Vikan

Eksemplar

Vikan - 17.07.1986, Side 18

Vikan - 17.07.1986, Side 18
ASTFANGIN [TVENNUM SKILNINGI Rsett við Þóru Kristínu Johansen semballeikara Tala við mig.. .um hvað? Ég hef ekki frá neinu að segja. Það er Þóra Kristín Johansen semballeikari sem hefur orðið þegar ég falast eftir viðtali við hana. Ég minni hana hæversklega á að ég þekki hana að öðru en hún eigi erfítt með að tjá sig. Þóra hlær hvellum hlátri eins og henni er svo eiginlegt og segir: „Já, það er satt, ég hef löng- um verið í vandræðum með munninn á mér. En ég er þrælupptekin á morgun því börnin mín eiga með mér morgundaginn. Komdu bara eftir sjö, við getum spjallað yfir kínamat." Kvöldið eftir erum við Valdís ljósmyndari því mættar við dyr merktar no. 37 við Nova Semblastraad og hringjum dyrabjöllunni. Að innan heyrum við hávær orðaskipti á hollensku og erum ekki í vafa um að við séum á réttum stað. í því sviptir Þóra upp hurðinni og býður okkur inn. „Ég var að koma börnunum í rúm- ið, engin smáátök því þau eru enn æst eftir daginn," segir hún. „Við erum búin að vera í bænum í allan dag, tókum þátt í þessu hol- lenska fyrirbrigði, „drottningardeginum“. Börnin hreinsuðu geymsluna og seldu drasl fyrir 69 gyllini niðri á Leitzerplan,“ heldur hún áfram. Við Valdís komum okkur fyrir í stofunni sem tæplega er hægt að segja að líkist þessum hefð- bundnu íslensku stofum. En við kunnum strax vel við andrúmsloftið. í stofunni er aðeins stórt furuborð ásamt stólum, sjónvarpsskermur og listaverk eftir Sigurð Guðmundsson og aðra viðurkennda listamenn í Hollandi. Að sjálf- sögðu skipar „dýrgripurinn“ hennar Þóru, sembalinn, verðugan sess í stofunni. Það sakar heldur ekki að nefna að hinn sterki persónu- leiki Þóru hefur líka notaleg áhrif. „Hollendingar leggja ekki svo mikla áherslu á húsbúnað og húsakynni," segir Þóra. „Hol- lendingar kjósa að nota peningana sína til að ferðast og njóta lífsins. fslendingar gætu mikið lært af Hollendingum, þó ekki nema að vera ekki eilíft að eltast við náungann í lífsgæða- kapphlaupinu.“ Þóra heldur langa tölu um muninn á þessum tveim þjóðum, sem þó eru kannski ekki svo ólíkar þegar grannt er skoðað. Við hefðum trú- lega getað talað um eyðslusemina í íslendingum og aðhaldssemina í Hollendingum langt fram á nótt en ég var komin til að forvitnast um mann- eskjuna og listakonuna Þóru. Þóra Kristín Johansen hefur búið í Hollandi í 15 ár og er gift hollenskum myndlistarmanni, Keer Van Gelder. Þau eiga tvö börn, frisi sex ára og Hákon átta ára. Keer, eiginmaður Þóru, rekur gallerí sem gengur prýðilega, að vísu kvartar Þóra yfir ferðalögunum sem fylgja slík- um rekstri en eigi að síður hafa þau komið sér vel fyrir í Amsterdam. En hvað varð til að Þóra settist að í Hollandi? „Það er ósköp einfalt mál,“ segir hún, „ég varð hreinlega ástfangin í tvennum skilningi, ástfangin af manninum mínum og sembalnum. Ég kom hingað eftir að ég útskrifaðist frá Tón- listarskólanum heima og ætlunin var að dvelja hér í eitt ár við framhaldsnám í píanóleik, en á miðju tímabili í náminu kynntist ég sembaln- um. Síðan hef ég varla snert píanó, að vísu kenni ég átta stundir á viku en ég spila ekki á píanó.