Vikan - 09.01.1986, Side 56
u
Pósturinn
Á
Hækrakkar!
Hœ, hœ, krakkar!
Eigid þid plaköt med
Wham!, Duran Duran eda
Madonnu en langar meira
ad eiga plaköt med ein-
hverjum öðrum, til dtemis
Nenu, Nick Kershaw eða
Frankie Goes to Holly-
wood? Skrifiðþá og spyrjið
mig hvort ég eigi plaköt, til
dœmis með Paul Young (ef
ykkur langar til að eiga
plaköt með honum) og efég
á skal ég senda ykkur
plaköt með honum og þið
sendið mér jafnstórt plakat
með Whaml, Duran Duran
eða Madonnu. Þannig er
það nú.
Bless.
Lilja Bjarklind
Kjartansdóttir,
Hvolsvegi 30,
860 Hvolsvelli.
Fótbolta-
klúbbar
Þaö hefur nokkuð verið spurt
um utanáskrift aðdáendaklúbba
breskra fótboltaliða. Pósturinn
er bláfátækur af þessu og biður
lesendur að senda sér línu ef þeir
eiga heimilisföng í fórum sínum.
Snyrtifræðinámiö er nú mjög í
deiglunni og breytingar í vænd-
um. Þannig er að snyrtifræði
telst nú vera löggild iðngrein og
námið því iðnnám. Námiö mun
því taka fjögur ár og vera bæði
bóklegt og verklegt. Bóklegi
hlutinn fer fram í f jölbrautaskól-
um. Menntamálaráðuneytið á að
geta gefið nánari upplýsingar
um málið (sími 92-25000).
Auglýsingateiknun er listnám
og tekur fjögur ár. Nemendur
þurfa að þreyta inntökupróf inn í
Myndlista- og handíðaskólann.
Ef þeir standast það tekur við
tveggja ára almennt myndlist-
arnám sem allir stunda en síðan
tveggja ára sérnám í auglýs-
ingateiknun.
Atvinnumöguleikar í báðum
þessum greinum eru allgóðir.
Hvar fæ ég
pekinghund?
Kœri Póstur.
Mér datt í hug að athuga
hvort þú gœtir gefið mér
upplýsingar í máli sem
skiptir mig miklu. Eru
pekinghundar á íslandi?
Mig langar svo mikið í
þannig hund og ef þeir eru
til þá vildi ég gjarna vita
hvert ég get snúið mér til
að finnaþá.
Langar að
kynnast
honum en
hann
er langt í
burtu
Kœri Póstur.
Við erum hérna tvœr í
miklum erfiðleikum. Þann-
ig er mál með vexti að
önnur okkar er mjög feimin
og þorir ekki að tala við
stráka. Hvað getur hún
gert?
Svo er það þannig að við
erum báðar skotnar í strák
á Eiðum, en við erum á
Akranesi. Önnur okkar
þekkir hann svolítið, en
okkur langar báðar að
kynnast honum. Hvað
eigum við að gera?
Nokkrar spurningar:
1. Hvað kemur poppblaðið
Smellur út mörgum
sinnum á ári?
2. Er ekki hœgt að stœkka
Vikuna til að fleiri bréf
komist að ?
3. Hvað er hœgt að gera til
að bréfið verði örugglega
birt?
4. Hvenœr var hljómsveitin
Dire Straits stofnuð ?
5. Eigum við að senda bréf
til eins stráks sem á heima
hér ástaðnum?
Snyrtifræði
og auglýsinga-
teiknun
Hæ Póstur!
Mig langar til þess að fá
upplýsingar um snyrtinám
og auglýsingateiknun
(lengd náms, tekjur, at-
vinnumöguleika og svo
framvegis) og datt í hug
hvortþú gœtir hjálpað.
Asta.
Með fyrirfram þökk.
71552
Pósturinn hafði samband við
Hundaræktarfélag Islands og
fékk þær upplýsingar að eitt-
hvað væri til af peking- eða pek-
ingesehundum hér á landi en
sárafáir sem engir væru alveg
hreinræktaðir og ekki vitað til
þess að þeir hafi átt nein
afkvæmi undanfarin ár. En þó er
á skrá hjá ættbók hundavina-
félagsins ein pekingesetík og
upplýsingar um nafn hennar og
eiganda ættu að fást hjá ættbók-
inni, síma 99-1627.
Takk fyrir birtinguna.
Tvœr að austan.
Sú ykkar sem feimin er við
strákana verður að reyna að
herða upp hugann og hrista það
af sér. Hún verður að reyna að
byggja upp sjálfstraust sitt, læra
að meta persónuleika sinn, hæfi-
leika, framkomu og útlit. Hún
ætti að skoða sjálfa sig vel í
spegli, lyfta höfðinu hátt og
brosa. Þá verður henni ljóst að
hún er ekki vitund verri en aðrir
og hefur því ekki minnstu
ástæðu til að skammast sín fyrir
sjálfa sig og vera feimin. En
auðvitað gerist þetta ekki í hvelli
heldur smám saman. I 48. tbl.
Vikunnar 1985 (með Ladda á for-
síðunni) var ítarleg grein um
feimni sem þið ættuð báðar að
lesa.
Hvernig væri að biðja strákinn
á Eiðum að skrifast á við ykkur?
Það er allra besta leiðin til að
kynnast honum úr fjarlægð.
Síðan kemur hann kannski ein-
hvern tíma aftur heim í ykkar
bæ og þá.... En þið eruð tvær,
hann einn. Hvernig ætlið þið að
skipta honum á milli ykkar?
Pósturinn veit því miður ekk-
ert um poppblaðið Smell en
heldur að það hafi þegar komið
út tvisvar eða þrisvar. Þið ættuð
að kíkja í blaðið næst þegar þið
sjáið það. Það getur verið aö það
standi í blaðinu hve oft það á að
koma út eða í það minnsta hver
gefur það út og þá getið þiö bara
hringt þangað og spurt.
Það er þetta með Póstinn og
plássið. Vikan verður tæplega
stækkuð til að fá meira pláss
fyrir Póstinn en hitt er annað
mál hvort hægt er að fá meira
pláss í blaðinu. En er þetta ekki
bara alveg ágætt eins og það er?
Það er ekkert pottþétt ráð til
að fá bréf örugglega birt.
Pósturinn reynir að taka sem
flest mál fyrir og bréf sem
Pósturinn heldur að geti komiö
fleiri unglingum að gagni eru
gjarnan birt, einnig bréf sem eru
með aðkallandi vandamálum,
skemmtileg bréf, óvenjuleg bréf
og svo framvegis. Sem sagt eng-
ar stífar reglur og allir eiga
möguleika.
Pósturinn hefur leitað dyrum
og dyngjum að aðdáendaklúbbi
Dire Straits en ekki fundið. Þið
getið þó skrifað plötuútgáfunni:
Dire Straits,
c/o Warner Bros. Records,
3rd East 54th Street,
New York,
N.Y.10022
U.S.A.
Ef einhver veit utanáskrift
aðdáendaklúbbsins er hann
vinsamlega beðinn að senda
Póstinum línu.
Skrifið þið stráksa bara ef þiö
þorið ekki að hringja, sem er þó
eðlilegast.
56 Vikan 2. tbl.