Vikan - 17.07.1986, Page 8
Mótið varirnar með varalitarblýanti. Varalit-
urinn rennur síður út ef blýanturinn er notaður.
Blýanturinn er hafður dekkri en varaliturinn.
Hér er notaður brúnn blýantur, Coffee frá NN.
Appelsínugulur varalitur nr. 92 frá NN er bor-
inn á með varalitarpensli til að fá jafna áferð.
KVÖLDSNYRTING:
Snyrtingin er að öllu leyti unnin eins og dag-
snyrtingin en litirnir eru hafðir sterkari. I
sumar eru margir litir notaðir í kringum aug-
un, allt upp í fimm litir í einu. Ljós litur er
settur í augnkrókinn, dökkur yst og millilitur
á mitt augnalok. En hér notum við bara einn
lit á allt augnalokið, mildan fjólubláan lit,
Grape frá SG. Augnstrik eru komin í tísku aft-
ur. Blautur litur til að gera þau fæst í mörgum
litum, hér er notaður svartur. Notið pensil og
dragið örmjóar línur sem breikka út. Það er
vandasamt en æfingin skapar meistarann. Und-
ir augað er settur rauðbleikur litur, sami litur
og notaður er á kinnarnar. Inn í hvarmana er
settur hvítur blýantur, það stækkar augun.
Svartur maskari er settur á augnhárin og íjólu-
blár maskari á augabrúnirnar. Kinnaliturinn
og varaliturinn mega vera áberandi í kvöld-
snyrtingunni. Kinnaliturinn er rauðbleikur
eins og áður kom fram og á varirnar er notað-
ur fjólublár blýantur, fjólublár varalitur nr. 24
og örlítið af blóðrauðum lit nr. 16. Báðir eru
frá NN.