“ Kostaði það ekki heilmikið viðbótamám að skipta úm hljóðfæri? „Jú, ég þurfti að byrja alveg upp á nýtt, þetta eru svo ólík hljóðfæri, og í rauninni þurfti ég að hefja sembalnámið eins og ég hefði aldrei lært á píanó, það tók mig sex ár, þrjú ár í Amsterdam og önnur þrjú í Groningen.“ Hvað tók við eftir allt þetta nám? „Ég fór að kenna bæði á sembal og píanó því það var einlægur ásetningur minn að halda mig við kennslu en það hefur svo sannarlega breyst því síðastliðin sex ár hef ég eingöngu verið í að halda konserta." Hvað varð þess valdandi að þú umsnerist? „Skólinn, sem ég starfaði við eftir námið, er ákaflega skemmtilegur. Skólastjórinn þar er mikill áhugamaður um nútímatónlist, yndisleg- ur og skemmtilegur maður. Hann hafði þá reglu að kennararnir voru skyldaðir til að halda tvo konserta á ári. Ég gat að sjálfsögðu ekki skor- ast undan og það varð mér til happs að við skólann starfaði gítarleikari, Wim Hoogwerf, mjög fær maður. Hann var einmitt nýlega að halda tónleika heima á vegum Musica Nova. Hann hafði sem sagt samband við mig og spurði hvort ég væri til í spila með sér Boccorini sem er strengjaverk útfært fyrir sembal og gítar. Jú, ég var til í það, var dauðfegin að þurfa ekki að spila sóló. Þetta var því byrjunin á konsertferli mínum.“ Hvað tók svo við? „Við Wim héldum síðan áfram að spila sam- an, héldum konserta hér í Amsterdam og í framhaldi af því fóru okkur að berast boð um að halda konserta í Frakklandi, Þýskalandi og víðar. En það er erfitt að halda út með verk sem eingöngu eru samin fyrir sembal og gítar. Stöðugt þarf að leita að tónskáldum til að semja því vanalega er samið sérstaklega fyrir ákveðin hljóðfæri og jafnvel fyrir hljóðfæraleikarana sem slíka.“ Leikur ykkar Wim stóð þó yfir í nokkur ár, ekki satt? „Jú, við spiluðum saman í tvö þrjú ár en eins og ég nefndi áður er úr svo litlu að spila því að það eru svo fáir kompónistar sem semja fyr- ir sembal og gítar. Við vorum því komin í þrot með kompónista en fundum einn sænskan sem samdi fyrir okkur verk og þar bættist synt- hesizer við. Þá kynntist ég synthesizer og finnst æðislegt að hafa hann með. Lárus Grímsson samdi svo verk fyrir okkur Wim, dásamlegt verk, og þá festist endanlega í mér synthesizer- bakterían.“ Hefur þú ekki spilað með fleirum en Wim? „Jú, við Martin Vander Valk slaghörpuleik- ari, einn sá færasti hér, tókum okkur saman og höfum haldið nokkra tónleika. En það er það sama með slaghörpuna og sembalinn, fáir semja nútímatónlist fyrir þessi hljóðfæri.” Hvað er Þóra Kristín Johansen að fást við þessa dagana? „Núna er ég að æfa og æfa öllum stundum, yndislegt verk sem Lárus er að semja fyrir mig. Þetta verk verður frumflutt á samnorrænni listahátíð sem mér skilst að sé á vegum afmælis- hátíðar Reykjavíkurborgar. Ég veit ekki mikið um þetta annað en að mínir tónleikar verða 20. júlí, haldnir í stóru tjaldi á gamla Melavell- inum. Ég ligg því hér á gólfinu með Jane Fonda á snældu því ég verð að vera komin í gott líkam- legt form í júlí. Verkið hans Lárusar er einleiks- verk fyrir sembal og synthesizer, stórkostlegt verk. Og ég er með synthesizer uppi á sembaln- um, er ekki enn búin að finna bestu stellinguna, hvort ég á að standa eða sitja, þó tekur þetta ekki nema tólf mínútur í flutningi.