Vikan


Vikan - 12.04.1984, Page 43

Vikan - 12.04.1984, Page 43
helgar. Líkt og Annie, konan í hópnum, hafði hann brúna hárið og bláu augun sem títt er um Norömenn og gerði oft aö gamni sínu um að einu dæmigerðu ljós- hærðu Skandinavarnir sem sæjust í Noregi væru flugfreyjur og þær væru sænskar eða danskar. Paul kunni vel við Annie. Ef öryggisreglurnar hefðu ekki stíaö þeim í sundur hefði hann boðiö henni út. Þegar hann þvoði upp eftir morgunveröinn og klæddi sig í úlpuna áður en hann lagði af stað í vinnuna hugsaöi hann með sér að hann yröi feginn að hitta hana um kvöldið, jafnvel þó það yrði ekki nema þær fáeinu mínútur sem þurfti til aö ná sambandi við Bodö. Hann lauk störfum klukkan fjögur síðdegis, fór af skrifstofu námafélagsins og gekk greitt eftir veginum. Rétt handan viö tveggja hæða rauöbrúna verslunar- bygginguna stóð bankinn, lítið timburhús með TROMS SPARBANK letrað á skilti á þak- inu. Gluggarnir voru dimmir eins og hann hafði búist viö. Hann fór inn í skærlýsta kjörbúöina en hún var ekki þar svo hann gekk að íbúðarblokk einhleypra þar sem hún bjó. Ibúð Annie var örlítil, rétthyrnt herbergi með glugga fyrir endanum, svefnsófa öðrum megin, borði. Rétt við dyrnar var tjaldaö fyrir skot og þar hvarf hún strax inn til að hita kaffi. I skotinu var þvottaskál með spegli fyrir ofan, eldunartæki og lítill ís- skápur. Einstaklingsíbúðir í Long- yearbæ voru fábrotnar, hvort sem þær voru fyrir karla eða þær fáu einhleypu konur sem þar voru. „Þú hefur gert hana mjög þokkalega,” sagði hann. Hún hafði vissulega gert sitt besta með skrautmunum og skærlitu efni. „Nú, ég verö hér í ár,” kallaði hún á móti. „Eg þoli ekki að búa í svínastíu.” Hún kom fram, rétti honum krúsina og kökusneiö, sneri sér svo beint að efninu. ,,Eg heyrði útsendinguna svo ég átti vonáþér.” An þess að segja nokkuð rétti hann henni uppkastið sem hann var þegar búinn að snara á dul- mál. Hún gekk að skáp, tók niður litla feröatösku af efri hillunni og opnaöi hana. I henni var talstööin, grafin undir nærfötum. „Viö ættum að finna betri felustaö núna,” sagði hann þegar hún hamraði morstáknin. „Eg vil það síöur,” sagði hún þegar hún var búin. „Það vita allir hvað allir hinir eru að gera hérna. Þetta eru mestu kjaftatífur í heimi. Ef viö förum að grafa tækiö uppi í dag eða felum það undir húsinu kemst strax upp um okkur.” Hún setti upp loftnetið við gluggann og þrýsti á sendi- hnappinn, settist svo niður og beið eftir staðfestingu, jafnróleg og hefði hún veriö að hringja í móður sína. Loftskeytamaðurinn í Bodö var greinilega bæði árvakur og við- búinn. Svarið kom eftir tvær mínútur. Mydland þýddi það og sýndi henni minnisblokkina þegjandi eins og áöur. „Jæja,” sagöi hún eftir nokkra íhugun. „Ef þeir vilja upplýsingar um flugvöllinn liggur beint við að hafa samband við Frederik Folvik. Hann er ákaflega beiskur yfir valdatökunni. Eg held aö hann myndi hjálpa okkur.” SENDIHERRARNIR fimmtán í Öryggisráði Sameinuðu þjóöanna sátu við hringborðin í umræðusal sínum. A boröinu fyrir framan þá stóðu nafnspjöld þjóða þeirra, full- trúi Bretlands hægra megin við fulltrúa Bandaríkjanna og fulltrúi Sovétríkjanna skammt frá honum. Fyrir aftan þá sátu aðstoöarmenn þeirra með hlust- unartæki og hlýddu af athygli á þýðingar á ræðum: Ráðiö starfaði á fimm opinberum tungumálum. Uppdrátturinn að ályktuninni sem lá fyrir ráðinu var blátt áfram: Aö fordæma brot Sovét- ríkjanna á landsvæðinu Svalbarða og að krefjast þess að allsherjar- þingið yrði kallað saman í skyndi til að fjalla um það. Fyrir Noreg, en sendiherra hans var þarna áheyrnarfulltrúi, var atkvæðagreiöslan mjög þýðingar- mikil. Noregur hafði lengi aðstoöað friðargæslusveitir SÞ á ýmsum átakasvæðum, svo sem í Kongó, á Kýpur og í Líbanon, og lá því beint við fyrir ríkiö að leita til Sameinuöu þjóðanna. Ef Öryggis- ráöið samþykkti þessa ályktun gat Noregur þegar í staö farið fram á MASSATHERM - ÞITT EIGIÐ NUDDBAÐ Frábært heilsubað, jafnt fyrir Mýkir spennta og unga sem aldna. Hentar í jár harða vöðva | öll baðkör . J MÍÖ9 90tt við voðva' : , / bólgu. j ^ Þreytan burt. "sm. Póstsendum 'v S. Hermannsson, Sími: 91-13014-40675 15- tbl. Vikan 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.