Vikan - 29.05.1986, Blaðsíða 51
BROÐIR
Elsku besti Póstur!
Ég skrifa þér vegna þess að ég er í miklum
vanda sem er alveg að gera mig vitlausa,
en ég veit ekki hvað ég get gert svo mér datt
í hug að skrifa og biðja um álit Póstsins. Ég
á bróður sem er þremur árum eldri en ég.
Mér hefur alltaf þótt vænt um hann og litið
upp til hans en ég held að hann þoli mig
ekki. Hann er alltaf að stríða mér og gera
lítið úr mér, alltaf að tala um hvað ég sé vit-
laus og finnst allt asnalegt sem ég geri,
hvernig ég klæði mig, tónlistin sem ég held
upp á og svo framvegis. Mér finnst þetta
mjög óréttlátt, sérstaklega af því að mamma
heldur alltaf með honum. Mamma þolir ekki
suma vini mína og er alltaf að segja mér að
ég eigi nú heldur að vera með þessari og
þessari. Mér finnst eins og mamma og bróð-
ir minn séu farin að leggja mig í einelti. Eitt
sem mér sárnar alveg sérstaklega er að bróð-
ir minn á vin sem er jafngamall honum og
ég er svolítið hrifin af. Hann kemur oft heim
og ég held að hann sé líka dálítið hrifinn
af mér. En bróðir minn spillir öllu. Hann rek-
ur mig alltaf út úr herberginu sínu eða
stofunni ef við erum ein heima og strákar
koma til hans. Hann talar alltaf við mig fyrir
framan vini sína eins og ég sé smábarn. Ég
veit eða held að bróður mínum sé samt ekki
illa við mig. Hann er oft góður við mig og
hjálpar mér að læra heima og svoleiðis - og
getur verið ágætur ef við erum ein. Hann
hefur samt alltaf strítt mér frá því að ég var
lítil. En hvað á ég að gera til að láta hann
hætta að koma alltaf fram við.mig eins og
smábarn? Gefðu mér nú gott ráð, elsku Póst-
ur.
Systir.
Stríðni og erjur á milli systkina er nokkuð
sem flestir ef ekki allir þekkja í einhverri
mynd. Þú ert nokkrum árum yngri en bróðir
þinn og vera má að hann hafi alla tið fund-
ið til smáafbrýðisemi gagnvart þér, eins og
svo algengt er með börn. Bróðir þinn er að
verða fullorðinn og vill fá að vera sjálfstæð-
ur og i friði með sina vini. Honum finnst þú
enn vera litla systir og getur þess vegna
ekki tekið þig inn í sinn vinahóp. En stríðni
hans og aðfinnslur benda til þess að hann
sé ekki allt of öruggur með sig óg þó hann
þykist ekkert vilja með þig hafa að sumu
leyti þá vill hann ráða yfir þér og hafa áhrif
á þig. Þú ert líka að öðlast meira sjálfstæði.
velur þér vini og áhugamál upp á eigin spýt-
ur. Það getur oft verið erfitt fyrir foreldrana
að finna að börnin eru smátt og smátt að
fjarlægjast þá og skapa sér sjálfstæðar skoð-
anir, vilja og lífsmáta. Pósturinn er viss um
að það er ekkert samsæri i gangi milli
mömmu þinnar og bróður. Þau eru ekki al-
veg búin að átta sig á þvi að litla stelpan
þeirra er að verða stór og vill fá að ráða sér
að einhverju leyti sjálf. Það er mjög mikil-
vægt að foreldrar og eldri systkini virði
þennan rétt og geri ekki litið úr þessu sjálf-
stæðisbrölti því það getur haft mjög skaðleg
og unynnyar musti a toreldra sina og taki
skynsamlegum ráðleggingum þeirra. Þær
eru byggðar á þroska og reynslu þeirra og
umhyggju fyrir barninu. Þennan milliveg
verða allir foreldra og börn og unglingar að
reyna að feta ef komast á klakklaust i gegn-
um unglingsárin erfiðu.
Pósturinn ráðleggurþérað taka aðf/nnslur
mömmu þinnar og bróður þíns ekki allt of
a/varlega og láta þau finna að þetta séu þin-
ar skoðanir, áhugamál, smekkur og svo
framvegis. Hins vegar getur þú ekki búist
við að bróðir þinn sé tilbúinn að taka þig
umsvifalaust inn i vinahóp sinn. Hann verð-
ur að ráða þvi. Þú skalt þvi ekkert vera að
troða þér neitt. Verðu bara blátt áfram þegar
hann og vinirnir eru annars vegar og forð-
astu allan óhemjuskap og barnalæti. Smám
saman ætti bróðir þinn að átta sig á því að
þú ert ekki sama smábarnið og hann hefur
haldið. Þá gætir þú orðið gjaldgeng í hópn-
um og farið að spá í vininn. Þú gætir svo
hugsanlega farið einhverja aðra leið að hon-
um en gegnum bróðurþinn, en það er önnur
saga.
