Vikan - 12.04.1984, Blaðsíða 25
1S Eldhús Vikunnar
Umsjón: Jón Ásgeir
gnum
éSm*
nú liggur hann cins óg léfnstraó égg, það leiddi af hrapi
Ef þú vilt hljóta þökk og laun sem þykir gaman
þá léttu af Eggert leiðri raun og límdu hann saman.
225grömm smjör eða smjörlíki
225grömm strásgkur
4 egg, lítið eitt þeytt
175grömm hveiti
11/2 teskeið lyftiduft
75 grömm gróft kókosmjöl
SMJÖRKREM:
75 grömm smjör eða smjörlíki
225 grömm flórsykur
2 matskeiðar mjólk
matarlitur (má sleppa)
SKREYTING:
225 grömm hindberjasulta
100 grömm gróft kókosmjöl
Smarties
lakkríslengja
225 grömm möndlumassi
Hrærið smjör og sykur þar til hræran verður létt og ljós. Bætið
eggjunum í, einu í senn. Sigtið hveitið og lyftiduftið yfir hræruna og
blandið því varlega saman við með málmskeið. Hrærið kókosmjölinu að
síðustu út í deigið.
Smyrjið 6 desílítra eldfasta skál. Botnfóðriö og smyrjið 18 sentímetra
ferkantað, grunnt form. Fyllið eldföstu skálina að tveimur þriðju með
deiginu. Setjið afganginn í ferkantaða formið. Bakið við 160 gráða hita á
Celsius í 25—35 mínútur, ferköntuðu kökuna, en 40—50 mínútur skálar-
kökuna. Hvolfið kökunum á grind og látiö þær kólna.
Smjörkrem: Setjið öll hráefnin í skál og hrærið vel í meðtrésleif.
Skreyting: Skerið ferköntuðu kökuna í sundur og leggið helmingana
saman með sultu. Nú er kakan oröin ílöng. Smyrjið sultu yfir alla
kökuna og þekið hana meö kókosmjöli. Myndiö múrsteinamynstur með
prjóni. Þekið skálarkökuna með smjörkremi. Notið Smarties í stað
augna og nefs. Notiö lakkrísræmu fyrir augabrúnir og munn. Tyllið
Eggert á vegginn. Búið til hendur og fætur úr möndlumassa og komiö
þeim fyrir á sínum stað. Ef nauðsynlegt er má festa útlimina meö
hálfum tannstönglum.
Margar fleiri ágætar uppskriftir af þessu tagi er aft finna i bókinni Kökur og kökuskreytingar
eftir Jill Speneer, en hún kom út á íslensku hjá bókaútgáfunni Iftunni 1982.
15. tbl. Vikan Z5