Vikan - 22.08.1985, Page 5
JJ
Hér er annar hluti kynningar
á keppendum um titilinn
sólarstjarna Úrvals og stjarna
Hollywood. Eins og lesend-
um er kunnugt er til mikils
að vinna. Sú fyrrnefnda fær
Ibizaferð en sú síðarnefnda
fær hvorki meira né minna
en bíl: Daihatsu Charade
Turbo.
Margrét
Guðmundsdóttir
Margrét er Reykvíkingur, 19
ára. Hún er 174 sm á hæð. Hún
er í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti, á uppeldissviði félags- og
íþróttabrautar. Að því loknu
kemur margt til greina en núna
dreymir hana um að verða arkí-
tekt.
Hún er mikið fyrir íþróttir og
spilaði til skamms tíma hand-
bolta, var komin í meistaraflokk
í Víkingi. Hún hjólar mikið og
skreppur stundum á skíði —
hana langar líka að læra golf.
Þegar hún slappar af heima lítur
hún í tímaritin og hlustar á
blues og soul og velur sér helst
gamaldags ævintýramyndir fyrir
vídeóið. Hún hefur yndi af
ferðalögum, bæði heima og
erlendis, og ætlar að vera á
ferðalagi x allt sumar.
Snyrting: Jóna Hallgrimsdóttir, Snyrtistofu
Jónu.
Hárgreiðsla: Brósi.
34. tbl. Víkan s