Vikan


Vikan - 18.09.1986, Page 12

Vikan - 18.09.1986, Page 12
Texti: Guðrún Alfreðsdóttir Mynd: Helgi Friðjónsson ÞRJÁTÍU ARA UTIVIST - HUGURINN ÞÓ ALLTAF HÉR að er hálferfitt að trúa því að það séu liðin þrjátíu ár síðan við fluttum út til Bandaríkjanna, tíminn hefur liðið svo hratt en jafnframt svo margt gerst að maður gerir sér ekki almennilega grein íyrir þessu.“ Það eru hjónin Þórhildur Guðjónsdóttir og Erlingur Ellertsson sem hugleiða eitthvað á þessa leið en þau eru búsett í Woodbridge í Virginíu, rétt rúmlega 30 kílómetra suður af Washington, og eru nú heima á íslandi í sumarfríi. Þórhildur: „Ég flutti reyndar til Bandarikj- anna, í Virginíufylki, með foreldrum mínum og systkinum ánð 1951, en þá hafði ég nýlega kynnst Erlingi. Arið eftir kom hann í heimsókn og var svo hrifinn af landinu að hann langaði að setjast að.“ Erlingur: „Já, ég var þama í sex vikur og leið mjög vel, fannst allt ganga miklu auðveld- ar fyrir sig þama úti en hér heima á þessum tíma. Hér vom höft og margs konar erfiðleikar en úti var allt hægt að fá og auðveldara fyrir ungt fólk að byrja lífið - alla vega meira freist- andi. Ég kynntist þama manni sem bauðst til að útvega mér vinnu hjá Rafveitunni í Wash- ington ef ég kæmi til að setjast að. Við Þórhildur giftum okkur í millitíðinni og bjugg- um í Keflavík þar til 1956 en þá létum við til skarar skríða og fluttum út. Loforðið stóð, ég fékk vinnuna og þar starfaði ég svo í fimmtán ár.“ „En auðvitað varð þetta ekki eintómur dans á rósum,“ segir Þórhildur, „það vom líka erfið- ir tímar. Pabbi dó aðeins mánuði eftir að við fluttum út og þá breyttust ýmsir hlutir tölu- vert. Svo eignuðumst við fimm böm á átta árum og fljótlega varð Erlingur að fá sér auka- starf. Eg var því ansi mikið ein með bömin og það var ekkert hlaupið að því að koma þeim fyrir part úr degi því róluvellir og öll slík þjónusta var svo dýr. Það var heldur ekki mikið um að við hjónin kæmumst út á kvöld- in, engin skyldmenni í næsta húsi og erfitt og dýrt að fá bamapíur. Það var helst að við fær- um öll saman í útibíó. Sex ára byrjuðu krakkamir svo í skóla og vom þar frá átta til þrjú á daginn en það var stutt að fara, bara rétt yfir túnið.“ Vomð þið aldrei komin að því að gefast upp á „ameríska draumnum" og flytja heim aftur? „Nei, það hvarflaði aldrei að okkur,“ segja þau bæði ákveðið. „Við vissum af erfiðleikun- um heima líka og þrátt fyrir erfið tímabil úti leið okkur vel. Við höfðum svo sem aldrei haft neinar draumsýnir um gull og græna skóga.“ Jafnhliða starfinu hjá Rafveitunni fór Erl- ingur að taka að sér málningarvinnu aukalega, sem smám saman þróaðist upp í að verða hans aðalstarf. Og nú rekur hann fyrirtækið Erling- ur Éllertsson & synir, sem sér um málun og smábreytingar á húsum og innréttingum. „Eins og er vinna tveir synir mínir hjá mér, sá elsti, Guðjón, sem er smiður og Jóhann, bifvéla- virki, ásamt sex öðrum. Við höfum líka dálítið fengist við að ganga frá búslóðum til flutn- ings. Ég byrjaði á að aðstoða íslenska lækna sem voru að flytja heim en það leiddi til þess að íslenska sendiráðið fékk mig til sömu hluta. Svo nú sé ég um pökkun þegar með þarf og ýmiss konar viðhald fyrir sendiherrauústaðina í Washington og New York. Sem sannur Is- lendingur auglýsi ég svo auðvitað fyrir Flug- leiðir - hef skilti á sendiferðabílnum sem er mest á fartinni, þar sem ég auglýsi ódýrar ferð- ir milli Baltimore og Lúxemborgar. Einu sinni stoppaði mig íslenskur piltur er ég var á bíln- um, fannst honum þá áreiðanlega heimilislegt að sjá þetta kunnuglega skilti því hann var á leið frá New York til Arlington en var ekki alveg klár á leiðinni." - Hvemig hafa tengslin við ísland verið hjá ykkur á þessum þijátíu árum? Þórhildur: „Við komum oft heim og svo sjáum við ýmis blöð og fylgjumst þannig með öllu því helsta. Einnig fáum við miklar heim- sóknir að heiman, bæði frá fjölskyldu og vinum sem ókunnugum og það er alltaf gaman að hitta landa og geta aðstoðað þá ef með þarf.