Vikan - 29.05.1986, Síða 22
UMSJÓN: HILMAR KARLSS ON
iffB
WeEND
O
AGUSTLOK
YFIRÞYRMANDI RÓMANTÍK
★
ÁGÚSTLOK (END OF THE AUGUST)
Leikstjóri: Bob Graham.
Aðalleikarar: Shally Sharp, Lilia Skala og
IJavid Marshall Grant.
Sýningartimi: 85 mín.
Kvikmyndin Ágústlok er lítil og falleg,
um persónur sem örugglega eiga sér hlið-
stæður í veruleikanum. Gallinn er bara sá
að alla myndina er áhorfandinn að bíða
eftir þvi að eitthvað gerist. Hann verður
því undrandi þegar myndin endar allt í
einu án þess að nokkuð hafi skeð sem
áhuga vekur.
Myndin gerist um aldamótin i New
. Orleans og segir frá Ednu sem er gift
tveggja barna móðir. Sumar eitt kynnist
hún ungum manni og hrífst svo af honum
að hún ákveður að gjörbreyta lífi sínu.
Ekki verður þó neitt úr ástarsambandi við
unga manninn heldur ákveður hún að
taka sjálf ákvarðanir um líf sitt í stað þess
að láta eiginmanninn ráða eins og tíðkað-
ist hjá heldra fólki á þessum tíma. Þessi
ákvörðun fer að sjálfsögðu í taugarnar á
eiginmanni hennar sem er hið fullkomna
karlrembutákn.
Edna flytur að heiman að hluta og
hneykslar vinkonur sínar þegar hún segir
að hún taki sjálfa sig fram yfir bömin sín,
sem reyndar sjást aldrei í myndinni. Hún
fer að mála og heldur við þekktan flag-
ara. Ungi maðurinn birtist aftur en þrátt
fyrir áhuga hjá báðum verður ekkert úr
ástarsambandi...
Því er ekki að neita að Ágústlok eru
ákaflega faglega unnin. Kvikmyndun er
oft á tíðum falleg og sviðsetning góð. Það
er bara söguþráðurinn sem er satt best
að segja nánast enginn þannig að myndin
verður úr hófi langdregin og ieiðinleg.
Sjálfsagt hefur hugmyndin verið að Ágúst-
lok yrðu vopn í baráttu fyrir réttindum
kvenna og satt er það að Edna rís gegn
ríki karlmanna fyrr á öldinni. Sá boðskap-
ur er samt nokkuð langsóttur þegar
endirinn er hafður í huga.
HÆTTULEG KYNNI
★★★
MOVING IN
Leikstjóri: Michael Apted.
Aðalieikarar: Teri Garr, Peter Weller og
Christopher Collet.
Sýningartími: 96 mín.
Moving in fjallar um tvo unga bræður
sem í byrjun myndarinnar verða að gcra
sér að góðu að foreldrar þeirra eru skilin.
Þeir bræður búa hjá móður sinni, Wendy
(Teri Garr). sem verður mjög niðurdregin
þegar hún fréttir að fyrrverandi eigin-
maður hennar ætlar að fara að gifta sig.
Hún fer að halda við Sam (Peter Weller)
sem í fyrstu reynir að ná til drengjanna
tveggja.
Jake (Christopher Collet) er fljótur að
sjá í gegnum þennan tilvonandi stjúpföður
sinn enda kemur á daginn að hann hefur
mikla skapbresti og bitnar það á strákun-
um. Jake kemst einnig að því að hann er
eiturlyfjasali og er vel á veg kominn með
að draga móður þeirra bræðra út í eiturlyf-
in. Hann ákveður því að gera allt til þess
að vernda móður sína.
Ástandið á heimilinu hefur þau áhrif
að Jake er orðinn skapstyggur, lendir upp
á kant við kennara sína sem vini. Þctta á
einnig við um yngri bróðurinn sem nánast
er rekinn úr skóla fyrir að berja á sér
yngri drengjum. Jake sér að við slíkt verð-
ur ekki búið og nær að stela eiturlyfjum
og fela, eiturlyfjum sem Sam hafði ætlað
að selja. Þá kemur fyrir alvöru í ljós hvern
mann Sam hefur að geyma...
Moving in er virkilega góð kvikmynd
sem býður upp á raunsæja lýsingu á fjöl-
skyldulífi sem er að leggjast í rúst. Nú, svo
er einnig talsverð spenna í myndinni sem
ekki spillir. Leikur er allur til fyrirmynd-
ar, sérstaklega eru drengirnir tveir góðir í
erfiðum hlutverkum. Moving in er mynd
sem öll fjölskyldan hefur ánægju af.
RAMBO Á HEIMAVELLI
★
RAMBO
Leikstjóri: Georgc P. Cosmotos.
Aðalleikarar: Sylvester Stallone og Richard
Crenna.
