Vikan - 29.05.1986, Blaðsíða 23
t
1
Edward Fox er í útliti hinn klassíski enski
heldrimaður eins og kvikmyndaáhorfendur
vilja láta þá líta út og þeir eru orðnir margir,
herramennirnir sem Edward Fox hefur leikið,
bæði persónur sem hafa verið til og svo skáld-
sagnapersónur. Af þekktum mönnum, er hann
hefur leikið, má nefna Játvarð VIII í sjón-
varpsmyndaflokki sem sýndur var hér fyrir
nokkrum árum. Eins og flestir vita var Játvarð-
ur VIII Englandskonungur fyrr á öldinni en
valdi að segja af sér til að geta gifst þeirri konu
er hann elskaði. Þá má nefna hershöfðingjana
Sir Brian Horrocks í A Bridge Too Far og
Dyer í Gandhi. Þessi hlutverk og önnur sams
konar eru eins og sniðin fyrir hann.
Annars konar hlutverk hefur Edward Fox
að sjálfsögðu einnig leikið. Hans frægasta hlut-
verk er án efa atvinnumorðinginn í Day of the
Jackal. Þar tekur hann að sér það verkefni
að myrða Charles De Gaulle. Hann var skugga-
legur karakter í endurgerð Michael Winners á
The Big Sleep, þar sem Robert Mitchum lék
aðalhlutverkið. Og í The Dresser leikur hann
lítilsigldan leikara.
En í nýjustu kvikmyndum sínum tveimur,
The Shooting Party og Wild Geese II, er
hann aftur kominn í hlutverk breskra herra-
manna, þó ólíkir séu. I The Shooting Party
er hann einn af þeim aðalsmönnum sem hafa
yndi af að veiða dýr. I Wild Geese II er hann
aftur á móti málaliði er ekki lætur sér allt fyr-
ir brjósti brenna og er einnig í flokki manna
er ætla sér að frelsa Rudolf Hess úr Spandau
fangelsinu í Berlín.
Edward Fox er fæddur í London, gekk í góða
skóla og er í einkalífi rólegur og varfærinn
maður sem í viðtölum hefur tilhneigingu til að
vilja ekki gera neinum illt, sem sagt hinn dæmi-
gerði enski séntilmaður. Þegar Fox var átján
ára var hann í hernum í smátíma en var fljótur
að átta sig á að h'f hermanna átti ekki við hann.
Hann tók til við vinnu í verslunarkeðju þar sem
búist var við að hann yrði fljótur að vinna sig
upp. Hann fann sig ekki þar heldur og sam-
kvæmt ráðleggingu vinar lét hann innrita sig
í hinn fræga konunglega leikskóla, RADA. Þar
eyddi hann næstu sex árum og eftir nám var
hann ráðinn við Royal Court Theatre. Smáhlut-
verk í sjónvarpi og í kvikmyndum fylgdu fljótt
í kjölfarið. Fyrstu kvikmyndir hans voru Battle
of Britain og Oh, What a Lovely War.
Edward Fox var samt ekki leikstjarnan í fjöl-
skyldunni. Bróðir hans, James Fox, var á
þessum árum orðinn mjög vinsæll og eftirsóttur
kvikmyndaleikari sem lék í hverri úrvalsmynd-
inni á fætur annarri eftir að hann hafði slegið
í gegn í The Servant, meistaraverki Josephs
Losey. James Fox hætti að leika á hátindi fer-
ils síns, gekk i sértrúarsöfnuð og lifði í nokkur
ár mjög fábrotnu lífi. Hann hefur nú aftur snú-
ið sér að kvikmyndaleik með góðum árangri.
Svo einkennilega vill til að það var Joseph
Losey sem einnig varð þess valdandi að vegur
Edwards Fox fór að vænkast. Hann fékk honum
hlutverk Trimmingham lávarðar í The Go-
Between. Fyrir leik sinn í þeirri mynd fékk
hann verðlaun bresku kvikmyndaakademíunn-
ar sem besti leikari í aukahlutverki. Strax þar
á eftir kom svo Day of the Jackal sem réð
úrslitum um frama Edwards Fox. Eftir þá kvik-
mynd hefur hann ekki þurft að hafa áhyggjur
af atvinnuleysi.
Eins og áður sagði eru tvær nýjustu myndir
Edwards Fox The Shooting Party og Wild
Geese II. Það eru til dramatískar sögur um
báðar kvikmyndirnar. Paul Scoffield átti að
leika á móti Fox í The Shooting Party. Fljót-
lega varð slys við upptökur. Hestur fældist og
Paul Scoffield varð
ames Mason tók við
ita hlutverk. í Wild
urton að leika aðal-
íður en upptökur áttu
ward Fox var látinn
varð það þess valdandi
að hætta vegna meiðsla,
og varð þetta hans síð;
Geese II átti Richard I
hlutverkið. Fáum dögum
að hefjast lést hann og E
taka við hlutverkinu lítið breyttu. Vegna þess
að Burton hafði leikið í fyrri myndinni og ekki
var hægt að láta Fox leil
brugðið á það ráð að lái
hans. Edward Fox játar
að feta í fótspor Burtoni
hjálplegir að sögn hans,
hlutverk var hans fyrsta
of the Jackal, þar sem hi
Um The Shóoting Pi
hefur Edward Fox þett;
greinilegt að James Mai
hlutverk sitt í myndinni.
ið mörg góð hlutverk á undanförnum árum og
náði strax mjög góðum tökum á hlutverkinu."
Flestir eru víst sammála Edward Fox um að
James Mason hafði ekki leikið betur í mörg ár.
Nýlega var Edward Fox í Suður-Afríku. Þar
lék hann liðsforingja í mynd er sýnir aðdrag-
anda að Zulu-stríði. „Það er tilbreyting að leika
liðsforingja því venjulega leik ég hershöfð-
ingja,“ segir Edward Fox
sitt. I dag er Edward Fox
skipti sitt. Hann er eftirsóttur leikari sem getur
valið og hafnað.
sama karakter var
hann leika bróður
) það hafi verið erfitt
en allir voru honum
ess má geta að þetta
síðan hann lék í Day
an leikur byssumann.
»rty og James Mason
a að segja: „Það var
son var ánægður með
lann hafði ekki feng-
22. TBL VIKAN 23