“ „Það má stundum kalla heimilið þeirra Hót- el fsland því það er þeirra aðalhobbí að taka á móti íslendingum,“ segir Gunnar, bróðir Þórhildar, hlæjandi um leið og hann kemur inn og heilsar en hann er líka í sumarffíi á íslandi. Erlingur: „Ég kem yfirleitt hingað heim tvisv- ar á ári því ég á hér aldraða foreldra. Þórhildur kemur nú í seinni tíð alltaf einu sinni á ári en meðan bömin voru lítil kom hún ekki heim í tíu ár, þá var ekki svo auðvelt að flakka á milli landa með öll bömin.“ Þórhildur: „En þegar á leið fóm krakkamir oft til íslands á sumrin til að halda við íslensk- unni, sum fóm jafnvel í sveit. Dóttir okkar, Hulda, var síðan í Húsmæðraskólanum á Varma- landi einn vetur, Guðjón lærði húsasmíði hér í tvö og hálft ár og annar sonur okkar, Erlingur, giftist íslenskri konu og býr hér. Yngsti sonurinn, Guðleifur, starfar hins vegar sem rafvirki úti og Guðjón og Jóhann vinna hjá pabba sínum. Þau em öll gift og farin að heiman og bamabömin orðin fimm.“ - Hvað með samskipti íslendinga í Virginíu- fylki og nágrenni? Erlingur: „Þau em mjög góð, við höfum öflugt Islendingafélag í Washington og í því em um 300 meðlimir að meðaltali. Við höldum alltaf þorrablót í mars og síðastliðin sautján ár höfum við fengið mat og skemmtikrafta að heiman. Konumar baka þó laufabrauðið, flat- kökur og kleinur. 17. júní er farið í skemmtiferð og íslenskir leikir hafðir í hávegum, svo sem að hlaupa í skarðið, pokahlaup og reiptog. Basar er svo haldinn í nóvember, þar em seld- ar ullarvörur og margir hlutir sem útbúnir em af konum á staðnum. Einnig er böðið upp á kleinur og rjómapönnukökur sem alltaf em vinsælar og síðast vorum við með íslenskar pylsur sem gerðu mikla lukku. Basarinn er alltaf mjög vel sóttur og höfum við getað styrkt ýmsa aðila. Nú er í bígerð að styrkja stofnanir hér á íslandi. Svo er auðvitað haldin jólatrés- skemmtun fyrir bömin og þá er ekta íslensk jólastemmning; gengið í kringum jólatréð, dmkkið súkkulaði og grýla kemur í heim- sókn.“ Þórhildur: „Ég er í saumaklúbbi sem varð þrjátíu ára í september í fyrra. Við hittumst einu sinni í mánuði, tólf konur, frá klukkan tíu á morgnana til svona tvö á daginn. Það þýðir ekki að vera að neinu næturrölti þegar þarf að fara langar vegalengdir. Við borðum saman íslenskan hádegisverð og svo er spjallað og saumað og það er sko mikið saumað í þess- um klúbbi! íslendingafélagið er svo alltaf með hádegisverð þrisvar á ári fyrir konurnar, til að kynnast. Næst verður hádegisverðurinn í Cambridge í Maryland en þar á að skoða fisk- verksmiðjur Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna.“ Væntanlega finnst þeim Þórhildi og Erlingi ýmislegt hafa breyst hér á þessum þrjátíu árum sem liðin em - hvað helst? „Breytingarnar fundust mér auðvitað mestar þegar ég kom aftur heim 1968 eftir tíu ár,“ segir Þórhildur. „Mest kom mér þá á óvart hvað mikið var farið að fást í verslunum hér og hvað mikið var búið að byggja. Allir áttu bíla en áður var það lúxus. Eins fannst mér áberandi meiri snyrtimennska við hús en áður hafði verið og meira lagt upp úr að gera þau falleg að utan. Það vom almennt miklar breyt- ingar til batnaðar á þessum tíma.“ Erlingur tekur undir þetta en fyrir hann vom breytingamar þó ekki eins áberandi því hann kom oftar. „Reykjavík er orðin eins og hver önnur stórborg og umferðin samkvæmt því.“ „Já, en undanfarin ár hefur hún batnað mjög mikið, það er miklu meiri tillitssemi núna í umferðinni og ekki eins mikill æsingur,“ bætir Þórhildur við. Þau hjón em greinilega mjög stolt af því að vera íslendingar og njóta dvalarinnar hér. Erlingur fékk laxveiðibakteriuna fyrir nokkr- um árum og skellir sér í veiði þegar hann mögulega getur. Þórhildur hefur tekið það rólega, ætlar að stoppa dálítið lengur en hann en skrapp þó til Stykkishólms í nokkra daga. En hvemig verður framtíðin - em þau orðin endanlega rótgróin í Ameríkunni eða er hugs- anlegt að þau flytji einhvem tíma heim til íslands aftur? „Það veit maður aldrei," segja þau bæði eft- ir smáhik. „Hugurinn er alltaf hér þó gott sé að búa úti. En við höfum ekki sleppt íslenska ríkisborgararéttinum og við eigum hér fjöl- skyldu og mikið af góðum vinum, svo það er aldrei að vita hvað gerist er aldurinn færist yfir...“ 12 VI KAN 38. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.