Vikan - 22.08.1985, Síða 27
minna en fulla athygli og aö vera
númer eitt. Ef þau finna sér heppi-
legan maka sem sættir sig viö
þetta veröur hjónaband þeirra
sérlega hamingjusamt, einkum ef
þau gæta þess að gefa jafnmikið
og þau kref jast í ást og athygli.
Heilsufarið
Tilfinningarnar og einstakt
næmi eru helstu áhrifavaldar í
heilsufari fólks þessa dags. Það
fær líkamleg einkenni við andlegt
álag og hættir til að vera veikt
fyrir í maga. Það ætti aö gæta
þess að magasýrurnar séu í sæmi-
legu lagi.
24.
ÁGÚST
Skapferlið
Styrkur afmælisbarna þessa
dags er fjölhæfni, viðskiptavit og
sérlega þroskuö dómgreind. Þau
hafa hárfínan smekk og eru af-
skaplega nákvæm. Þau eiga létt
með að tjá sig og þar af leiðandi
létt með að eignast vini og kunn-
ingja, eru heiðarleg í eöli sínu og
vönd aö viröingu sinni og kemur
það fram í vinavali og framkomu.
Lífsstarfið
Fólk dagsins hefur ágætt
viðskiptavit og fer oft í störf þar
sem það nýtist vel. Það hefur
stundum listgáfu, einkum á sviði
tónlistar þar sem nákvæmni þess
og fjölhæfni nýtist hvað best. Það
nær yfirleitt góöu valdi á því sem
það tekur sér fyrir hendur en ætti
þó að varast störf sem því eru ekki
að skapi.
Ástalífið
Ástir afmælisbarna dagsins þró-
ast oft upp úr vináttu. Þau eru gef-
in fyrir að eiga trausta og góða
vini sem eru hlýlegir í viömóti og
á þeim grunni lætur þeim best að
eignast ástvini. Þau hafa ekki
áhuga á mikilli tilbreytni í ástum,
sækjast frekar eftir festu, og þeg-
ar sú festa er fengin er eins og þau
öðlist kjark og áhuga á tilbreyt-
ingu í daglega lífinu. I góðu hjóna-
bandi geta þau vel hugsað sér að
flækjast milli landa eða staða og
reyna eitthvað nýtt og framandi.
Heilsufarið
Eina heilsufarsvandamálið,
sem afmælisbörn þessa daga eiga
að jafnaði við aö glíma, er aö þau
eru veik fyrir álagi og gjörn á að
taka meira að sér en líkami þeirra
og andlegur kraftur þolir. Þetta
getur í versta falli orðið svo slæmt
aö góð hvíld einu sinni um ævina
að minnsta kosti geri kraftaverk.
25.
ÁGÚST
Skapferlið
Afmælisbörn þessa dags eru
fædd á mörkum tveggja mjög
skapríkra merkja og einþykkni er
þeim í blóð borin. Þau hafa kraft
og kjark til að gera nánast hvað
sem er en láta skynsemina yfir-
leitt hafa yfirhöndina yfir ævin-
týraþránni. Þau eru afkastamikil
og uppskera oft ríkulega vegna
þess að þau hafa mikil áhrif á um-
hverfi sitt og það er þeim sérlega
ljúft. Þau geta verið nokkuö dóm-
hörð og miskunnarlaus á köflum.
Lífsstarfið
Oftar en ekki kjósa afmælisbörn
dagsins að ganga menntaveginn
standi hann þeim opinn. Þau eru
gefin fyrir viröingu og velja sér oft
starf er býöur upp á slíkt, emb-
ættisstörf, viö menningarmál
eða þar sem virðing, auður og völd
mætast, sé það mögulegt. Þau
koma vel fyrir, eru alls staöar
mjög frambærileg og leggja tals-
vert á sig til að njóta álits út á viö.
Angi af þessari tilhneigingu kem-
ur fram ef afmælisbörn dagsins
velja sér kennslu sem lífsstarf, þá
er þeim gjarnara að leika hinn al-
vitra fræðara en að fá nemendur
til að vinna í hópstarfi.
Ástalífið
Fólk dagsins er mjög gætið í ást-
um sem öðru. Það myndi aldrei
bindast neinum nema að vandlega
hugsuðu máli og þá velta fyrir sér
stétt og stöðu og framkomu ást-
vinarins meir en margur annar.
Inni brenna þó heitar tilfinningar
og þaö kann aö elska heitt og gildir
það jafnt í vináttu, venslum og
ástum.
Heilsufarið
Yfirleitt er fólk dagsins heilsu-
gott og sýnir sömu skynsemi í
varðveislu heilsunnar og öðru.
Helst getur háð því aö þaö er við-
kvæmt fyrir umtali og nokkuð spé-
hrætt, jafnvel svo aö taugarnar
gjaldi fyrir.
26.
ÁGÚST
Skapferlið
Mótsagnir og f jölþættir hæfileik-
ar togast á um afmælisbörn dags-
ins. Oftast eru þau rólynd og
íhugul en í þeim er þó til harka og
nokkuð sviptingakenndur hugur.
