Vikan

Tölublað

Vikan - 18.09.1986, Blaðsíða 47

Vikan - 18.09.1986, Blaðsíða 47
London - París - Mílanó? a ndrea Brabin vit örlaganna... Lesendur Vikunnar muna sjálfsagt eftir stúlkunum tveimur sem tóku þátt í Fordkeppninni, Andliti níunda áratugarins; Valgerði Backman, sem varð sigurvegari, og Andreu Brab- in, sem fékk samning hjá Ford Models. Valgerður prýddi forsíðu 34. tölublaðs en á forsíðu næstu Viku verður Andrea. Báðar hafa þær nýlega verið í New York hjá Eileen Ford, í þeim tilgangi að koma sér á framfæri í fyrirsætuheiminum. Valgerður ætlar þó að vera hér heima í vetur og ljúka námi en Andrea er á leið á vit örlaganna eitthvað út í heim. En hvað segir hún um fyrstu reynslu sína af harðri baráttu innan þessarar starfsstéttar? „Ég bjó heima hjá Eileen Ford og dagurinn byrjaði á því að klukkan níu fórum við á umboðsskrifstofuna og þar hringdi hún í ýmsa ljósmyndara til að athuga hvort þeir gætu hitt mig þann daginn. Síðan fór ég til þeirra á tilsettum tíma til að leyfa þeim að sjá mig. Þetta var bara svona hæ og bless! En ef þeir vildu gera prufumyndatökur af manni hringdu þeir á skrifstofuna. í slíkum myndatökum var ég svo á hverjum degi. Ég var reyndar svo heppin á þessum stutta tíma að fá vinnu í einn dag, en það var forsíðumynd fyrir suður-amerískt blað. Það var ferlega gaman. Svo daginn áður en ég fór heim hitti ég konu frá umboðsskrifstofu í London og hún vildi fá mig þangað. Ég er mjög spennt fyrir því, pabbi minn býr nefnilega í London og þar sem ég er breskur ríkisborgari ætti að vera auðveldara fyrir mig að fá atvinnuleyfi þar. Annars kom upp sú hugmynd að senda mig til Ástralíu en sem betur fer var hætt við það, þótti of langt svona í fyrstu lotu. Eileen ákveður endanlega, með tilliti til myndanna af mér og starfsmöguleika, hvert ég fer en það verður annaðhvort London, París eða Mílanó. Svarið fæ ég að vita eftir örfáa daga og fer svo út nokkrum dögum síðar.“ - Hvað kom þér mest á óvart þama úti? Og hvað með áhug- ann, er hann enn jafnmikill eftir þann nasaþef sem þú fékkst af starfinu? „Það kom mér á óvart hvað ljósmyndararnir voru almennileg- ir, það var búið að segja mér að þeir væru oft svo ofsalega leiðinlegir í viðmóti. En það sem kom mér þó mest á óvart var hvað stelpurnar - fyrirsæturnar - lifa litlu meinlætalífi, þær gera engar líkamsæfingar og borða allt sem þær langar í. Það var kökubúð á horninu rétt hjá þar sem við bjuggum og þangað fór- um við og hámuðum í okkur dísætar kökurnar án þess að spá í kílóin. Strákarnir, sem afgreiddu í búðinni, voru farnir að þekkja okkur, vissu hvað við vorum og þeir voru alveg steinhissa á ósköp- unum. En þetta voru reyndar allt mjög ungar stelpur, svona lifnaður þýðir víst ekki lengi. Áhuginn hefur frekar aukist en hitt eftir að hafa aðeins prófað þetta. Ég er tilbúin að hella mér út í baráttuna og sjá hvemig mér gengur. Ef vel gengur í Evrópu fæ ég líklega vinnu í Ameríku á næsta ári. En ég er mjög spennt og vona bara að allt fari vel.“ Vikan tekur undir það. Það verður spennandi að fylgjast með ferli Andreu og hvort sem hún flýgur til London, Parísar eða Mílanó... á vit örlaganna, þá óskum við henni góðs gengis. Texti: Guðrún Aifreðsdóttir Myndir: Arna Kristjánsdóttir 38. TBL VIKAN 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.