Sýningartími: 96 mín.
í First Blood kom það greinilega fram
að aðalpersónan, Rambo, var ulangarðs-
maður í bandarísku þjóðfélagi og orsök
þess var striðið í Víetnam. Þvi hcfur þótt
sjálfsagt í framhaldi af First Blood að
senda hetjuna okkar aftur á fyrrverandi
vigstöðvar og klára það sem Bandaríkja-
her tókst ekki; að sigrast á litlu kommún-
istunum og rússneskum hjálparkokkum.
Rambo fer létt með þetta verkefni og skal
engan furða að Reagan Bandaríkjaforseti
yrði hrifinn af Rambo.
Efnisþráðurinn cr í stuttu máli að eini
vinurinn, sem Rambo á, foringi í græn-
húfudcild bandariska hersins, fær hann
lausan úr fangelsi gegn því að hann fari
aftur til Víetnam og reyni að ná ljósmynd-
um af stríðsföngum sem þar cru í haldi.
Rambo tekst fijótt að finna fangana en
þegar hann ætlar að snúa heim með einn
fangann bregður svo við að björgunarlcið-
angurinn skilur hann eftir. Þeir scm
stjórna vilja nefnilcga ekki fá fangana aft-
ur.
Rambo sættir sig að sjálfsögðu ekki við
þcssi málalok en það er fyrst jvegar inn-
fædd vinkona hans er drepin að hann
gengur berserksgang og drepur allt sem
fyrir verður.
Nú, til að gera langa sögu stutta tekst
Rambo að koma bandarískum stríðs-
föngum til síns heima og hlýtur lof fyrir.
Hann þakkar fyrir mcð smáræðustúf sem
inniheldur fleiri orð en hann hefur sagt
alla myndina. Þar lýsir hann þvi yfir að
hann elski loðurlandið og vonist til að sú
ást sé endurgoldin. Er ckki hægt annað
en að brosa þegar „stórleikarinn" Sylvest-
er Stallone flytur þessi hugnæmu orð.
Það vita allir að heiðurinn af gerð þess-
arar myndar á Sylvester Stallone og er
hann annar handritshöfunda. Það verður
samt ekki gengið framhjá góðri og áhrifa-
mikilli kvikmyndatöku og klippingu,
ásamt vel gerðum áhættuatriðum. Og að
hafa Stallone nakinn niður að mitti niest-
alla myndina, láta kvikmyndavélina sýna
vöxt hans í „close-up“ myndatöku,
heppnast fullkomlega. Hann verður fyrir
bragðið ógnandi og hættulegur.
LEITAD HEFNDA
★★
THE AMATEUR
Leikstjóri: Charles Jarrott.
Aóallilutverk: Jolin Savage, Christopher
Plummcr og Marthe Kellcr.
Sýningartimi: 109 min.
Að úndanförnu hefur hryðjuverk mjög
borið á góma i tali manna og er búist við
að þeim fjölgi i Evrópu eftir innrás Banda-
ríkjamanna i Líbýu. The Amateur fjallar
einmitt um hryðjuverk gegn Bandaríkja-
mönnum og hefnd einstaklings sem verður
fyrir því að unnusta hans er drepin af
hryðjuvcrkamönnum í bcinni útsendingu
í sjónvarpi.
Byrjunaratriði myndarinnar er með því
besta sem sést hefur í kvikmyndum er
fjalla um hryðjuvcrkamenn. Fylgst er með
ungri stúlku þegar hún setur bréf til unn-
usta síns i póst. Þaðan liggur leið hennar
í sendiráð Bandaríkjanna þar sem hún
stuttu síðar verður fyrir tilviljun fórnar-
lamb hryðjuverkamanna. Þetta er áhrifa-
mikið atriði og lofar góðu um framhald
myndarinnar. En þvi miður, eftir því scm
lengra liður á myndina verður hún æ rugl-
ingslcgri og hrcint ekki sannfærandi.
John Savage leikur unnusta stúlkunn-
ar, starfsmann CIA. Þegar yfirmenn hans
segjast ekkerl geta gcrt í málinu ákveður
hann sjálfur að afla sér upplýsinga um
hryðjuverkamennina og taka sér dómara-
vald.
Þessi ákvörðun leiðir hann austur fyrir
tjald þar sem hryðjuverkamennirnir búa
og lendir hann í alls konar hrakningum
enda óvanur byssuleik, hafði áður ein-
göngu starfað við þýðingar á dulmáls-
skeytum. Eftir miklar svaðilfarir tekst
honum ætlun sín. Missir hans er samt sem
áður samur.
The Amateur er i heild hin sæmilegasta
skemmtun þótt betur hefði mátt fylgja
eftir frábæru byrjunaratriði. John Savage
er góður að vanda og aðrir leikarar standa
sig einnig ágætlega.
22 VIKAN 22. TBL