Vikan - 09.01.1986, Síða 11
Prófessorar, prinsar
og prinsessur
Gleymnir prófessorar, fagrar
prinsessur og hugrakkir prinsar
eru góðkunningjar flestra læsra
Islendinga þó fæstir þekki slíkt
fólk persónulega. Kunnugleg
nöfn eins og Philip prins og
Henry Higgins prófessor hringja
einhverjum bjöllum í huga
manns, en hér er smáminnislisti
fyrir þá sem vilja ekki láta
hanka sig á einföldum smáatrið-
um:
Prófessor
Henry Higgins
Sérfræðingur í hljóðfræði sem
kenndi blómasölustúlkunni
Elísu Doolittle að hegða sér eins
og hefðarmær. Kom fyrst fyrir í
leikriti George Bernard Shaw,
Pygmalion, og síðan í söngleik
Lerner Og Lowe, My Fair Lady.
Eftir söngleiknum var gerð
kvikmynd (1964) með Rex:
Harrison í hlutverki prófessors-
ins.
Prófessor
Ludwig von Drake
Skoskur ættingi Andrésar
andar og Jóakims aöalandar.
Hann er afskaplega gleyminn að
prófessorasið. Sló í gegn í kvik-
mynd Walt Disneys, Wonderful
World of Color (1961). Röddina
lagði Paul nokkur Frees honum
til.
Prófessor
Moriarty
Erkióvinur Sherlock Holmes.
Lesið sögurnar.
Prins Valiant
Myndasagnahetja, meintur
vikingur sem Hal Foster hefur
teiknað. Kom fyrst fram á
sjónarsviðið 13. febrúar 1937 og
var fastur gestur í Vikunni í mörg
ár (til 1980). Kvikmynd eftir
myndasögunni var gerð 1954
meö Robert Wagner í titilhlut-
verkinu. Viö prinsinn er ákveðin
' klipping kennd, stundum einnig
nefnd kommaklipping.
Philip prins
Ekki sá sem þið haldið og er
^ giftur Elísabetu Englands-
drottningu. Þessi Filippus er
prinsinn sem vakti Þyrnirós upp
af 100 ára svefninum. Hins vegar
hefur Filippus í Englandi
áreiðanlega komið nálægt
prinsessukossum í eina tíð. Rétt
er að geta þess að hvorugur
prinsanna heitir í höfuðið á hin-
um.
Litli prinsinn
Söguhetja frá annarri
stjörnu. Höfundur Antoine de
Saint-Exupery.
Karl Bretaprins
Prinsinn afWales.
Díana prinsessa
Kona hans. Fyrrum starfs-
stúlka á dagheimili, dóttir
Spencer jarls í Englandi.
Áróra prinsessa
öðru nafni Þyrnirós.
Prinsessan
á bauninni
Lygin prinsessa úr ævintýri
eftir H.C. Andersen.
Tveir brandarar
Jón forstjóri var að ná sér i
samloku i sjálfsalanum og þurfti
að fá hundraðkalli skipt. Hann
kom auga á Gunna sendil.
— Gunni, geturðu skipt fyrir
mig hundraðkalli í tikalla?
— Jessörl sagði Gunni.
— Hvað á þetta að þýða, svona
mannasiðirl Þú átt að kalla mig
tilhlýðilegum titlil Jæja, Gunnar,
geturðu skipt fyrir mig hundrað-
kalli?
— Nei, herra forstjóri.
— Ó, ó, ó, kveinaði Solli sæti
utan í konunni sinni.
— Ef þér væri eitthvað annt um
mig þá hefðirðu aldrei látið mig
giftast svona endemis kvenvargi.
ffíffl í&ðfl 1»
Vonlausar völvur (erlendar)
Það er gott að vera spá-
maður, sérstaklega eftir á. Nú
ætti að vera óhætt að spá fyrir
árið 1985 og það hefur raunar
verið gert. Gallinn var bara sá
að það var gert fyrirfram. Völva
Vikunnar stóð sig að vísu furðu
vel en spámenn allra landa féllu
á prófinu. Lítum á nokkra spá-
dóma þeirra fyrir árið 1985:
— Komið verður á 4 daga
vinnudegi, 32 stunda vinnuviku,
um allan hinn vestræna heim.
— Salerni sem framleiða líf-
rænan áburð verða komin á flest
heimili.
— Stjórn Bandaríkjanna þjóð-
nýtir allar bensínstöðvar.
— Bilar, sem ganga fyrir
alkóhóli, verða búnir að víkja
öðrum bílum af markaðnum.
Og loks einn réttur:
— Farþegi, sem ekki er vís-
indamaöur, fer í geimferð.
Vikan 2. tbl. 11