Vikan - 18.04.1985, Page 6
Frumskógur
í stofunni
Texti og myndir: Þórey
Þaö lifir í okkur öllum þrá eftir samvistum við náttúruna. Jafnvel
í gráma borganna hafa menn ræktaö fegurstu blómagarða og
þannig notiö enduróms frá hinni horfnu paradis. Þeir sem engan
O Bjart sólskin 3 Hálfskuggi • Skuggi
garðinn geta ræktaö eru oft meö nokkra blómasterti á svala-
borum. En allir sem vilja geta ræktað blóm og plöntur innanhúss
og skapað sér fegurstu gróöurreiti hvernig sem háttar til úti og
hvernig sem viörar.
Þaö eru á sveimi ýmsar þjóðsögur um hæfni manna til þess aö
annast plöntur. Talaö er um aö sumir hafi „græna fingur" en aðrir
fullyrða að þeir geti hreint ekki ræktað blóm. En hér, eins og svo
víða, á það við að viljinn er allt sem þarf — eða næstum því.
Þeir sem taldir eru hafa græna fingur og allt grær hjá hugsa
venjulega vel um blómin sín. Eins og allt sem lifir þurfa plönturnar
umhyggju. Sérhver planta þarf sérstaka meðferð. Í þvi sambandi
þarf að hyggja að þrennu: birtu, vökvun og næringu og hitastigi.
Það er alls staðar hægt að láta blóm þrífast, svo fremi sem ein-
hverjir gluggar eru á vistarverunni. Siðan þarf að kynna sér hve
mikla birtu og vökvun hver planta þarfnast. Þær upplýsingar má fá
í blómaverslunum eða í bókum og blöðum. Að fengnum
nauðsynlegum upplýsingum er bara að þreifa sig áfram.
Sumar plöntur eru auðveldari viðfangs en aðrar og rétt að halda
sig við þær ef menn eru byrjendur í blómarækt, ef aðstæður í
íbúðinni eru ekki sem bestar eða ef tími og áhugi á miklu dútli við
blómin er af skornum skammti.
Birtan í íbúðinni
Grunnmynd af íbúð. Táknin sýna birtustigið á ýmsum
stöðum í íbúðinni.
6 ViKan 16. tbl.