Vikan - 17.07.1986, Page 4
TEXTl OG MYNDIFt: SIGURÐUR HREIÐAR
Bílaprófun Vikunnar:
Menn eru ábúðarmiklir, vitrir á svipinn og
alvöruþrungnir, þegar þeir eru komnir til fram-
andi landa að skoða og prófa nýjar gerðir af
bílum, gera sér far um að vera harðir naglar
(eða neglur því stöku kvenmenn sjást innan
um) og strax og fyrsta færi gefst er gefið harka-
lega í - kannski svipt fyrir beygju með nauð-
hemlun innan nokkurra metra - svo vælir í
dekkjum og vélamar stynja. Því sá sem prófar
bíla á að fínna bæði sterku hliðarnar og veiku
punktana til að geta kveðið upp dóm sem ekki
skeikar og frætt góðfúsa (og líka meinfúsa) les-
endur um hvort viðkomandi bíll stendur fyrir
sínu eður ei.
Nú er aldarfjórðungur síðan ég byrjaði að
prófa bíla fyrir blöð. Vissulega hafa komið hlé
í þessa iðju og satt að segja er ég ekki sami
dellukarlinn og þegar ég byrjaði. Þá vissi ég
allt um alla bíla. Nú veit ég bara sumt um suma.
Samt hef ég enn ótrúlega gaman af að aka bíl-
um - alls konar bílum, stórum og smáum.
Sumum bílafríkum kemur það mjög á óvart að
ég fmn þeim öllum til ágætis nokkuð. Jafnvel
fábrotnir bílar og frumstæðir eiga að vissu
marki vin í mér - ég hef þá gaman af þeim fyr-
ir það hve frumstæðir þeir eru og fábrotnir.
Það er heldur ekki hægt að leggja einn
mælikvarða á alla bíla. Þeir eru gerðir með
mismunandi kröfur í huga og mismunandi þarf-
ir. Einn er kannski aðeins gerður með það fyrir
augum að koma ekli sínum og farþegum frá
staðnum A til staðarins B. Annar er gerður til
að gera það með sæmilegum þægindum og
kannski hafa dálítið dót með líka. Sá þriðji
gæti svo verið gerður til þess að inna þetta
hlutverk af hendi með hámarks þægindum fyr-
ir íseta sína, hámarks akstursöryggi og unaði
fyrir ökumanninn. Og svo eru náttúrlega þeir
sem eru einkum til þess gerðir að koma svo og
svo mörgum tonnum af flutningi frá A til B.
En alltaf er jafngaman að finna bíl með mikla
og vel útfærða vélarorku, þægilega innréttingu
og mikla aksturshæfni. Þetta gerðist nú í vor
þegar mér gafst færi á að prófa Lancia Delta
suður á Sardiníu. Og það var þetta tækifæri
sem ég skírskotaði til hér í upphafi. Því það
er satt að segja dálítið spaugilegt að sjá alla
þessa kunnáttumenn búa sig undir bílaprófun,
fámælta og fráneyga, sem allir reyna að líta svo
út í augum hinna að þeir séu sá eini sem raun-
verulega kunni til þessara verka. Á eftir hleypa
menn í brýrnar og eru jafnfámæltir sem fyrr
til þess að opna ekki leyndardóma alvisku
sinnar fyrir hinum sem minna (allt niður í lít-
ið) kunna fyrir sér.
Ég ætla ekki að fara hér út í nákvæma tækni-
lýsingu á Lancia Delta, bara að segja ykkur
svolítið frá honum eins og hann kom neytand-
anum fyrir sjónir. Enda er ég viss um að minn
fráneygi alvarleiki í Sardiníusól var sem hjóm
eitt hjá þeim sem stöðugasta reynslu hafa að
baki og segja lesendum sínum með sannfæringu
að megingalli á tilteknum bíl sé sá að stýris-
stöngin liggi í 180 gráður í staðinn fyrir beint
- eða eitthvað annað álíka.
Nýtt kram í gömlu boddíi
Lancia Delta er nýr framhjóladrifinn bíll í
sjö ára gömlu boddíi. Þegar ég segi nýr meina
ég að allt kramið í honum er nýtt. Boddíið á
nýjum bíl er að sjálfsögðu nýtt líka (ég segi
þetta bara til öryggis), þetta með sjö ára aldur-
inn táknar það eitt að bílar með nákvæmlega
þessu útliti hafa fengist í sjö ár. Þetta útlit er
svo sem ekkert alveg spes, þokkalegt og gilt
en vekur enga sérstaka athygli. En hönnunin
er praktísk og hefur líkað vel. Og þeir Lancia-
menn segja: Þetta er þrauthugsað og þrautreynt
útlit sem selst vel. Af hverju ættum við að
breyta því, aðeins breytinganna vegna, og
standa svo uppi með bíl sem væri dýrari en
hann þyrfti að vera? - Út af fyrir sig er þetta
ágætis svar.
Við prófuðum þrjár útfærslur af Deltunni,
þær þrjár sem líklegastar eru til að verða sölu-
bílar hér á íslandi, nú þegar Bílaborg er farin
að flytja inn handa okkur Lanciabíla. Ódýrasta
útfærslan var Lancia Delta GT i.e., bíll sem hér
kemur til með að kosta eitthvað um 450 þúsund
krónur. Næst í verðröðinni var L.D.HF túrbó,
sem hér verður á ca 535 þúsund, og dýrust var
L.D.HF 4WD, skruggukerra með sídrifi, sem
hér kemur til með að kosta um 680 þúsund.
Verðið, sem hér er nefnt, sýnist mér að sé vel
samkeppnisfært við þá bíla sem helst má telja
keppinauta Lancia Delta á íslenskum markaði.
Sem fyrr segir eru þessir bílar allir eins í
útliti. Þeir eru frekar í minni brúninni hvað
stærðina snertir, tæpir fjórir metrar á lengd,
allir með hlera að aftan og möguleika á að
leggja aftursætin niður, að hálfu eða öllu. Fjór-
ar hurðir hefur bíllinn þar fyrir utan og tekur
fimm í sæti. Vel rúmt er um alla sem i honum
sitja. Þó er ekki fjarska hátt undir loft fyrir
þá sem sitja aftur í í GT i.e. eða 4WD. Áklæði
var gott á dýrari gerðunum, rúskinnslíki (alc-
antara) sem auðvelt er að þvo, með notalegu
taui í milli. Hins vegar var það vont á GT i.e.
4 VIKAN 29. TBL