Vikan - 09.01.1986, Page 43
Samtvinnuð
orlog
KANE& ABEL
Leikstjóri: Buzz Kulik.
Aðalhlutverk: Peter Strauss, Sam
Neill og Veronica Hammel.
Sýningartimi: 5 klst. og 30 min. (3
spólur).
Kane & Abel er saga tveggja
einstaklinga sem alast upp á ólíkan
hátt. Atvikin haga því svo aö þeir
hittast og verða svarnir fjendur alla
ævi. Þeir fæddust sama dag. Albert
Rosnovski (Peter Strauss) fæöist í
Póllandi, laungetinn sonur aðals-
manns, elst upp í fátækt og veröur að
hafa fyrir lífinu. Pólland er hernum-
iö. Hann er tekinn til fanga og sendur
til Síberíu í fangabúðir. Abel getur
flúiö þaöan og fer sem innflytjandi til
Bandaríkjanna.
William Lowell Kane (Sam Neill)
er aftur á móti fæddur inn í ríka
bankafjölskyldu, með gullskeið í
munninum eins og sagt er. Framtíð
hans er ákveðin. Hann á að taka við
bankaveldi föður síns. Kane verður
til þess aö segja Aþel að þanki hans
geti ekki bjargað vinnuveitanda
hans í kreppunni miklu og fremur
vinnveitandinn sjálfsmorð. Þetta
verður til þess að Abel leggur mikið
hatur á Kane þótt í raun hafi Kane
verið meðmæltur fjárveitingunni.
Vegir þessara tveggja manna
liggja síöan saman á margan og
óvæntan máta og verður úr mikil ör-
lagasaga sem of langt mál væri að
segja frá hér.
Kane & Abel hefur flest það að
bjóða sem spennandi mínisería á að
vera gædd. Söguþráðurinn er spenn-
andi og þrátt fyrir mikla lengd
verður myndin aldrei langdregin.
Petar Strauss og Sam Neill eru góðir
í hlutverkum sínum, þótt Strauss
geri að mínu mati of mikið úr því aö
vera með erlendan hreim.
Kjaftfor lögga
THE BEVERLY HILLS COP
Leikstjóri: Martin Brest.
Aðalhlutverk: Eddie Murphy, Lisa
Eilbacker og Judge Reinhold.
Sýningartimi: 94 min.
Nýjasta stórstjarnan í kvikmynda-
heiminum, Eddie Murphy, fer á
kostum í The Beverly Hills Cop,
mynd sem bersýniiega er gerð til
þess að hann geti notið sín. Allt í
myndinni beinist að því aö hann njóti
sín sem best.
Eddie Murphy leikur löggu í
Detroit sem þrátt fyrir góðan
árangur í starfi skapar enn fleiri
vandamál fyrir yfirmenn sína en
hann leysir. Vinur hans frá Kali-
forníu kemur í heimsókn til hans og
er drepinn í dyragættinni hjá honum.
Axel Foley, en svo nefnist löggan,
tekur sér frí og fer til Kaliforníu,
nánar tiltekið Beverly Hills, til að
rannsaka dauða vinar síns.
Fljótlega kemst Foley í kast við
lögregluna í Beverly Hills sem lítt er
gefið um þennan ærslafulla lögreglu-
mann sem lítt fer eftir reglum og
fylgja honum alltaf tveir lögreglu-
menn sem Foley tekur fljótt í vina
tölu, lögreglumönnunum til lítillar
skemmtunar. Sannast að segja angr-
ar hann lögregluna það mikið aö það
á að vísa honum úr borginni. En lög-
reglumaðurinn, sem fengið hefur
það verkefni að fylgja Foley að
borgarmörkum, hefur vingast við
hann og gefur honum einn séns að
sanna mál sitt...
Eins og áður segir fer Eddie
Murphy á kostum í hlutverki sínu og
gaman er að fylgjast meö honum við
hinar ýmsu kringumstæður, hvort
sem er í samskiptum við gallharða
glæpamenn eða lögreglumenn sem
að vísu virðast nokkuö einfaldir. Það
má búast við að löggan í Beverly
Hills komi fram aftur í annarri
mynd, slíkar óhemjuvinsældir hefur
þessimyndhlotið.