Stundum geta brennandi hugsjón-
ir dregið þau ansi langt frá mörk-
um skynseminnar en góðlyndi,
vinátta og hollusta við réttlætið
valda því oftast að þau rata
nokkuð vel færa leiö ef þau hella
sér út í trú á ákveðinn málstað.
Þau eru starfsöm og dugleg og
hafa gaman af að hafa nóg fyrir
stafni. Þau eru oft talsvert
menningarleg í umgengni.
Lifsstarfið
Fólki dagsins lætur vel að fást
við kennslu, leiðsögn eða jafnvel
aö predika og það velur sér oft
starf þar sem þaö á kost á því. Það
aflar sér oft menntunar og og fjöl-
hæfni þess nýtur sín og mótsagn-
irnar koma ekki svo aö sök. Það
fer líka stundum út á listabrautina
en hún getur orðið því erfið.
Ástalífið
Mótsagnirnar koma fram í ásta-
lífinu eins og öðru hjá fólki dags-
ins. Ef það kynnist ekki hinum
rétta eða hinni réttu snemma á
ævinni getur hjónaband komiö
mjög seint á ævinni eða alls ekki.
Það leitar að andstæðu sinni í
skapgerð og slík hjónabönd verða
aldrei vandamálalaus. Hins vegar
á fólk dagsins mikiö að gefa og ró-
legu þættirnir í skapgerð þess
stuðla aö því að hjónaband þess
geti orðið mjög traust þrátt fyrir
ólík sjónarmið innan þess.
Heilsufarið
Afmælisbarn dagsins nýtur
góðrar heilsu mestan hluta ævinn-
ar. Mataræðið verður þó að vera
undir smásjánni, meltingarfærin
eru oft veik fyrir og þola ekki mik-
ið álag.
27.
ÁGÚST
Skapferlið
Oft fá afmælisbörn þessa dags
það orð á sig að þau séu kaldlynd
og skaphörð. Það er nokkuð til í
því oft á tíðum. Þau eru mjög ná-
kvæm í eðli sínu og ekkert sérlega
umburðarlynd, gera miklar^cröf-
ur til sjálfra sín og annarra og
standa alltaf fast á sínu. Þau eru
mjög skapmikil undir niðri og þaö
getur blossað upp þegar minnst
varir.
Lífsstarfið
Fólk þessa dags lendir í ýmsum
störfum. Því hentar ekki vel aö
vera í störfum þar sem mannleg
samskipti eru viökvæm og ætti
frekar að velja sér störf þar sem
góöir eiginleikar þess njóta sín
best, þar sem einbeitni, atorku og
viljafestu er þörf.
Ástalífið
í ástum kemur skapgerð af-
mælisbarna dagsins þeim bæði aö
gagni og getur orðið til trafala.
Það eru litlar líkur á aö þau endi
með maka sem á illa viö þau. Þau
geta oft náð í þá sem þau vilja fá
og linna ekki látunum fyrr en þau
fá það sem þau vilja í ástum sem
öðru. Hins vegar veröa þau aö
gæta þess að vera nógu tilfinn-
ingaheit og ástrík við maka sinn.
Heilsufarið
Heilsufar fólks dagsins er að
jafnaði mjög traust eins og annaö í
fari þess en skapferliö getur þú
reynt á höfuöið og einnig þolir þaö
illa sveiflur í veöurfari og getur
jafnvel fengið háan hita af litlu til-
efni.
28.
ÁGÚST
Reglusemi, iðni og nákvæmni
eru helstu kostir afmælisbarna
dagsins. Þau eru afskaplega þrifin
og hreinleg í öllu sínu og þola illa
alla óreiðu. Þau hafa talsveröa
hæfileika til að vinna nákvæmnis-
verk sem öðrum reynast erfið og
una því vel að lúra yfir smáat-
riðum sem aðrir nenna ekki eöa
geta ekki fundið neitt út úr.
Lífsstarfið
Stjórnunarstörf, vísindi, versl-
unarstörf í þágu hins opinbera,
einkum í skrifstofubákni, láta fólki
dagsins best. Það getur náö langt
á mörgum sviðum og þar sem
stundum gætir nokkurrar vand-
fýsi og alvöru í starfsvali þess er
ekki óalgengt að það fari út í
guðfræði eða önnur trúarleg
vísindi.
Ástalífið
Varkárni í ástamálum einkenn-
ir afmælisbörn dagsins. Þau þora
sjaldan að láta tilfinningar sínar
uppi fyrr en þau eru alveg viss um
tilfinningar þess sem þeim er kær.
Stundum getur þetta orðið til þess
aö bið verði á að þau festi ráö sitt
eða geri það jafnvel ekki.
Heilsufarið
Þótt afmælisbörn dagsins séu
yfirleitt yfirmáta skynsöm þá ber
það við að þau geti orðið ansi rell-
in og óraunsæ þegar komiö er aö
heilsunni. Þau eru sótthrædd og
vorkenna sér talsvert er þau fá
smákvilla.
34. tbl. Vikan 27