FLATLÚS
Elsku Póstur!
Mig langar að spyrja þig nokkurra spurn-
inga.
1. Hvað erflatlús?
2. Hvernig lýsir hún sér?
3. Geturmaðurséðhana?
4. Hvert á að leita ef maður telur sig vera
með flatlús?
Elsku Póstur, viltu vera svo góður að birta
þetta bréf.
Bless. bless
Ein í vanda.
Flatlúsin ersmáóværa sem heldursig í
hárum við kynfæri fólks. Hún ersjáanleg
með berum augum ef vel ergáð og veldur
kláða. Hafieinhvergrun um að hann sé
með flatlús ætti hann að leita til heimilis-
læknis eða á húð- og kynsjúkdómadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar i Reykjavik.
ALDURPÁFA-
GAUKA
Kæri Póstur!
Ég á tvo páfagauka og mig langar til að
spyrja þig hvort þú vitir hvað þeir geta orðið
gamlir. Ég er búin að eiga þá í þrjú ár en
ég fékk þá gefins þegar þeir voru ungar.
Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
Páfagaukakerlingin.
Samkvæmt upplýsingum Póstsins verða
páfagaukar að meðaltali um IO-12ára. Þín-
ir gaukar eru þvi enn á unglingsaldri og eiga
lífið framundan.
DEPECHE
MODE
Kæri Póstur!
Við erum tveir Depeche Mode og Alpa-
ville aðdáendur og viljum gjarnan fá að vita
heimilisföng aðdáendaklúbba þessara
hljómsveita. Ef þú gætir krafsað upp þessa
aðdáendaklúbba fyrir okkur og fleiri þá væri
það alveg æði.
G & H.
Póstinum tókst ekki að finna utanáskrift
aðdáendaklúbbs hljómsveitarinnarAlpaville,
en hér fáið þið heimilisfang Depeche Mode
klúbbsins.
Depeche Mode
c/o Jo,
42 Hillway
Billericay
Essex
England
Það er rétt að geta þess. af þvi að það er
oft spurt að því, að til þess að ganga i að-
dáendaklúbb er best að byrja á því að skrifa
og biðja um upplýsingar og senda með
umslag með nafni sínu og alþjóðlegum svar-
merkjum. Þau fást á pósthúsum og jafngi/da
frimerkjum. Siðan er rétt að bíða eftir svari
I nokkrar vikur, en efekkert gerist þá er bara
að skrifa aftur. Þegar þið síðan sendið pen-
inga til að ganga í k/úbbinn skuluð þið senda
ávisun en alls ekki reiðufé.
Ef Pósturinn rekst á Alpaville- klúbbinn
skal hann umsvifalaust birta utanáskriftina.
Eins mega hinir hjálpsömu lesendur, sem
þekktir eru að þvi að bregðast skjótt við,
senda inn línu efþeirluma á heimilisfanginu.
ÞJALFARA-
RÉTTINDI
Kæri Póstur!
Ég vona alveg innilega að þú birtir þetta
bréf. Mér bráðliggur á svari því ég get ekki
leitað neitt annað. Þá kemur spurningin:
Hvar í veröldinni er hægt að fara á nám-
skeið þar sem maður öðlast þjálfararéttindi?
Ég veit að þetta er ekki hægt hér á landi.
Með fyrirfram þökk.
Ein að norðan.
Það fylgir ekki sögunni hvaða íþróttagrein
(Pósturinn getur sér þess til að þú eigir við
þjálfararéttindi I íþróttagrein) þú ertað hugsa
um. í sumum iþróttagreinum eru haldin
námskeið hér fyrir þá sem vilja verða þjálfar-
ar í sinni grein. Oftast eru þeir sem verða
þjálfarar fyrrverandi keppnismenn í greininni
en það er ekki algilt. Til þess að fá sem best-
ar upplýsingar um hvernig þessu er háttað
í þeirri grein sem þú ert með I huga skaltu
hringja til skrifstofu iþróttasambands ís-
lands, íþróttamiðstöðinni í Laugardat, en
símanúmerin þar eru I simaskránni.
H TBL VIKAN 51