Óperu- og kvik-
myndaform
sameinað
CARMEN
Leikstjóri: Francesco Rosi.
Aðalhlutverk Placido Domingo,
Julia Migenós-Johnson og Rugg-
ero Rammondi.
Sýningartimi: 126 min.
Það er erfitt verk að koma þekktri
óperu í kvikmyndaform svo bæði list-
formin fái að njóta sín. Þetta hefur
ítalska snillingnum Francesco Rosi
tekist í kvikmyndagerð sinni af óper-
unni Carmen. Allur sá innri kraftur
sem býr í óperunni og tónlistinni
kemst vel til skila. Um leið er
kvikmyndaformiö nýtt til fulls með
frábærri kvikmyndatöku og leik-
stjórn.
Það er óþarft verk að rekja efnis-
þráðinn hér, svo þekktur er sögu-
þráðurinn um verksmiöjustúlkuna
Carmen sem heillar liðþjálfa úr
hemum svo mikið að hann gefur allt
annað upp á bátinn, aðeins til að
verða fórnarlamb ástríöna sinna.
Það eru engir smásöngvarar sem
fara með aðalhlutverkin. Placido
Domingo og Julia Migenés-Johnson
fara með aðalhlutverkin. Enginn
efast um sönghæfileika þeirra. Þau
koma aftur á móti á óvart með
ágætum kvikmyndaleik þegar viö á.
Francesco Rosi, sem er einn mesti
snillingur ítalskrar kvikmyndagerð-
ar, þótt ekki sé hann eins frægur og
landar hans Fellini og Antonioni, er
ekki ókunnugur því að filma á Spáni
meö nautaat sem bakgrunn. Ein
besta mynd hans fjallar einmitt um
líf nautabana og var tekin á sömu
slóðum og Carmen er gerð.
Þaö er óhætt aö mæla með
Carmen, bæði fyrir óperuaödáendur
og kvikmyndaaödáendur.
Einn maður,
tvær persónur
JECKYL AND HYDE TOGETHER
AGAIN
Leikstjóri: Jerry Belson.
Aðalhlutverk: Mark Blankfield,
Bess Armstrong og Krista Errick-
son.
Sýningartimi: 87 min.
Nýlega var fjallað um gaman-
myndina The Nutty Professor í
þessum dálki. Þar lék Jerry Lewis
tvöfaldan persónuleika sem byggöur
var á skáldsagnapersónunni dr.
Jeckyl, öðru nafni mr. Hyde. Tókst
Jerry Lewis vel upp í hlutverkinu.
Ekki er hægt að segja þaö sama um
Mark Blankfield sem hér gerir til-
raun viö þessa frægu persónu í
Jeckyl and Hyde Together Again.
Þetta er ærslamynd.
Dr. Jeckyl er helsti skurölæknir við
sjúkrahús eitt. Hann tilkynnir að
hann muni hætta skurðlækningum og
snúa sér að tilraunastörfum. Þetta
kemur sér afar illa fyrir eiganda
sjúkrahússins sem einnig er tilvon-
andi tengdafaðir dr. Jeckyl. Hann
hefur nefnilega lofaö ríkasta manni
heims, Hubert Hows, aö skipta um
öll líffæri í honum og á dr. Jeckyl að
sjá um aögeröina.
Á tilraunastofu sinni tekur dr.
Jeckyl óvart lyf sem hann er að gera
tilraunir með og það er ekki að
sökum að spyrja, hann breytist á
augabragði í kynóðan, kókaínsjúkan
brjálæðing sem kallar sig Hyde.
Eftir nokkrar klukkustundir breytist
læknirinn aftur í sitt rétta líkams-
gervi. Hann er ákveðinn í að eyði-
leggja efniö en getur ekki aö því gert
að hann hafði nautn af öllu brjálæð-
inu. Fer svo að lokum að mr. Hyde
fær yfirhöndina.
Það er mikið um alls konar ærsla-
læti í myndinni en því miöur virka
þau ekki á mann eins og ætlast var til
og Mark Blankfield þarf að gera
betur ef hann á aö komast í hóp
þekktra gamanleikara.
Vikan 2. tbl. 43