Vikan

Tölublað

Vikan - 18.09.1986, Blaðsíða 36

Vikan - 18.09.1986, Blaðsíða 36
mann sem er nefndur Göngu- Geiri. Um svipað leyti voru heit- ustu málin í þjóðfélaginu okurmálið, Hafskipsmálið og fleiri. Geiri hefur h'tið unnið um dagana en ég hafði spurnir af því að einhvern tíma hefði hann ver- ið vinnumaður í sveit og spurði hvernig honum hefði líkað sú vinna. Hann svaraði því ekki heldur sagði: Það er alltaf verið að segja við mig að ég eigi að vera eins og maður. En mér finnst öðrum ekki ganga of vel með það, eins og háu herrunum í þjóðfélaginu. Svona einföld voru rökin hans Geira. A erfiðasta tíma ævi minnar í óreglunni gekk mér illa að haga mér eins og maður og það voru margir sem ýjuðu að því að illa gengi þetta hjá mér Mínar hugmyndir um hvernig er að vera MAÐUR eru meðal annars þær að menn standi við það sem þeir segja. Þessi níu eða tíu ár, sem ég hef verið ódrukk- inn úti í samfélaginu, verð ég bara alls ekki var að menn standi við það sem þeir segja og hagi sér eftir mínum skilningi eins og menn. Ég er búinn að vera á sama vinnustað í tæpan áratug, í Karnabæ hjá bróður mínum, Gulla. Framkoma Gulla bróður við mig þegar ég kom heim af Freeport verður seint eða aldrei fullþökkuð, en þetta er útúrdúr. Ég var að tala um pliktina. Tvisvar sinnum hef ég ekki getað opnað þá ágætu verslun sem ég vinni í og bæði skiptin hef ég verið á slysadeildinni, í annað skiptið vegna þess að ég stakk mér í sundlaugina og hún var tóm, ég var ekki drukkinn en það vantaði vatn í laugina. Já, mér finnst að það vanti í upp- eldið að fólki sé kennt að standa Biskupssonum þótti sniöugast aö breyta Steinsson í Bergmann. f////// |L 1/7/]]] BWStv ''pz: X/ið eigum óskaplega góöa unglinga og börn. En við eyðileggjum þau. X^iðtökum ábyrgðina frá þeim. við orð sín og standa sína plikt. Þá komum við að því hverjir eigi að ala upp. Líttu á síðustu dæmin í þjóð- félaginu. Við fengum kveðju frá Húsnæðisstofnun ríkisins um að sú ágæta stofnun hefði ofreiknað vexti hjá fólki. Síðan fengum við smákveðju frá bönkunum um að þeir hefðu gert eitt og hið sama. Síðan fer guðfaðir okkar allra, Þorsteinn Pálsson, og ofreiknar á okkur skattana og engum dett- ur í hug að biðjast afsökunar. Ekki einum einasta manni. Þó var einum þingmanni eitthvað misboðið og hann sagði í dag- blaði að siðferðið í skattaálögun- um væri brotið og að það ætti að endurgreiða fólkinu því álög- urnar væru of miklar. En honum var kippt dagstund í bíltúr norð- ur á Sauðárkrók og þar fauk siðferðið út um gluggann. Mér finnst þetta mótsagna- kennt miðað við það sem mér var kennt í mínum uppvexti. Það var að vera duglegur, standa sína plikt í vinnu, mæta, standa í skil- um og að það ætti að vera að marka það sem maður segði. Hér er allt laust í reipunum. Við reynum að kenna ungu fólki að standa sig en það er komið aftan að því. Ungt fólk, sem nú er til dæmis að stofna heimili, fær bak- reikning frá Húsnæðisstofnun, bönkunum og skattinum. Við stingum alltaf hausnum í sandinn. Börnin gera eins og við. Ef við göngum rétt um götur og keyrum rétt ætti allt að vera í lagi. Ég á góða bók og í henni stendur: Eina sem þú getur gefið næsta manni er gott fordæmi. Alveg sama hvað þú segir og tautar sem uppalandi, það hefur ekkert að segja. Ef næsti maður getur séð eitthvað eftirsóknar- vert í fari þínu er hann vís með að líkja eftir þér. Þetta er eins og tískan. Fólk fer eftir tískunni og þá eftir því sem það sér en ekki eftir því sem það heyrir. Fyrirmyndir, já, ég er búinn að eiga þær margar. Sú fyrsta var Tarzan. Svo þegar ég fór að hafa smákynhvatir, eins og hinir krakkarnir, þá var fyrirmyndin Clark Gable. Fyrirmyndirnar fara eftir þroska. Nei, ég á enga fyrirmynd í dag, ég er kominn af Gablestiginu. Ég er í dag, og hef verið síðastliðin níu ár, að leita að sjálfum mér. Ég hélt satt að segja um tíma að ég væri mesta úrhrak og úrþvætti sem til væri en hef komist að því að það er vel búandi með mér. Jú, auð- vitað á þrautseigja konunnar sinn þátt í því. Við höfum haldið saman í ein tuttugu og sex ár.“ Grétar hefur talað þrumandi röddu og margoft hef ég reynt að komast að, skjóta því að hon- um að hann sé að predika yfir hausamótunum á mér og öllum hinum. Hann vísar slíku á bug enn og aftur. „Ég starfa í SÁÁ en það segir ekki endilega að ég sé að reyna að breyta einstaklingum eða þjóðfélaginu, ekki nema það sé á þann hátt að þjóðfélagið komi auga á eitthvað í mínu fari sem það telji eftirsóknarvert eða til eftirbreytni, sem ég tel afar ósennilegt. Ég þyki grimmur og segi það sem mér finnst um menn og mál- efni. Ég byrgi aldrei neitt inni í mér, sem er óskaplega þægilegt. Ef mér líkar ekki eitthvað segi ég það. Ég hef ekki alltaf gert þetta. Hér áður byrgði ég allt inni í mér árum saman og var kominn með svo signar augabrýr og gró- inn fýlusvip að ég er ekki búinn að ná honum af mér ennþá. Ég þykist skilja hvert þú ert að fara, það er fyrirbyggjandi starfið sem oft er talað um. Eina fyrirbyggjandi starfið, sem ég sé að geti verið jákvætt, er starf íþróttahreyfingarinnar. Heimur- inn er allur að snúast í átt til heilbrigðis, fólk er einfaldlega orðið leitt á óreglu og eiturlyíj- um víðast hvar í heiminum. Hve lengi þetta verður tísku- fyrirbrigði og hvað þetta fer vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.