Vikan - 17.07.1986, Qupperneq 56
VIKAN
STJÖRNUSPÁ
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA 17.-23. JÚLÍ
HRÚTURINN 21. mars -20. apríl
Hlauptu ekki úr einu í annað ef þig
langar að láta eitthvað sjást eftir
þig. Hikaðu ekki við að hafna því
sem þig langar ekki til að gera og
láttu aðra ekki ráðstafa þér að þér
forspurðum. Vanræktu samt ekki
kunningjana, með þeim geturðu átt
góðar stundir sem lengi verða í
minnum hafðar.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Ekki skortir hugmyndaflugið, ann-
að er að hrinda áformunum í
framkvæmd. Þú skalt vera við því
búinn að ýmsir reyni að leggja stein
í götu þína en áður en þú lætur
úrtölur hafa áhrif á þig skaltu íhuga
hvort þær kunni að vera sprottnar
af einskærri öfund. Varastu að eyða
um efni fram.
LJÓNIÐ 24. júlí-24. ágúst
Það verður allt á ferð og flugi í
kringum þig og ýmislegt skemmti-
legt kemur upp á. Þótt fyrirætlanir
þínar fari forgörðum er vel þess
virði að fórna einhverju til að taka
þátt í ýmsu af þessu. Athugaðu
hvort þú getur ekki liðsinnt öldruð-
um ættingja þínum sem ekki biður
um aðstoð.
VOGIN 24.-23. okt.
Það standa á þér öll spjót og til
þess að ná áttum verðurðu að gera
upp við þig hvað þú vilt í raun og
veru sjálfur. Það er ófært að hlaupa
til í hvert sinn sem einhver kallar
og þú gerir meira gagn ef þú tekur
ákveðna afstöðu í stað þess að vaða
úr einu í annað án þess að ljúka
nokkru.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
Allt gengur að óskum í máli sem
lengi hefur verið að bögglast fyrir
þér og þú sérð að þú hefur miklað
fyrir þér. Nú áttu sannarlega skilið
að slaka á, njóta lífsins og sletta
úr klaufunum eins og þér er lagið.
Þú átt ánægjulegt tímabil í vændum
og ættir að einbeita þér að því að
njóta þess.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
Þér vinnst vel ef þú lætur ekki sí-
fellt trufla þig með smámUnum. Nú
er tilvalið fyrir þig að bregða undir
þig betri fætinum og fara í ferðalag.
Hvernig væri að hóa saman mann-
skap og skreppa í útilegu, þó ekki
væri nema um helgina? Þú hefur
nefnilega vanrækt vini þína upp á
síðkastið.
NAUTIÐ 21. apríl-21. maí
Þú verður að láta hendur standa
fram úr ermum ef þér á að takast
allt það sem þú hefur hug á. Þótt
eitthvað kunni að fara úrskeiðis til
að byrja með áttu góða möguleika
á að ná markmiðum þínum og sæk-
ir í þig veðrið er líða tekur á vikuna.
Komdu efasemdamönnum í skilning
um að þú sért einfær.
KRABBINN 22. júní-23. júlí
Láttu heimiliserjur ekki setja þig
úr jafnvægi. Taktu á málunum með
festu og sanngirni og mundu að fátt
er svo með öllu illt að ekki boði
nokkuð gott. Þér er hollast að leit-
ast við að umgangast sem mest það
fólk sem þér fellur vel við en hikaðu
ekki við að sniðganga þá sem þér
leiðist.
MEYJAN 25. ágúst-23. sept.
Nú er ekki réttur tími til að taka
fjárhagslega áhættu þótt freistandi
kunni að virðast. Þér hættir til að
leita langt yfir skammt og ættir að
hafa hugfast að hafa má sanna gleði
af ýmsu því sem er við bæjardyrnar
og ekki þarf endilega að kosta
miklu til. Gefðu mataræðinu góðan
gaum.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Þú lendir í útistöðum við einhvern
sem miklu skiptir að halda góðu
sambandi við. Þetta er þó tíma-
bundið og ef þú gætir þess að erfa
ekki við þann hinn sama þótt hann
hlaupi á sig ætti allt að falla í ljúfa
löð fyrr en varir. Helgin bregst
varla þeim sem eru á höttunum eft-
ir skemmtilegum félagsskap.
STEINGEITIN 22. des.-20. jan.
Þú hefur mörg tækifæri til að láta
gott af þér leiða og sérð ekki eftir
að nýta þau. Þeir sem til þín leita
fara varla bónleiðir til búðar og þér
kemur vel að eiga hönk upp í bakið
á vinum þínum. Þegar þar að kemur
skaltu alls ekki hika við að notfæra
þér það. Gættu hófs í mat og drykk
á næstunni.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Þér berast fréttir úr fjarlægð og þær
gleðja þig mjög. Reyndu að vera
ekki óþarflega afundinn við þá sem
ekkert hafa gert á hluta þinn. Það
verður til þess að fólk fær alrangar
hugmyndir um þig og að þyí kemur
að þú geldur þess illilega. Á sunnu-
daginn lánast þér nánast hvað sem
þú tekur þér fyrir hendur.
Þegar að því kemur að velja sér lífsförunaut er hyggilegt
fyrir krabbann að vanda sig. Ekki svo að skilja að þetta
eigi ekki við um alla en krabbinn er viðkvæmur, auðsærð-
ur og lengi að jafna sig verði hann fyrir vonbrigðum eða
finnist honum sér misboðið. Krabbinn er vinmargur en
tengslum hans við vinina er oftar en ekki þannig háttað
að það eru þeir sem sækja til hans uppörvun og styrk þeg-
ar á þarf að halda en krabbinn er dulur og ósýnt um að
láta tilfinningar sínar í ljósi. Krabbanum hættir sömuleið-
is til vanmetakenndar og skiptir engu hversu mikið hann
hefur til brunns að bera, það er að hans mati yfirleitt aldr-
ei nægilegt. Af þessu leiðir að miklu skiptir að krabbinn
njóti skilnings makans og að hann átti sig á því að þegar
krabbinn dregur sig í hlé er ekki ævinlega allt sem sýnist.
Makinn þyrfti líka helst að geta orðið krabbanum að liði
við að hemja áhyggjur og kvíða sem sífellt sækir að krabb-
anum og hann þarf að hafa lag á að leiða hjá sér nöldrið
og smámunasemina sem einatt gengur úr hófi. Krabbar eru
varir um sig varðandi tilfinningaleg samskipti en tryggir
þar sem þeir taka því og kosta yfirleitt kapps um að rækta
sambandið við makann. Þeir eru afar umhyggjusamir for-
eldrar en mega gæta þess að foreldraástin gangi ekki svo
langt að makinn falli í skuggann fyrir börnunum.
56 VIKAN 29. TBL