Vikan

Útgáva

Vikan - 17.07.1986, Síða 22

Vikan - 17.07.1986, Síða 22
V I D MYND VIKUNNAR Klassískur þriller ★ ★ ★ ★ Maðurinn sem vissi of mikið (The Man Who Knew Too Much). Leikstjóri: Alfred Hitchcock. Aðalleikarar: James Stewart og Doris Day. Sýningartími: 115 mín. Þótt Maðurinn sem vissi of mikið sé ekki meðal allra frægustu mynda hryllingsmeistar- ans Alfreds Hitchcock er hún samt meistara- verk á sviði sakamálamynda og hefur lítið tapað gildi sínu á þeim þrjátíu árum sem liðin eru frá því hún var gerð. A þessum árum var James Stewart sá leikari sem Hitchcock notaði oftast og í þeim fjórum myndum, sem Laugarásbíó hefur gefið út af eldri myndum Hitchcocks, leikur hann aðal- hlutverkið. í Maðurinn sem vissi of mikið leikur hann lækni sem er á ferðalagi í Marokkó ásamt konu sinni og syni. Af tilviljun hittir hann franskan mann sem eiginkonan telur strax grunsamlegan. Takast kynni með þeim og það leiðir svo til kynna við eldri hjón sem eru einnig á ferðalagi. Leikurinn fer að æsast þegar þau verða vitni að því er Fransmaðurinn er drepinn. Læknirinn fer á lögreglustöðina en drengur- inn er skilinn eftir hjá eldri hjónunum. Þegar svo á hótelið er komið komast þau að því að drengnum hefur verið rænt, bersýnilega af hjónunum sem þau stofnuðu til kunningsskap- ar við. Þau geta ekki gert sér grein fyrir af hverju drengnum þeirra var rænt. Samt halda þau til London en líkur eru taldar á að hann sé þar í haldi. Læknirinn neitar aðstoð lögreglunnar og vill frekar sjálfur fara eftir upplýsingum sem hann hefur undir höndum. Upplýsingarnar leiða hann á slóð hjónanna er hafa barn hans í haldi. Hefst nú langt og æsispennandi lokaat- riði sem fer að mestu fram í Albert Hall... Maðurinn sem vissi of mikið er gott dæmi um fáguð og vönduð vinnubrögð meistara Hitc- hcocks. Smáatriðin fá að njóta sín vel og spennan, sem er í fyrstu í lágmarki, magnast smám saman þangað til hún nær hámarki í atriðinu í Albert Hall sem er frábærlega vel gert og heillandi. James Stewart er traustur að vanda. Doris Day leikur sjálfsagt hér sitt besta hlutverk og það skiptir máli fyrir myndina að hún er ágæt söngkona. Maðurinn sem vissi of mikið er mynd sem óhætt er að mæla með fyrir alla sem vilja sjá góðar sakamálamyndir. uEssential IllTCHCOCK THE MAN WHO KNEW TOO MUCH A little knowlcdge is a dangerous thing. /SLE/VSKUfí TEXTI csc LEYNIFARMURINN (SKY PIRATES) ★ ★ Leikstjóri: Colin Eggleston. Aðalleikarar: John Hargreaves, Meredith Phillips og Max Phipps. Sýningartími: 96 mín. BEVERLY HILLS CONNECTION ★ Leikstjóri: Corey Allen. Aðalleikarar: James Brolin, Amanda Rider og David Hemmings. Sýningartími: 91 mín. Leynifarmurinn er um Harris flugforingja s_em er nokkurs konar Indiana Jones þeirra Ástralíumanna. Og það má hafa nokkurt gaman af svaðilförum Harris. Gallinn er bara sá að við gerð allra tæknibrellna hefur söguþráður- inn orðið útundan svo úr verður samsuða sem erfitt er að fá botn í. Myndin gerist við lok síðari heimsstyrjaldar- innar. Harris er að flytja farm sem hann veit ekki að er stórhættulegur mönnum. Er hér ekki um jarðneskan farm að ræða heldur óbeisl- aðan kraft frá öðrum heimi í formi steinplötu einnar. Platan er brotin og trúin er að sá sem finnur hinn helminginn muni um síðir stjórna heiminum. Það eru því nokkrir þrjótar sem ræna plötunni og fara með hana til Páskaeyja en þar mun hinn helmingurinn vera... Það er mikill hraði í myndinni og nokkur atriði ágætlega gerð en í heild er hún nokkuð langt frá fyrirmyndinni. Það ættu allir að vera farnir að þekkja Jam- es Brolin, hann leikur aðalhlutverkið i Hótel, hótelstjórann sem aldrei breytir um svip. Hér leikur hann lögregluþjón í Beverly Hills. Sá fær það verkefni að fylgja og leiðbeina öðrum lög- regluþjóni sem er ung stúlka, komin til Hollywood til að rannsaka morð á vinkonu sinni. Lögreglukonan, sem heldur i sakleysi sínu að vinkonan hafi lifað heiðarlegu lífi, kemst fljótt á aðra skoðun. Þau skötuhjúin lenda í ýmsum ævintýrum áður en botn fæst í morðmálið. Þar fer saman hinn klassíski elt- ingaleikur, byssubardagi og fleira sem einkenn- ir slíkar myndir. Beverly Hills Connection er í þynnra lagi. Allt sem hér sést hefur verið gert margoft áður og tónlistarhöfundurinn hefur greinilega hlust- að oft á tónlistina úr Beverly Hills Cop. Beverly Hills Connection er sæmileg afþreying en ekk- ert meir. 22 VIKAN 29. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.