Vikan - 22.08.1985, Blaðsíða 52
Skot sru alvörulaus, þeim fylgir ekkert vesan og eru algjörlega nauösynleg, segja breskir sér-
frœðingar.
Hversu oft eöa hve mikið einhver
verður skotinn fer ekkert eftir því
hve gott og innilegt samband hans er
við maka hans eða einhvern þriðja
aðila, nema ástin sé svo ofboðslega
heit að allar aðrar manneskjur blikni
við hlið þess eða þeirrar heitt-
elskuðu. Sömuleiðis er enginn vandi
að verða skotinn í manneskju sem
manni myndi aldrei láta sér detta í
hug að vera með, hvað þá giftast.
Dúddi, sem vinnur í gjaldeyrisaf-
greiðslunni í bankanum sem Bogga
vinnur í, er í rauninni glataður gæi
að hennar mati, í svartri skyrtu, frá-
hnepptri niður á maga með bringu-
hárin upp úr og ömurlega gull-
keðju um hálsinn. En hann hefur
æðisleg augu og þegar hann horfir á
hana yfir afgreiðsluborðið þá kiknar
hún í hnjáliðunum og sendir honum
sitt fegursta bros.
Þegar rauða kollinn á Lóu Jóns
ber við blikandi tölvuskjáinn fer allt-
af fiðringur um Sigtrygg í tjóna-
deildinni, þó að hann sé
hamingjusamlega giftur þriggja
barna faðir.
Bresku sérfræðingarnir fullyrða
að allir geti lent í þessu — meira að
segja eigi Margaret Thatcher leynd-
armál sem hún hafi ekkert verið að
segja Denis frá. Og þetta læknast
Það er hollt
að verða skotinn
Flestir hafa sjálfsagt einhvern
tíma orðið skotnir í einhverjum eða
einhverri. Að vera skotinn þýðir að
maður fær hraðari hjartslátt við að
sjá þann sem hrifningin beinist að og
sá hinn sami virðist merkilegri og
meira aðlaðandi en allir aðrir þá
stundina. Skot eru alvörulaus, rista
grunnt, þeim fylgir ekkert vesen og
þau eru algjörlega nauðsynleg,
segja breskir sérfræðingar í svona
málum. Skot eru ekki einnar nætur
ævintýri, framhjáhald, ástar-
ævintýri eða djúp vinátta. Skot getur
hugsanlega breyst í eitthvað annað
og meira en slík tilfelli eru ekki til
umræðu. Skot er til dæmis það þeg-
ar strætóbílstjórinn á leið fimm
verður á gráum rigningarmorgnum
eins og goðum líkur kvikmynda-
leikari við stýrið og stelpan í
sjoppunni á horninu kitlandi ásjáleg.
Bíllinn er oftar skilinn eftir heima en
áður og sjoppuferðum fjölgar.
víst ekkert með aldrinum. Menn út-
skrifast víst ekki frá þessu um leið
og 9. bekk lýkur. Bresku sér-
fræðingarnir segja að ef einhver telji
að það eigi að vera aldursmörk á
þessu þá ætti sá hinn sami bara að
fara að pakka saman og drífa sig í
kör. Þroski og aldur eigi ekki að
hindra fólk í að njóta þess sem lífið
hefur upp á að bjóða og gera sér sak-
laust gaman. Skotin eru ekkert
annað en það.
52 Vikan 34. tbl.