aðra, hann reyndi að bjarga sér sem best.
Hann eignaðist hús, bíl, konu og þann 16. ágúst
1960 eignaðist hann (ásamt konu sinni) dóttur.
Henni var gefið nafnið Madonna í höfuðið á
heilagri guðsmóður. Eftirnafnið var Ciccone,
eins ítalskt og nokkurt eftirnafn getur orðið.
Madonna var síður en svo eina afkvæmið því
hún ólst upp á strangkaþólskan hátt með átta
systkinum. Öll þessi kaþólska hafði í för með sér
að Madonna greyið fékk ekki að eiga stefnumót
við stráka og pabbi hennar, hálfguðinn, var al-
gerlega á móti því að hún væri á kafi í dansi og
söng, taldi vissara upp á framtíðina að læra lög-
fræði. Hafa ber í huga að skoðanir karlsins hafa
mótast af sárri fátækt hans við komuna til fyrir-
heitna landsins þar sem hann bjó fyrstu árin í
gettói í Pittsburgh.
Framhaldið á upphafinu
Forleikur
60 Vikan 15. tbl.
En Madonna var ekki mikið að hlusta á
gamlingjann og hóf nám í ballett í öllum hugsan-
legum útgáfum, jass-, nútíma- og klassískum. 17
ára að aldri fékk hún nóg af bílaborginni Detroit
(þar sem hún átti þá heima ef þið hafið ekki gert
ykkur það Ijóst) og flutti til IMew York.
í New York lét hún það verða eitt af fyrstu
verkum sínum að ganga í hljómsveit, kallaða The
Breakfast Club, þar sem hún spilaði á trommur.
Það var ekki nóg fyrir hana að hanga einhvers
staðar fyrir aftan og lemja húðir svo að hin
metnaðargjarna Madonna stofnaði nýtt band,
Emmy, þar sem hún lék á gítar og söng (eins og
langamma, létt í lund).
Spurning: Var það nóg fyrir hina fram-
gjörnu stúlku?
Svar: Nehei. Madonna sagði við sjálfa sig:
,,Nú hef ég gefið út tvær 12" plötur og fengið
samning við Sire hljómplötufyrirtækið. Það er
ekki nóg fyrir mig. Hver er mesta poppstjarnan í
dag? Aha, Michael Jackson. Nú fer ég og næ í
umboðsmanninn hans og verð stórstjarna." Sem
hún og gerði (náði í umboðsmanninn hans á
þessum tíma, Freddie De Mann). Á sömu stundu
jókst eftirspurnin um 1202% og Madonna fór i
hljómleikaferðalög hingað og þangað. Þá sagði
9 •-
$
V