Vikan - 29.05.1986, Qupperneq 18
—Tók giktarlyf daglega -
en tókst síðan að losna
giktarverki með
mataræði
EFTIR BfíYNDÍSI
KfílSTJÁNSDÓTTUfí
Þegar við eigum því láni að fagna að vera
heilbrigð og hraust þá tökum við því sem sjálf-
sögðum hlut og hugsum jafnvel ekkert sérlega
vel um líkama okkar og heilsu. Það er ekki
fyrr en við verðum fyrir því óláni að missa
heilsuna eða slasast að við gerum okkur grein
fyrir því hversu dýrmæt góð heilsa er. Ragn-
heiður Björk Guðmundsdóttir, sem er 27 ára
gömul, hafði alla tið verið heilsuhraust og liðið
vel á allan hátt þar til fyrir um tveim árum.
„Einn morguninn vaknaði ég við alveg of-
boðslegar kvalir í öðru auganu. Ég þoldi alls
ekki að horfa í neina birtu og fann mér dimm-
asta skotið í íbúðinni til að vera í.“
Það kom síðan í ljós að Ragnheiður var með
lithimnubólgu og fékk hún við henni tilheyr-
andi meðul en jafnframt var henni sagt að með
lithimnubólgu mætti búast við verkjum í liðum.
„Ég hef aldrei fengið neina algilda skýringu
á því af hverju lithimnubólga stafar eða hvern-
ig ég fékk hana. Líklega er þetta einhvers konar
vírus. Ég hef reyndar stundum velt því fyrir
mér hvort það sé eitthvert samhengi milli bólg-
unnar í augunum og þess að ég vann við tölvu
samfleytt í 10 mánuði, sjö tíma á dag, og var
oft mjög þreytt í augunum að vinnudegi lokn-
um. Eg væri ekki hissa þó þetta væri sökudólg-
urinn að einhverju leyti því það eru alltaf að
koma betur og betur í ljós þau slæmu áhrif sem
löng seta við tölvuskjá hefur á heilsu manna.“
Verkirnir í liðunum urðu síðan sífellt meiri
og sárari; suma morgna gat Ragnheiður jafnvel
ekki stigið í fæturna í nokkum tíma og tærnar
urðu stífar. Hún fór því til giktarlæknis. Þrátt
fyrir ítarlega rannsókn fannst ekkert það sem
gæti valdið þessu og fékk Ragnheiður giktarlyf
til að halda verkjunum í skefjum. Heilsan var
þokkaleg á meðan hún tók lyfin en í hvert sinn
sem hún reyndi að minnka skammtinn ruku
verkirnir upp aftur. Þar að auki þurfti hún að
vera með lepp fyrir auganu af því hún þoldi
birtuna mjög illa. Síðan gerðist það að það fór
að bera á sömu einkennum í hinu auganu.
„Þá varð ég reglulega hrædd og fór auðvitað
aftur til augnlæknis en þá var bólgan í augun-
um orðin það mikil að ég var lögð inn á spítala
í hvelli. Þar fór ég í allsherjar rannsókn og var
sett á hormónalyf, prednisolon, til að eyða bólg-
unum úr augunum eins hratt og mögulegt var
því sjónin var í hættu og horfurnar ekki góðar.
Ég vorkenni þeim mikið sem þurfa að vera
á þessum hormónakúr í langan tíma því auka-
verkanir eru töluverðar. Til dæmis myndast
mikill bjúgur í líkamanum og andlitið á mér
varð mjög þrútið, varð að eins konar „moon-
face“.“
Hormónakúrinn bjargaði augunum en sjónin
var þá orðin stórlega skert. Á spítalanum heyrði
Ragnheiður um konu sem hafði tekist að lækna
sjálfa sig af gikt með því að vera á sérstöku
mataræði og að hún hefði hjálpað mörgum
öðrum í svipaðri aðstöðu. Ragnheiði fannst hún
samt ekki eiga neitt erindi í þann hóp, sérstak-
lega þar sem hún trúði lítið á slíkar lækningar.
Þess í stað hélt hún áfram að taka giktarlyfin
því enn þjáðist hún af miklum giktarverkjum.
„Það var líklega um sex mánuðum eftir að
ég kom út af spítalanum að ég var orðin svo
þreytt á að vera alltaf með þessa verki og að
þurfa alltaf að vera að taka inn þessi meðul
að ég hugsaði með mér að reyna að tala við
konuna sem hjálpaði fólki í minni aðstöðu og
hugsaði sem svo að varla gæti þetta orðið
verra. Ég var vön því að fá mér eitthvað ein-
falt og fljótlegt að borða þegar ég kom úr
vinnunni því ég nennti ekki að vera að elda
eitthvað flókið fyrir mig eina. Ég ákvað þó að
vanda mig við hádegismatinn áður en ég
hringdi í konuna. Ég smurði mér rúgbrauðs-
sneið með osti og fékk mér appelsínusafa og
lagði þetta á eldhúsborðið. Þegar ég hringdi í
konuna sagðist hún því miður ekki geta hitt
mig fyrr en að hálfum mánuði liðnum en bað
mig að byrja strax á því að hætta alveg að
drekka kaffi, borða súra ávexti, minnka neyslu
mjólkurafurða, sérstaklega jógúrtar og súr-
mjólkur, og ekki borða neitt með rúgi í og alls
ekki drekka neina drykki með gervisykri í. Það
18 VI KAN 22 TBL