Vikan - 29.05.1986, Side 16
Hér á síðunni birtast svör læknanna Gests Þorgeirssonar, Helga Krist-
bjarnarsonar, Jóhanns Ágústs Sigurðssonar, Leifs Bárðarsonar, Öttars
Guðmundssonar og Sigurðar Guðmundssonar við spurningum lesenda.
Nú eru liðnar nokkrar vikur síðan við hófum þetta nýmæli og hefur
það mælst afar vel fyrir. Við biðjum fólk að vera þolinmótt þó að svör
við spurningum þess birtist ekki strax. Við reynum að sinna öllum.
Við bjóðum lesendum bæði að senda bréf með vandamálum sínum
og hringja. Hringja má á þriðjudags- og miðvikudagsmorgnum frá níu
til tólf. Bréfin, sem við fáum, verða að vera stutt, skýr og málefnaleg.
Við birtum þau gjarnan undir dulnefni en nafn og heimilisfang verður
að fylgja.
Utanáskriftin er:
Læknisvitjun
Vikan
Frjáls fjölmiðlun hf.
Pósthólf 5380
125 Reykjavík
NIÐUR-
GANGUR
í UTANLANDS-
FERÐ
SPURNING:
Ég og fjölskylda mín erum að
fara til Ítalíu I sumarleyfi. I fyrra
fengu tveir kunningja minna
slæman niðurgang þegar þeir voru
á sömu slóðum og þurftu að liggja
í tæpa viku. Hvað getum við gert
til þess að koma í veg fyrir þetta?
SVAR:
Niðurgangur ferðamanna er
talsvert vandamál og hefur eyði-
lagt langþráð sumarleyfi margra.
Er þetta einkum vandamál þeirra
sem búa á norðlægum slóðum og
ferðast suður eftir. Hættan á því
að fá niðurgang fer nokkuð eftir
hvert farið er. Mest hætta virðist
vera í Afriku. Næst á listanum eru
löndin fyrir botni Miðjarðarhafs,
þar næst Suður-Evrópa, Mið-
Evrópa, Asía (þar með talin Ind-
landog Pakistan), Suður-Ameríka
og Ástralía en tíðnin virðist lægst
í Norður-Ameríku. Allt upp i 50%
þeirra sem ferðast frá norðlægum
löndum til landa í kringum mið-
baug geta búist við að fá niður-
gang ef þeir dvelja i landinu i 2
vikur eða meira. Orsakir ferðanið-
urgangs eru oftast bakteríur,
sjaldnast einfrumungar (amöbur).
Niðurgangurinn byrjar yfirleitt í
fyrstu til annarri vikunni eftir að
komið er á staðinn og varir vfir-
leitt í 1-5 daga. Besta leiðin til að
koma í veg fyrir þennan sjúkdóm
er að forðast neyslu fæðu og vatns
sem er smitað. Rétt er þviað forð-
ast neyslu hrárrar eða illa mat-
reiddrar fæðu. Salat og hrátt
grænmeti virðast vera hættuleg-
ust. Einnig er rétt að halda sig frá
vatni nema það sé soðið eða að
minnsta kosti hitað áður. Mineral-
vatn er yfirleitt óhætt að drekka.
Allan mat á veitingahúsum er yfir-
leitt óhætt að borða og ætti fólk
ekki að láta óttann við niðurgang
halda sér frá að reyna þá rétti sem
landið hefur upp á að bjóða. Ekki
er rétt að nota sýklalyf i fyrir-
byggjandi skyni. Ennfremur er
ráðlagt að nota ekki stoppandi lyf
þar sem þau geta gert sjúkdóminn
verri á stundum.
LEIÐRÉTTING
Hluti svars við spurningu um
kláða eftir sólarlampa féll niður i
18. tbl. Við biðjumst velvirðingar
á þessum mistökum og birtum
svarið hér aftur.
