Vikan - 22.08.1985, Page 25
Eldhús Vikunnar
Fimm verðlaun fyrir
bestu uppskriftirnar
Skilafrestur til 15. september
Um þessar mundir efnir Vikan til verðlaunasamkeppni meðal lesenda
sinna um bestu uppskriftir að skyndiréttum. Veitt verða fimm verðlaun.
Fyrstu verðlaun eru örbylgjuofn frá Einari Farestveit & Co hf. og einnig
veitum við 1000 króna verðlaun fyrir fjórar uppskriftir að auki. Vikan
áskilur sér rétt til að birta innsendar uppskriftir þótt þær fái ekki verð-
laun og verða greidd höfundarlaun fyrir birtingu á uppskrift.
Hvernig á rétturinn að vera?
Við útilokum enga rétti en við teljum helstu skilyrðin vera: Fljótleg
matreiðsla, hráefnin fáist hérlendis á viðráðanlegu verði, hægur vandi
sé að gefa réttinum lystugt útlit og aö hann hafi viðunandi næringar-
gildi.
Þátttaka
Allir áhugamenn mega taka þátt í verðlaunasamkeppninni og má
hver senda eina uppskrift. Best væri að fá uppskrift vélritaða á eitt blað
ásamt nafni, heimilisfangi og síma. Ljósmynd þarf ekki að fylgja.
Sendið uppskrift ykkar og merkið hana:
Skotheldir skyndiréttir
Vikan
Siðumúla 33
105 Reykjavik.
Léttur og fljótlegur aðalréttur, tilvalið snarl og fer vel á veislu-
borði.
Full máltíö fyrir fjóra meö brauði,
snarl fyrir 6—8. Matreiðslutíminn
eftir aö eggin hafa verið soöin og
kæld og rækjurnar þíddar er um 5—
10 mínútur.
1 hvítkálshöfuð (notið nýtt, íslenskt
hvítkál á meðan það fæst) eða ísberg-
salat
3 tómatar
1/3 úr gúrku
100 g rækj'ur
100 g skinka
2egg
Skerið káliö smátt (eða rífið salat-
ið). Skerið tómatana og eggin í sex
báta. Rífið skinkuna eða skerið
smátt. Skerið gúrkuna í sneiöar og
síðan hverja sneið í fernt. Blandið
öllu í salatskál í 2—3 lögum. Hafið
rækjur efst til skrauts. Berið fram
með salatsósu og góðu, grófu brauði.
Grænmetissalat
með rækjum og skinku
Sósa:
1 /3 majónes
1/3 Seafood Cocktail Sauce
1/3 sýrðurrjómi
Öllu blandað vel saman.
34* tbl. Vikan 25