Vikan - 17.07.1986, Side 6
Sumarsnyrting
Fatatískan í sumar er mjög fjölbreytt, mörgum
litum blandað saman og allt leyfilegt. Það á
einnig við um andlitsförðunina. Varalitir og
maskarar fást í miklu litaúrvali, til dæmis
grænir og bláir varalitir og gulir maskarar.
Þó að allt sé leyfilegt er nauðsynlegt að nota
snyrtivörurnar rétt. Til að leiðbeina okkur
fengum við Kristínu Stefánsdóttur á snyrti-
stofunni NN, Laugavegi 27. Þar fást snyrtivör-
ur frá No Name og Star Gazer. Þessar vörur
fást eingöngu á snyrtistofunni NN. Módelið
er Valentína Björnsdóttir. Athugið að við
skammstöfum No Name NN og Star Gazer SG.
Áhöldin, sem notuð eru við snyrtinguna, eru,
talið frá vinstri, snyrtipinnar, pappírsþurrkur,
svampur og púðurkvasti fyrir meik, púður-
bursti, kinnalitarbursti, augnháragreiða,
augnstrikabursti, augnskuggabursti með hár-
um og annar með svampi og síðast er varalitar-
pensill. Augnskuggabursti með hárum dreifir
litnum betur en sá með svampinum. Púður-
kvastinn er fyrir laust púður.
Áður en andlitið er farðað er húðin hreinsuð
með andlitsvatni og gott rakakrem borið á.
Biðið svolitla stund eftir að kremið er borið á
svo að rakinn fari vel inn í húðina. Farði fer
ekki illa með húðina ef hún er hreinsuð vel á
eftir. I mörgum tilfellum verndar farðinn húð-
ina, til dæmis gegn kulda. Baugahyljari hylur
bauga, bólur, æðaslit og roða. Berið hann á ef
þess þarf. Hér er notað Cover up nr. 1 en þrír
misdökkir litir eru til.
6 VIKAN 29. TBL