Vikan

Útgáva

Vikan - 18.09.1986, Síða 24

Vikan - 18.09.1986, Síða 24
\ Systir Stella hetur staðfest nunnuheitið. Blómakransinn ber hún næstu þrjá daga. Myndir: Arna Kristjánsdóttir mun upplokið verða Söngurinn ómar. Geislar kvöldsólarinn- ar glampa á gluggum klaustursins og á gráa bygginguna slær birtu. Messan er hafin. Presturinn tónar: pax vobis- cum, friður sé með yður. í kapellunni ríkir friður og þar er ró. í fjarska má greina umferðargný. Flestir eru á heimleið. Það er þriðjudagskvöld og hvers- dagurinn allsráðandi. En í klaustrinu halda menn hátíð. í dag staðfestir systir Stella lokaheitið. Hún afsalar sér öllum veraldleg- um eignum og lofar ævilangri tryggð og þjónustu við guð. Fjögurra ára reynslutíma hennar í Karmelítareglunni er lokið. Stella, sem bar hvíta slæðu á höfði og kallaðist novice, lærlingur, er héðan í frá professor, nunna, og sveipar presturinn höfuð hennar svörtu slöri því til staðfestingar. Fjöldi manns hefur safnast saman í kapell- unni til þess að fagna þessum tímamótum. Foreldrar Stellu komu sérstaklega frá Pól- landi til þess að vera viðstaddir vígslu dóttur sinnar. Ur andlitum þeirra skín gleði og stolt fylgjast þau með er Stella vinnur heitið. Frammi bíða Stellu ýmsar gjafír. Þær láta lítið yfír sér, eru fyrst og fremst tákn virðing- ar og vináttu. Að lokinni athöfninni streyma messugest- ir upp í gestaherbergi systranna. Þar gefst þeim kostur á að óska hinni nývígðu nunnu til hamingju. En ekki fá gestir að taka í hönd hennar, faðma hana eða snerta. Nei,

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.