“ Þóra heldur áfram að tala um hjartans áhugamálið, sembalinn og nútímatónlist. En nú tek ég af skarið og spyr hana hvað sé með gömlu meistarana, hvort hún spili aldrei neitt kassískt því af nógu sé að taka þar. „Já, það er rétt, það hafa verið samin í gegn- um aldirnar klassísk verk fyrir sembal en ég ánetjaðist nútímatónlistinni svo snemma að það hefur einfaldlega ekki komið til að ég spili barokk. Hér í Hollandi eru hundruð sembal- leikara sem spila barokk og gera það miklu betur en ég. Ég er þó ekki að segja að ég hafi ekki gaman af gamla, góða Bach og Cubori, spila þá stundum mér til yndis og ánægju.“ Hvað með píanóið? Nú kennirðu á píanó. „Já, já, ég kenni líka á sembal, peningarnir, kona, maður verður að eiga fyrir brauði. Það eru nú samt breytingar í vændum í sambandi við kennsluna. Hollendingar eru með herferð í gangi að leita uppi útlendinga sem vinna hér ólöglega. Ég kenni við skóla á vegum hins opin- bera og þar byrja þeir. í Hollandi má maður kenna ef maður hefur próf frá hollenskum skóla. Heima á íslandi útskrifaðist ég sem píanókennari og það dugar þeim ekki. Til að halda áfram að kenna á píanóið verð ég að taka próf, alveg pínþungt sem mér dettur ekki í hug að fara að taka, ég hef varla snert píanó í fimmtán ár. Þannig er þetta eiginlega lán í óláni því peninganna vegna hefði ég ekki hætt en þarna fæ ég gott færi á að hætta píanó- kennslunni án samviskubits." Ertu endanlega sest að í Amsterdam eða eig- um við von á að fá þig heim? „Ég held að ekki komi til greina að flytjast heim. Fjölskyldan er hollensk og ég finn heil- mikinn Hollending í mér sjálfri, að minnsta kosti er ég orðin hagsýn og það hlýtur að vera hollenskt. En ég er ekki að leyna því að eftir því sem árin líða finn ég alltaf meiri og sterk- ari þörf fyrir að komast heim til íslands. Mér finnst stundum að ég nái ekki andanum hér og þá veit ég að ég verð að komast heim minnst tvisvar á ári.“ Hvað er það sem þér finnst þú fá við að koma heim? „Stressið (þessu fylgir mikill og hár hlátur). Nei, ég held að það séu fjölskyldutengslin sem ég sakna. Hér í Hollandi er varla að börnin þekki ömmu sina og afa, ég tala nú ekki um föðursystkini. Mig langar líka að börnin mín læri íslenskuna almennilega, það er ekki af því ég hafi ekki lagt mig fram. Við Hákon, eldra barnið mitt, töluðum alltaf íslensku fyrstu fimm árin en eftir að hann fór að umgangast hol- lensk börn og byrjaði í skólanum vildi hann ekki tala meira við mig, svaraði mér ævinlega á hollensku þó ég talaði til hans á íslensku. Það endaði með því að hann sagðist ekkert vilja tala þetta ,,asnalega“ mál og auðvitað hafði það áhrif á írisi, hún skilur varla orð, en Hákon skilur þó hann vilji ekki tala. Ég er að hugsa um að leysa þetta málavandamál með því að koma þeim í sveit eða sumarbúðir heima á Islandi. Ekki er hægt að þvinga þau til að tala íslensku." Við erum farnar að geispa og Valdís búin að mynda Þóru í bak og fyrir, erum því farnar að hugsa um rúmin okkar. Þóra tekur það ekki í mál, segir að við séum ekki á hverjum degi í Amsterdam, hún hafi verið að spjalla við Lárus Grímsson í síma rétt áðan og hann vilji endi- lega fá okkur með út á lífið. Það varð því úr að við gengum út í heita nóttina, ekki hægt að fá leigubíl. Þóra stjórnaði ferðinni og við höfum ekki fleiri orð um það.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.