Vikan - 22.08.1985, Blaðsíða 38
„Má ég geyma tyggjóifl mitt á borflplötunni meflan vifl spjöllum?"
Hvernig komast
hjá því að hreppa
* Mæta meö foreldrana í viðtal
við starfsmannastjórann.
* Mæta í stuttu pilsi (gæti gengið
ef þú ert kvenmaður) með
pönkaraklippingu og glanna-
lega máluð (málaður).
* Gleyma að fleygja tyggjó-
inu þínu þegar þú mætir í viðtal
við starfsmannastjórann og
muna það svo (enn betra) og
pakka því frekjulega inn í efsta
blaðið á minnisblokk hans
(æskilegt að það sé útkrotað í
símanúmerum).
* Svara kæruleysislega ef þú ert
spurð(ur) um hvað þú vélritir
mörg atkvæöi á mínútu: „Með
hvað mörgum puttum mein-
arðu?”
* Segja að þú þolir enga áreitni í
vinnunni og hafir kært fyrir
jafnréttisráði síðast þegar yfir-
maðurinn bauö þér út aö borða
(gildir fyrir bæði kynin).
* Spyrja hvort þú getir geymt
mótorhjólið þitt inni á gangi.
* Byrja samtal við starfsmanna-
stjórann með vinsamlegum
ábendingum um hvernig heppi-
legt væri að innrétta skrifstof-
una hans upp á nýtt.
★ Spyrja hvort innlögn á
geðveikrahæli sé talin til veik-
indadaga eða hvort semja þurfi
sérstaklega um hvert skipti.
★ Viðurkenna að þú viljir heldur
vinna með fólki af gagnstæöu
kyni því að það sé svo miklu
þægilegra í umgengni.
★ Hreykja þér af kostum sem
hafa ekkert með væntanlegt
starf þitt að gera, eins og þú
sért einstaklega laghentur í
meðferð prímusa, syndir eins
og selur og hafir unnið sam-
keppni um ódýran og ljúffeng-
an hversdagsmat.
★ Spyrja starfsmannastjórann
hvort hann sé giftur.
★ Tala illa um fyrirtækiö sem þú
vannst hjá áður, yfirmennirnir
óþolandi, fyrirtækið illa rekið,
starfsfólkið sóðalegt. . .
★ Útskýra fjálglega erfiöleikana
sem þú átt í við aö komast í
vinnuna, þurfir að taka langar
leiðir í strætó, taka skiptimiða
og fara svo í öðrum vagni og
ganga langar leiðir, en fullyrða
jafnframt að þaö sé lítil hætta á
að þú mætir seint nema
kannski á veturna þegar veðrið
er verst og strætóarnir ganga
stundum skrykkjótt.
★ Spyrja hvort þeir gefi launin
þín upp til skatts.
★ Ræða um starfsframa þann
sem þú stefnir á: deildarstjóri
innan árs, aðstoðarforstjóri
innan fimm ára.
★ Muna að nota tækifærið ef þér
er boöið kaffi að nefna það
að kaffi sé þaö eina sem geti
vakið þig á þessum óguölega
tíma, klukkan tíu að morgni.
★ Spyrja hvað þaö taki langan
tíma að komast inn í veikinda-
dagakerfið því að þú þurfir að
losa þig við gallblöðruna fljót-
lega.
★ Spyrja hvort fyrirtækiö borgi
skaðann ef þú rífur sokka-
buxurnar þínar eða leðurbræk-
urnar á skrifboröshorni.
★ Gera tilvonandi vinnuveitanda
þínum ljóst að þú hefur ekki
hugmynd um viö hvað fyrir-
skal
starf
tækiö fæst, með því til dæmis
að segja: „Já, þú ert í svona
alþjóðlegu veseni er þaö
ekki?”
* Reyna að selja starfsmanna-
stjóranum sumarbústað á
Mæjorka, líftryggingu, Seikó-
úr, hnífasett eða svipað —
mjög ódýrt!
* Taka fram að þú hafir ofnæmi
fyrir sígarettureyk, kalki-
pappír og vélritunarborðum og
læknirinn segi að þú megir ekki
vinna viö ljósritunarvélina því
að græna ljósiö fari illa með
augun í þér.
* Kvarta undan því að þú hafir
verið stórlega vanmetin(n) í
síðasta starfi sem þú varst í.
* Vera með vasadiskó í gangi
allan tímann á meðan á viðtali
við starfsmannastjóra stendur.
* Spyrja hvort þú megir ekki
hafa hvolpinn þinn með í vinn-
una, að minnsta kosti þangað
til þú sért búinn að venja hann
við að vera inni og gera stykkin
sín á réttan stað, því aö annars
eyðileggi hann íbúðina heim
hjá þér.
38 Vikan 34- tbl.