Vikan - 29.05.1986, Blaðsíða 13
Ódýr utanlandsferð getur það verið
að fara á veitingastaðinn Hornið í
Reykjavík, setjast við eitt borðið
og segja: Vorrei una Pizza per piac-
ere (sem útleggst á gamla víkinga-
málinu: Eina böku, laxi).
Sá sem er að drekka kaffið við
kringlótta borðið með marmara-
plötunni heitir Jakob og hann er
veitingamaður á Horninu.
Norsku hljóm-
sveitirnar,
FRALIPPO
LIPPI og A-Ha, hafa
sýnt það og sannað að
norskarhljómsveitir
geta orðið stórnöfn í
Englandí, enda flytja
þærpottþétta popp-
tónlist.
Þegar myndin birtist er þessi væni
hópur (vonandi) allur kominn með
stúdentspróf, hættur að klæða sig
eins og fífl og farinn að huga að
framtíðinni í alvöru, tölvunarfræð-
unum, viðskiptafræðinni, verk-
fræðinni og tannlækningunum.
Krakkarnir eru úr bekkjunum 4.X
og 4.C, nánar tiltekið í Menntaskól-
anum við Sund.
Bestu kveðjur, krakkar.
Unglingaregla I.O.G.T. er orðin hundrað ára. Aldurinn má hún vafalaust þakka
reglusemi. Á skemmtun, sem haldin var í tilefni afmælisins, sýndi töframaðurinn
Ingólfur Ragnarsson töfrabrögð. Á myndinni sést hann sannfæra viðstadda um
að hringirnir, sem hann heldur á, séu heilir og engin brögð í tafli.