Vikan - 22.08.1985, Síða 31
Hér kemur svo stigagjöfin:
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
♦ b c b c c c b c a b c Cá a a b
* a a a-c b a a c a b-c a a b b b c
A c b a b b a b - c b c c c a
Gerðu hring utan um þau svör
sem eiga við þig og sjáðu hvaða lit
þú færð oftast. Þá sérðu hver er
ríkjandi þáttur þinn í ástar-
málum. Tígull merkir ást veitta af
örlæti, lauf er kröfuhörð ást og í
spaðanum er blanda af hvoru
tveggja.
TIGULL
Hin fullvaxta ást, jákvæð, veitt
af örlæti í samskiptum þínum við
hitt kynið, hún getur blómgast í
ró, trausti og jafnrétti, þróast og
þroskast. Það skiptir þig miklu
máli að geta gefið og þú kannt líka
að þiggja. Þú vilt elska og vera
elskaður (elskuð) með virðingu og
blíðu. Þú veltir sífellt fyrir þér
einlægni eigin tilfinninga. Þú
hafnar lygi og yfirborðsmennsku í
ástarsamböndum þínum og telur
aö slíkt geti skemmt þau. Þú vilt
hreinskilni og heiðarleik, hreinar
línur. Þú ert vitanlega að leita að
manneskju með svipaöa lífssýn og
þú sjálf(ur). Ef þú lendir á ein-
hverjum ráðríkum og afbrýðisöm-
um er vitaö mál að þaö verður
aldrei gott samband.
LAUF
I upphafi ástarsambands
hefurðu tilhneigingu til að horfa
á ástvin þinn gegnum rósrauð
gleraugu. Þú sérð allt í fari hans
(hennar) sem þér finnst göfugast
og best í mannlegu eðli. Það
merkir að samband ykkar er
byggt á fölskum grunni og getur
einn góðan veðurdag hrunið og
brotnað í þúsund mola. Þú ert tor-
tryggin(n) og afbrýðisamur(-
söm) að eðlisfari og hefur tilhneig-
ingu til að reyna að geyma fólk,
sem þér er kært, í búri, þér er
umhugað að vera alltaf
miðpunktur athyglinnar. Þú
myndir aldrei sætta þig við að
vera skilin(n) eftir þegar þinn eða
þín heittelskaða ætlaöi út á
kappleik eða í saumaklúbb með
vinunum. En fólk með þetta skap-
ferli á yfirleitt jafnmikið af
erfiðum stundum i sambúð og
gleðistundum. Og því hlýtur það
að spyrja sjálft sig: Er það þess
virði? Hvers vegna að vera að
gera ástarsamband að sársauka-
fullri baráttu — ástin ætti að vera
að gefa og þiggja — eitthvað gott
og ánægjulegt. Þeir sem teljast til
þessa hóps ættu að doka við og
hugsa sinn gang, ræöa við ást-
vininn, athuga hverjir ásteyting-
arsteinarnir eru í sambandinu.
Einlægni og traust eru grund-
vallaratriði ef samband á aö geta
orðið varanlegt óg gott.
SPAÐI
Ölík öfl togast á í þér. Þú vilt
sjálf(ur) njóta frelsis en þolir ást-
vini þínum ekki það sama. Þetta
getur táknað að þú sért á þroska-
skeiði, frá vanþroska og barna-
legri ást í fyllri og þroskaðri, og
þess vegna séu þessar mótsagnir í
hugsun þinni og framkomu.
Einnig gæti hugsast að ást-
vinurinn orsakaði þessar mót-
sagnir sem væri að fara í gegnum
þetta breytingaskeið eða að ýta
þér í gegnum það. Svo gæti hugs-
ast að þú værir á varðbergi
gagnvart ástinni. Það gæti verið
að þú værir uggandi yfir því að
horfast í augu við að vera í föstu
sambandi en ef þú ert orðin(n)
ástfangin(n) á annað borð er
engin ástæða til aö óttast til-
finningar sínar. Slakaðu á og
mundu: Ástin er eðlilegur hluti
tilverunnar.
34. tbl. Vikan 31