Vikan - 22.08.1985, Síða 11
Marilyn Monroe á ristinni ð jðrn-
brautarstöðinni sem er eitt al-
frægasta atriðið sem hún kom
fram í. Það þarf kjark til að leika
það eftir.
Theresa Russell.
Enn ein
reynir við Monroe
Margar leikkonur hafa reynt
aö leika hina ódauðlegu, ljós-
hærðu feguröardís, Marilyn
Monroe, og mistekist því vitan-
lega getur engin leikkona,
hversu mikið sem hún líkist
Monroe, leikið hana svo vel sé,
því hún var einstök.
Leikkonan Theresa Russell
var þó til í að reyna. I mynd-
inni Insignificance (sem kalla
má Léttvægi), sem var ein um-
deildasta myndin á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í ár,
leikur hún „leikkonuna” og
það fer ekkert á milli mála
hver það á að vera. Hún segir:
„Ég reyni ekki að skapa ein-
hverja skrípamynd af Marilyn
Monroe. Það er ekki hægt að
líkja eftir henni. Persónan er
aðeins tákn. Ég reyni að ná
fram persónu hennar í grund-
vallaratriðum.”
Og vitanlega voru menn ekki
sammála um hvernig til hefði
tekist. En Theresa Russell
hrærði þó upp í áhorfendum,
eða í það minnsta kosti karl-
kyns gagnrýnendum, sumum
hverjum. Einn kallaði hana
sambland af engli og hóru og
hún hefur verið útnefnd ein
efnilegasta dúndurgellan á
hvíta tjaldinu um þessar
mundir.
Theresa Russell býr með
leikstjóranum Nick Roeg, sem
leikstýrði Insignificance, og á
með honum barn. Hún er að
sögn leiftrandi hamingjusöm
og ekki frá því að samband
þeirra geti varað að eilífu. „Að
elskast, borða og leika, það er
það þrennt sem mér þykir
skemmtilegast í lífinu.”
Nokkur ráð
til að
forðast
bakverk
1. Reynið ekki að
lyfta neinu sem er tví-
mælalaust of þungt
fyrir ykkur. Hugsið
um vesalings hrygg-
inn.
2. Ef þið þurfið að
taka upp eitthvað
þungt beygið þá hnén
og reynið að halda
bakinu beinu.
3. Snúið ykkur aldrei
við um leið og þið lyft-
ið einhverju upp.
4. Sitjið alltaf bein.
Aö sitja hokinn veldur
spennu á liði og lið-
bönd. Gætið þess sér-
staklega að vinnustól-
ar veiti góðan stuðn-
ing — og kvartið ef
svo er ekki.
5. Þegar þið gangið
skuluö þið lyfta brjóst-
kassanum og ímynda
ykkur að þið séuð að
reyna að ná til himna
með kollinum.
6. Vandið valið á
rúmdýnum. Ef dýnan
er sigin í miðju getur
það beinlínis valdiö
bakverk og of mjúkar
dýnur eru engum holl-
ar. Veljið hörðustu og
þægilegustu dýnuna
sem þið hafið efni á.
7. Reynið að koma
því svo fyrir heima að
öll vinnuborð og ann-
að sem þið vinnið við
sé í eðlilegri hæð svo
þið þurfið ekki að
bogra eöa teygja ykk-
ur.
■------------------
34- tbl. Vikan 11