KLÁÐI EFTIR
SÓLARLAMPA
SPURNING:
Fyrir um það bil einu og hálfu
ári fór ég í fyrsta skipti í sólar-
lampa. Ég ætlaði mér að taka tíu
tima en gat einungis farið í sex
vegna mjög mikils kláða á fót-
leggjunum. Ég hef reynt tvisvar
sinnum aftur en allt kemur fyrir
ekki, alltaf gerir kláðinn vart við
sig eftir um það bil sex tíma (kem-
ur fram bæði á meðan ég er í
lampanum og einnig þegar ég hef
yfirgefið hann).
Ég vil taka það skýrt fram að
kláði þessi er einungis á fótleggj-
unum. Nú nýlega tók ég eftir
grunsamlegum hvítum flekkjum á
fótunum. Þessirflekkirkoma aðal-
lega fram eftir notkun sápu eða
þegar ég hef verið í miklum kulda.
Þó má greina þá óljóst dags dag-
lega.
Hér kemur svo stóra spurningin:
1. Er möguleiki á því að ég sé
komin með húðkrabþamein?
a) Er kannski einungis um eitt-
hvert ofnæmi að ræða?
b) Hvað get ég gert í þessu?
c) Er mér óhætt að reyna að fara
í sólarlampa aftur?
SVAR:
SÓLARLAMPAR
Sólarlampar hafa náð mikilli út-
breiðslu og átt auknum vinsæld-
um að fagna undanfarin ár.
Venjulegir Ijósarörslampar gefa frá
sér geisla sem nefndir eru UV-A
(ultraviolet - A geislar) þar sem A
stendur fyrir þylgjulengdina 3/5-
400 nm. Þessir geislar eru aðeins
hluti af sólarljósinu. Talið er að
þessir geislar dekki aðeins það lit-
arefni í húðinni sem þegar er þar
fyrir. i sólarljósinu eru einnig aðrar
tegundir geisla, UV-B með
bylgjulengd 280-315 nm og U V-
C af bylgjulengd 100-280 nm.
Geislar af tegundinni UV-C eru
hættulegastir fyrir húðina en þeir
stöðvastað mestu i ósonlagi gufu-
hvolfsins. UV-B geislarnir hvetja
vissar frumur húðarinnar ( melan-
ocyta) til þess að framleiða meira
litarefni. i miklu magni getur þessi
geislun valdið húðkrabba. Þessar
geislategundir (það er UV-B og
UV-C) eiga ekki að koma frá sól-
arlömpunum. Fólk þarf því
almennt ekki að óttast húðkrabba-
mein af þessum lömpum ef eftirlit
með þeim er i lagi. Fólk, sem er
Ijóst á húð og hár, hefur minna
af litarefni i húðinni heldur en það
sem er dökkhært. Það tekur það
þvi mun lengri tima að fá brúna
húð. Fyrir slíka einstaklinga er
æskilegast að fá smávegis UV-B
til að örva framleiðslu á l/tarefni,
síðan UV-A tilað gera það brúnt.
ERTING í HÚÐ
Erting i húð af völdum Ijóss
(UV-geisla) getur verið vegna
Ijósofnæmis (photoallergy) eða
vegna beinna skaðlegra áhrifa
(phototoxicity). Ofnæmissvörun-
in getur þá bæði verið staðbundin
eða leitt til einkenna frá öllum lík-
amanum. Þessi fyrirbæri geta
verið mjög hvimleið fyrir þá sem
vilja stunda sólarlampa. Ekkert er
þvi til fyrirstöðu að reyna Ijósin
aftur, þá i styttri tima.
ÚTBROT
Þeir einstaklingar, sem fá ert-
ingu af sólarlömpum, fá oftast
einhvers konar útbrot líka. Einnig
er vel þekkt fyrirbæri að fólk fær
„hvítleit útbrot". Þessir blettirgeta
verið svonefnd vitiligo eða af
völdum sveppasýkingar (pityriasis
versicolor). Þessi svæði á húðinni
taka ekki I sig brúna litinn eins og
húðin gerir annars staðar af völd-
um sólargeislanna. Æskilegt er að
láta lækni líta á útbrot ef þau eru
ti/ staðar. Útbrot af völdum
sveppasýkingar er hægt að lækna
með lyfjum.
16 VIKAN 22. TBL