Vikan - 17.07.1986, Síða 16
Hér á síðunni birtast svör læknanna Gests
Þorgeirssonar, Helga Kristbjarnarsonar, Jó-
hanns Ágústs Guðmundssonar, Leifs Bárðar-
sonar, Ottars Guðmundssonar og Sigurðar
Guðmundssonar við spurningum lesenda.
Við bjóðum lesendum bæði að senda bréf með
vandamálum sínum og hringja. Hringja má á
þriðjudags- og miðvikudagsmorgnum frá níu til
tólf en utanáskriftin er: Læknisvitjun Vikan Frjáls
fjölmiðlun hf. Pósthólf 5380 125 Reykjavík.
VORTUR
SPURNING:
Ég er 1 6 ára og búin að hafa
vörtur á höndunum í eitt ár. Þrátt
fyrir alls konar tilraunir til þess að
ná þeim af hafa þær ekki farið
ennþá. Hvað er hægt að gera í
þessu?
SVAR:
Til eru ýmsar tegundir af vörtum
og mun algengastar eru vörtur á
fingrum og fótum sem orsakast
af vírus. Virus þessi tekur sér ból-
festu í efstu lögum húðarinnar.
Eins og flestum er kunnugt eru til
óteljandi aðferðir og húsráð til
þess að ná af sér vörtum og eru
sumir sannfærðir um ágæti þeirra.
Má þar nefna ráð eins og að sleikja
vörtuna á hverjum morgni, nudda
hrárri kartöflu á vörtuna og svo
framvegis. Ekki verður hér tekin
afstaða til þessara góðu húsráða
en rannsóknir hafa sýnt að 70%
af vörtum hverfa sjálfkrafa innan
2ja ára frá því að þær mynduðust
fyrst.
MEÐFERÐ
Til eru ýmsar læknisaðferðir til
þess að ná af sér vörtum. Einfald-
ast er að nota svonefnt vörtueitur
sem borið er á vörtuna og oft
nægir þessi meðferð. Ef þessi
meðferð reynist ekki bera árangur
er oft gripið til annarra aðferða.
Áður fyrr voru vörtur oft skornar
af eða brenndar. Nú þykir það
óhentugt þar eð við það geta
myndast ör sem þá geta valdið
óþægindum það sem eftir er
ævinnar.
Á siðari árum hefur frysting á
vörtum með fljótandi köfnunar-
efni verið vinsæl aðferð, sérstak-
lega i heimilislækningum. Margir
heimilislæknar og húðlæknar hafa
nú komið sér upp aðstöðu til þess
að frysta vörtur á þennan hátt. Hér
er um að ræða fljótandi vökva sem
er -196 stig á C og lagður á vört-
una og við það frystist hún og
efsta lag húðarinnar drepst og
vartan dettursiðan af eftir 2-3 vik-
ur. Árangur af þessari meðferð er
talinn nokkuð góður sé um vörtur
á höndum að ræða og má þá bú-
ast við að um 70% þeirra sem fá
slíka meðferð hafi losnað við vört-
ur innan eins mánaðar.
ILVÖRTUR
Vörtur á iljunum eru mun erfið-
ari viðureignar þar eð vartan sjálf
hefur oftast gengið inn í holdið
og er rótin því2-5 mm inni í fætin -
um. Frysting með köfnunarefni
hefur gefið frekar slæman árangur
i slíkum tilvikum og mælt er með
vörtueitri eða líkþornaplástri til
þess að losa upp hornlagið. Laus
húð ersiðan skröpuð burtu. Þann-
ig er haldið áfram i 2-4 vikur þar
til rótin á vörtunni nálgast yfir-
borðið en þá er hægt að beita
sömu aðferð og að ofan getur sé
þess þörf.
Er þetta vont? Já.
Við frystinguna myndast blaðra
undir vörtunni, svipað og við
bruna. Þessu fylg/r einhver sárs-
auki en þess má geta að þetta er
yfirleitt gert án deyfingar. Ágætt
er að taka einhverjar verkjatöflur
fyrir meðferðina eða á eftir.
Þess má geta að frystar hafa
verið í einni lotu 60 vörtur á hönd-
um 8 ára gamals drengs án þess
að hann kveinkaði sér.
NJÁLGUR
SPURNING:
Sonur minn, 3ja ára, er á dag-
heimili. Hann hefur einu sinni
fengið njálg og mér hefur þrisvar
sinnum verið tilkynnt að njálgur
sé á dagheimilinu. Er óhætt að
gefa krökkunum alltaf aftur og
aftur þessi meðul?
SVAR:
Njálgur er lítill ormur, um 1-1 'A
cm að lengd, hvítleitur á lit og að
gildleika á við tvinnaspotta. Njálg-
urinn lifir aðallega i neðri hluta
þarmanna i mönnum og æviskeið
hanserum 1-2 mánuðir. Kvendýr-
ið verpir eggjum við endaþarms-
opið og við það fær viðkomandi
oftast kláða. Hér er þó aðallega
um börn að ræða. Talið er að fjöldi
fólks geti verið með njálg án þess
að finna fyrir því. Eggin geta síðan
geymst í nærfötum, sængurfatn-
aði, handklæðum og öðrum
fatnaði i margar vikur. Þegareggin
koma siðan upp i sama einstakling
eða einhvern annan berast þau
niður meltingarveginn og verða
að nýjum njálgsbörnum sem siðan
byrja að fjölga sér á sama hátt.
Viða I Evrópu eru um 80% barna
alltaf með njálg.
MEÐFERÐ
Smit verður sérstaklega frá
börnum og er því skiljanlegt að
börn, sem eru á dagheimilum, séu
oft með njálg. Oftast verður að
meðhöndla alla fjölskylduna hjá
því barni sem hefur njálg. Ef barn
er á dagheimili, þar sem njálgur
er alltaf að skjóta upp kollinum,
gæti verið nauðsynlegt að með-
höndla öll börnin sem eru á sömu
deild en þó er ekki nauðsynlegt
að meðhöndla foreldra einkenna-
lausu barnanna.
Þar eð minnst 2-8 vikur líða frá
þvi að njálgseggið kemst upp i
viðkomandi og þar til það fer að
valda kláða og óþægindum við
endaþarm getur þurft að með-
höndla sum börn eða jafnvel
fjölskyldur á mánaðar fresti i 2-4
skipti til þess að losna endanlega
við þetta sníkjudýr.
GREINING
Öruggasta greiningin er að sjá
orminn með berum augum. Einnig
er hægt að leita eftir eggjum með
því að setja límband við enda-
þarminn og skoða siðan I smásjá.
Margar mæður telja það vera ein-
kenni um njálg þegar börn þeirra
gnista tönnum. Þetta einkenni
hefur þó sennilega ekkert með
njálg að gera.
16 VI KAN 29. TBL