Vikan - 12.04.1984, Qupperneq 61
1
Texti: Hörður
Madonna við sjálfa sig. „Mikið er nú gott að vera
svona vinsæl. En það er ekki nóg. Að minnsta
kosti ekki fyrir mig. Nú ætla ég að gera plötu og
video og leika í kvikmynd og og og. . . "
Heyröu, fer þetta ekki bara að verða
ágætt hjá henni?
Nehei. Inn í stúdíó með Reggie Lucas (einn af
gömlu diskókynslóðinni) og John „jellybean"
Benitez (borið fram: „Beniteþ") þar sem þau þrjú
tóku upp hennar fyrstu plötu: Madonna. Ég veit
um að minnsta kosti eitt eintak sem hefur selst
hér á landi. Á þessari plötu er vinsælasta lag
hennar til þessa, Everybody, sem tröllreið listum
hér á klakanum og var númer eitt á danslistanum
í USA í alllangan tíma. Nú um þessar mundir er
annað lag af þeirri piötu að síga niður á við í Bret-
landi, Hollyday.
Smámillikafli
Jón „hlaupsbaun" Benidikts (nú geri ég ráð
fyrir hrossahlátri hjá þeim sem hafa eitthvert
skopskyn) er ekki bara upptökustjórnandi henn-
ar. Hann er stundum líka elskhugi hennar þegar
þau hafa tíma, en það er ekki svo oft nú á dög-
um. Einhvern veginn hefur honum tekist að fá
Madonnu til að hljóma eins og negrastúlku, að
minnsta kosti hélt ég það þar til ég leit hana aug-
um. Þetta hefur háð henni talsvert í Vesturheimi
þvi að í sumum ríkjum er hreinlega ekki gert ráð
fyrir blökkumönnum og plötur þeirra ekki spilað-
ar í útvarpi. Þeir sem svo á annað borð vita að
hún er hvít liggja henni á hálsi fyrir að trana sér
fram á kostnað svartra, það er að lög hennar séu
spiluð í blönduðum útvarpsstöðvum í staðinn
fyrir lög blökkumanna þar eð enginn munur
heyrist á henni og svörtum söngvara.
Þetta er nú ekki það eina. í Bretlandi, mið-
punkti alheimsins hvað íhaldssemi almennings
varðar, hefur það ekki mælst of vel fyrir þegar
Madonna segir skoðun sína á hlutunum eins og
er siður í New York, hvað þá ef um hálfan ítala er
að ræða. Það virðist nefnilega vera svo að í Bret-
landi séu menn meira út af fyrir sig og eru ekkert
að rífa kjaft, öfugt við Madonnu sem rífur kjaft
sinn eins og henni sýnist.
Kjaftrif þessi eru að hennar sögn mikið til
vegna þess hve lágvaxin hún er, ekki nema 154
sentímetrar. Það aftrar henni ekki heldur frá því
Þetta er Madonna. Núna er hún sitjandi.
Hún minnir suma á Ninu Hagen.
að hreinlega lama fólk á tónleikum með tryll-
ingslega orkuríkum dansi og söng, en að sögn er
hún mikill túlkandi texta sinna í dansinum. Vitað
er til að hún hafi gjörsamlega þaggað niður i 2000
manns í hinu margumtalaða diskóteki Roxy í
New York þar sem hún næstum dáleiddi lýðinn
sem endaði sem þrælar hennar og endurtók
hverja hreyfingu sem hún framkvæmdi.
Eftirleikur
Núorðið eru menn farnir að kalla Madonnu
„kvenkyns Michael Jackson". Hún er lon og don
á þönum milli London og New York. Um leið og
hún hefur ekkert lag inni á lista mun hún gera
nýja plötu. Þangað til verður að fylgja Hollyday
eftir eins og mögulegt er, annað er ómögulegt í
þessum bransa.