Vikan - 18.09.1986, Síða 4
HÓTEL Á ÍSLANDI
Akureyri er höfuðstaður Norðurlands og mikilvægi bæjarins
ótvírætt. Þar er miðstöð viðskipta, samgangna og þjón-
ustu. Akureyri er stærsti iðnaðarbær landsins, þekktur sem
skólabær og íþróttabær og þar stendur menningarlíf með
miklum blóma. Þangað er straumur ferðamanna stöðugur
allan ársins hring og ferðaþjónusta mjög íjölbreytt.
Eitt elsta hótel bæjarins, Hótel KEA, er rekið af Kaup-
félagi Eyfirðinga. Hótelið stendur við Hafnarstræti sem er
aðalverslunargata bæjarins. Þaðan er stutt á alla helstu veit-
inga- og skemmtistaði, sundlaug bæjarins er í næsta nágrenni og
leikhús Akureyrar er skammt frá.
Rekstur hótelsins hófst 1944 en nýverið voru gerðar á því mikl-
ar endurbætur. Koma varð til móts við breyttar kröfur og aukna
aðsókn. Hótelið var hækkað; er nú fimm hæðir en var fjórar áð-
ur. Herbergjum var fjölgað úr 28 í 51. Salir voru færðir. Gamlir
innviðir viku fyrir glæsilegum innréttingum og nýtískulegum
húsgögnum. Á jarðhæð var opnuð kafíiterían Súlnaberg.
Úr tveggja manna herbergi.
Hótel KEA viö Hafnarstræti.
43 af herbergjum hótelsins eru tveggja manna og 8 eru eins
manns. Þá er á hótelinu stór svíta. Herþergjum fylgja sturta, sími,
útvarp og sjónvarp. Á hótelinu er myndbandskerfi og daglega eru
sýndar þrjár kvikmyndir. Þá geta gestir leigt myndbandstæki og
myndir. Flestum herbergjum fylgja svalir. Húsgögn eru úr massíf-
um palesander.
Svítan er á fimmtu hæð hótelsins. Þar er ekkert til sparað. Auk
herbergis, sem er útbúið öllum áðurnefndum þægindum, er í svít-
unni stór stofa og er hún búin fyrsta flokks húsgögnum. Þaðan
er útgengt á svalir, hinar stærstu á hótelinu. Frá svölunum er
gott útsýni yfir Oddeyrina, elsta hluta bæjarins, og Pollinn.
Salir Hótel KEA eru samtals fimm og rúma 330 manns í sæti.
Hinn eiginlegi matsalur rúmar 60 til 70 manns. Við hlið hans er
minni salur þar sem er borinn fram morgunverður. Færanleg
skilrúm eru milli allra salanna. Þessi salarkynni eru óvenju glæsi-
leg og eru einkum nýtt undir ýmiss konar fundarhöld; fámennar
ráðstefnur og einkasamkvæmi.
Hádegisverður er framreiddur á Hótel KEA frá klukkan 12.00
til 14.00 og kvöldmatur frá 18.00. Matseðill hótelsins er mjög fjöl-
breyttur. Nautgriparækt er óvíða meiri en í Eyjafirði og þykir
eyfírskt nautakjöt herramannsmatur. Kokkar hótelsins taka mið
af þessu og framreiða kjötið af hugkvæmni. En ýmislegt fleira er
í boði. Á matseðlinum má finna kynstrin öll af fisk- og kjötrétt-
um. Hráefni er allt fyrsta flokks og það er meðhöndlað af snilld.
Sérstaka athygli vekja frumlegir forréttir úr djúpum hafsins og
ýmsir girnilegir eftirréttir. Það er freistandi og þess virði að hefja
máltíð á innbökuðum kræklingi, fá sér steiktan silung á spínati
með sítrónurjómasósu í aðalrétt og enda máltíðina á appelsínum
í karmellu með pistaníum og perufrauðís! Og ekki er vínseðill
hótelsins síðri. Boðið er upp á 9 tegundir rauðvína, 10 tegundir
hvítvína, freyði- og kampavín ásamt fordrykkjum og kaffidrykkj-
um.
Barinn á Hótel KEA er opinn virka daga frá 18.00 til 23.30. Á
laugardagskvöldum er hann opinn til hálfþrjú. Þá eru skilrúm
milli sala flutt og þar er dansað til klukkan þrjú við undirleik
hljómsveitar.
Næturgisting á hótelinu kostar 2.250 krónur á mann í eins
manns herbergi en 3.100 krónur kostar að gista á tveggja manna
herbergi. Gisting í svítunni kostar 5.125 krónur á manninn.
Texti Sigrún Ása Markúsdóttir
Myndir: Ragnar Th.