Vikan - 29.05.1986, Side 45
■ Atlantshafið hefur frá örófi alda lokkað
menn til sín. Evrópubúar héldu að það væri
endir veraldar en aðrir trúðu því varlega. Heil-
agur Brendan, Leifur heppni og Kristófer
Kólumbus linntu ekki látum fyrr en þeir höfðu
lagt það að velli og komist alveg yfir, og ef til
vill voru þeir fleiri sem fundu Ameríku og höfðu
vit á að týna henni aftur. Fyrst eftir að Kólum-
bus fann loks Ameríku og mönnum varð ljóst
að þarna var meginland gramdist þeim að það
hindraði sjóleiðina til Indlands. Reynt var að
sigla suður fyrir Hornhöfða en sú leið var löng
og hættuleg. Þá var siglt í norður. Hollending-
ar og Englendingar sendu skip yfir Norður-
Atlantshafið. Þar fundu menn fyrst fyrir kaldar
og þokuhjúpaðar strendur Labradors. Þegar
breski skipsjórinn Henry Hudson sigldi inn flóa
mikinn 1619 hélt hann að hann hefði fundið
hina langþráðu norðvesturleið en hann komst
að því að svo var ekki og hét þar síðar Hudson
Bay. Danir máttu ekki láta sitt eftir liggja í
kapphlaupinu um norðvesturleiðina og árið
1619 sendi Kristján IV leiðangur yfir hafið.
Hann komst, með viðkomu á-Grænlandi, til
Hudsonflóa. Skipstjórinn, Jens Munk, nefndi
flóann í hausinn á kóngi sínum og kallaði
Kristjánshaf, en eins og kunnugt er fékk það
nafn ekki góðan hljómgrunn. Leiðangurinn
komst ekki lengra vestur og varð að hafa vetur-
setu í mynni Churchillfljóts. Staðurinn var
nefndur Nova Dania og þar hlutu leiðangurs-
menn dapurleg örlög. Þeir létust einn af öðrum
úr sulti og skyrbjúg og þegar voraði á ný árið
1620 voru aðeins fjórir menn á lífi af þeim 65
sem lagt höfðu upp í leiðangurinn. Þeir voru
tannlausir og gátu ekki gengið. Með því að éta
grængróður tókst þeim að safna nægilegum
kröftum til að halda heim. Skipið rak að mestu
fyrir vindi en þeir komust við illan leik til
Noregs 21. september það haust.
Með þessu lauk landafundaævintýrum Dana
í Norður-Ameríku. En svo vill til að daginn
áður en Danirnir komust aftur til Evrópu lagði
skipið Mayflower með fyrstu innflytjendurna
frá Englandi til Norður-Ameríku. Það var 102
manna söfnuður hreintrúarmanna sem vonað-
ist til að finna nýtt Kanaansland handan
hafsins. Mayflower var lítil galeiða og það tók
hana tvo mánuði að komast yfir hafið. Far-
þegarnir héldu til í lestinni og vistin var afar
erfið. Þegar skipið náði landi, þar sem nú er
Massachusetts, var aðeins um helmingur út-
flyjendanna í tölu lifenda.
Áður en Mayflower kom höfðu loðdýraveiði-
menn flust til Norður-Ameríku í skinnaöflun
og stórir flotar veiðiskipa höfðu stundað veiðar
á auðugum fiskimiðum undan Nýfundnalandi.
Þar var veitt á handfæri, þorskurinn lá svo
þétt að hægt var að hala fleiri hundruð inn
yfir daginn. Þetta var hættuspil en menn gátu
þénað vel, einkum þegar siglt var til kaþólskra
landa í föstubyrjun.
Hollendingar sóttu einnig yfir hafið til Amer-
íku og stofnsettu nýlendu sem þeir kölluðu
Nýju-Amsterdam og seinna varð Nýja-Jórvík,
New York. Norðurlandabúar höfðu þó ekki
alveg sagt sitt síðasta orð á þessum slóðum.
Margir þeirra voru í þjónustu Hollendinga og
áttu því sinn þátt í nýlendustofnuninni. Meðal
þeirra var Daninn Jens Bronck sem var skip-
stjóri á hollensku skipi sem kom til Ameríku
1639. Hann keypti stórt landsvæði þar sem nú
er borgarhlutinn Bronx í New York og heitir
eftir karlinum.
