Vikan


Vikan - 22.08.1985, Page 38

Vikan - 22.08.1985, Page 38
„Má ég geyma tyggjóifl mitt á borflplötunni meflan vifl spjöllum?" Hvernig komast hjá því að hreppa * Mæta meö foreldrana í viðtal við starfsmannastjórann. * Mæta í stuttu pilsi (gæti gengið ef þú ert kvenmaður) með pönkaraklippingu og glanna- lega máluð (málaður). * Gleyma að fleygja tyggjó- inu þínu þegar þú mætir í viðtal við starfsmannastjórann og muna það svo (enn betra) og pakka því frekjulega inn í efsta blaðið á minnisblokk hans (æskilegt að það sé útkrotað í símanúmerum). * Svara kæruleysislega ef þú ert spurð(ur) um hvað þú vélritir mörg atkvæöi á mínútu: „Með hvað mörgum puttum mein- arðu?” * Segja að þú þolir enga áreitni í vinnunni og hafir kært fyrir jafnréttisráði síðast þegar yfir- maðurinn bauö þér út aö borða (gildir fyrir bæði kynin). * Spyrja hvort þú getir geymt mótorhjólið þitt inni á gangi. * Byrja samtal við starfsmanna- stjórann með vinsamlegum ábendingum um hvernig heppi- legt væri að innrétta skrifstof- una hans upp á nýtt. ★ Spyrja hvort innlögn á geðveikrahæli sé talin til veik- indadaga eða hvort semja þurfi sérstaklega um hvert skipti. ★ Viðurkenna að þú viljir heldur vinna með fólki af gagnstæöu kyni því að það sé svo miklu þægilegra í umgengni. ★ Hreykja þér af kostum sem hafa ekkert með væntanlegt starf þitt að gera, eins og þú sért einstaklega laghentur í meðferð prímusa, syndir eins og selur og hafir unnið sam- keppni um ódýran og ljúffeng- an hversdagsmat. ★ Spyrja starfsmannastjórann hvort hann sé giftur. ★ Tala illa um fyrirtækiö sem þú vannst hjá áður, yfirmennirnir óþolandi, fyrirtækið illa rekið, starfsfólkið sóðalegt. . . ★ Útskýra fjálglega erfiöleikana sem þú átt í við aö komast í vinnuna, þurfir að taka langar leiðir í strætó, taka skiptimiða og fara svo í öðrum vagni og ganga langar leiðir, en fullyrða jafnframt að þaö sé lítil hætta á að þú mætir seint nema kannski á veturna þegar veðrið er verst og strætóarnir ganga stundum skrykkjótt. ★ Spyrja hvort þeir gefi launin þín upp til skatts. ★ Ræða um starfsframa þann sem þú stefnir á: deildarstjóri innan árs, aðstoðarforstjóri innan fimm ára. ★ Muna að nota tækifærið ef þér er boöið kaffi að nefna það að kaffi sé þaö eina sem geti vakið þig á þessum óguölega tíma, klukkan tíu að morgni. ★ Spyrja hvað þaö taki langan tíma að komast inn í veikinda- dagakerfið því að þú þurfir að losa þig við gallblöðruna fljót- lega. ★ Spyrja hvort fyrirtækiö borgi skaðann ef þú rífur sokka- buxurnar þínar eða leðurbræk- urnar á skrifboröshorni. ★ Gera tilvonandi vinnuveitanda þínum ljóst að þú hefur ekki hugmynd um viö hvað fyrir- skal starf tækiö fæst, með því til dæmis að segja: „Já, þú ert í svona alþjóðlegu veseni er þaö ekki?” * Reyna að selja starfsmanna- stjóranum sumarbústað á Mæjorka, líftryggingu, Seikó- úr, hnífasett eða svipað — mjög ódýrt! * Taka fram að þú hafir ofnæmi fyrir sígarettureyk, kalki- pappír og vélritunarborðum og læknirinn segi að þú megir ekki vinna viö ljósritunarvélina því að græna ljósiö fari illa með augun í þér. * Kvarta undan því að þú hafir verið stórlega vanmetin(n) í síðasta starfi sem þú varst í. * Vera með vasadiskó í gangi allan tímann á meðan á viðtali við starfsmannastjóra stendur. * Spyrja hvort þú megir ekki hafa hvolpinn þinn með í vinn- una, að minnsta kosti þangað til þú sért búinn að venja hann við að vera inni og gera stykkin sín á réttan stað, því aö annars eyðileggi hann íbúðina heim hjá þér. 38 Vikan 34- tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.