Nýlendunum vestanhafs óx jafnt og þétt ás-
megin og 1776 lýstu Bandaríki Norður-Ameríku
yfir sjálfstæði sínu. Evrópubúar hópuðust vest-
ur um haf og aðbúnaðurinn á Ieiðinni var
yfirleitt hinn hroðalegasti. Fólkinu var þjappað
í lestir skipanna eða á þilfar og margir létust
á leiðinni. En fram til 1845 var útflytjenda-
straumurinn aðeins lítil spræna miða við það
sem á eftir fór.
HIN LÍKUM STRÁÐA LEIÐ
En löngu áður en fólksflutningar hófust fyr-
ir alvöru til Ameríku frá Evrópu hafði þaðan
komið nokkuð sem gjörbreytt hafði mataræði
og lifslíkum fátækra evrópskra bænda. Það var
kartaflan, sem Spánverjar höfðu flutt frá Mið-
Ameríku. Kartöflurækt var auðveld í norðan-
verðri Evrópu og geymdust kartöflurnar vel
yfir veturinn, voru auk þess ódýr og næringar-
rík fæða. Kartaflan bjargaði mörgum frá
hungurdauða og átti stóran þátt í því að fólki
fjölgaði mjog í Evrópu á 18. öld og fyrri hluta
þeirrar 19. írar urðu þannig afar háðir kartöflu-
rækt. Árið 1845 sýktust kartöflur þar í landi
af rotsvepp og afleiðingin varð hungursneyð.
Fólk dó í hrönnum og þeir sem eftir skrimtu
eygðu þá von eina að komast til Ameríku.
Hægt var að fá ódýrt far til Kanada og oft á
tíðum borguðu hinir auðugu ensku landeigend-
ur undir fólkið til að losna við að greiða
fátækraskattinn sem annars var lagður á þá
og var máttvana tilraun yfirvalda til að bjarga
fólkinu.
Til fólksflutninganna voru notaðir allir þeir
dallar og koppar sem mögulega gátu flotið yfir
hafið. Fólkinu var hrúgað í lestamar og ótal-
margir létust á leiðinni. Leiðin frá London og
Liverpool til Montreal eða Quebec var bókstaf-
lega líkum stráð. Farsóttir bmtust út og þeir
sem lifðu af voru settir í sóttkví þegar í land
var komið. I sjúkraskýlinu, sem ætlað var inn-
flytjendunum, voru 200 rúm, en þar voru um
25 þúsund írar.
Á árunum kringum 1840 er talið að um 350
þúsund manns hafi siglt vestur um haf árlega.
Á árunum 1880-90 er þessi tala komin upp í
750 þúsund og hámarki náðu ffutningamir
1905-10 þegar yfir ein milljón manna keypti sér
miða aðra leiðina til Bandaríkjanna og Kan-
ada.
STÆRRI OG HRAÐSKREIÐARI
Eins og nærri má geta blómstuðu skipaút-
gerðirnar. I upphafi 19. aldar fóru þessir flutn-
ingar fram á klippurum, hraðskreiðum
seglskipum. Þeir komust leiðina á 40 dögum.
Það var góður tími á móti hvössum vestan-
vindunum en fyrir aðframkomna og sjóveika
farþegana var hann nógu langur. Fyrsta gufu-
skipið, Savannah, sigldi yfir Atlanshafið 1819
en sannleikurinn er sá að það sigldi fyrir segl-
um nær alla leiðina. Kolin, sem gufuskip þurftu
yfir hafið, tóku svo mikið rými að ekkert annað
hefði komist fyrir um borð. Því þurfti að smíða
stærri skip.
Ungur járnbrautarverkfræðingur, Isambard
Kingdom Brunel, lagði til árið 1835 að smíðað
yrði stórt gufuskip sem sigla skyldi frá New
York til Bristol og vera eins konar fljótandi
járnbraut á milli landanna. Járnbrautarfélagið
Great Western tók tillögu hans til greina og
lét smíða stærsta skip sem þá hafði verið smíð-
að. Það var tréskip, tæpir 65 m á lengd, með
tveimur spaðahjólum og fjórum möstrum. Árið
1838 hóf Great Western fyrstu reglubundnu
gufuskipaferðirnar milli New York og Eng-
lands. Ferðin tók aðeins 15-16 daga og þótti
furðuverk.
Skömmu siðar lét Brunel smíða stærra járn-
skip með risastórri stálskrúfu. Utgerð þessa
22 TBL VI KAN 45