Vikan - 18.09.1986, Side 37
með heiminn veit ég ekki frekar
en aðrir en ég vona að heilbrigð-
ishugsjónin verði sem lengst í
tísku. Manstu hvað ég sagði áð-
an, það reka allir puttana í
nýmálað. Við höfum heilu fjöl-
skyldurnar þar sem fyrsti leggur-
inn hefur verið óreglusamur og
næsti ætlar að passa sig en öll
línan fer í sama farið. Eg hef
mínar skoðanir á fyrirbyggjandi
aðgerðum en ég tel margar sem
notaðar hafa verið ærið mis-
heppnaðar. Eina aðgerðin, sem
er sannfærandi, er að loka rík-
inu, en ætli ríkið vanti ekki
fjármagnið.
Saga SÁÁ er einföld í mínum
augum. Þetta ævintýri, sem
þekkt er orðið víða um heim, er
eitt af því stórkostlegasta sem ég
hef tekið þátt í.
Að Hilmari Helgasyni og
frumherjunum í Freeport-
klúbbnum frátöldum, en þeir
stofnuðu samtökin, er tilvera
samtakanna í dag einkum þrem-
ur mönnum að þakka. Ég er ekki
með þessum orðum mínum að
gera lítið úr verkum annarra.
En af þremenningunum nefni ég
fyrstan Binna í Blómum og
ávöxtum. Sú elja og sú þraut-
seigja og sú fórn, sem sá drengur
er búinn að færa af hendi, er með
ólíkindum. Síðan er það Björg-
ólfur Guðmundsson, fyrrverandi
forstjóri Hafskips. Það verður
ómælt hvað hann lyfti SÁÁ upp
á sínum tíma. Sá þriðji er sá sem
hefur haldið hvað mest utan um
allt og sjúkrastöðin að Vogi væri
ekki til ef hann hefði ekki haldið
utan um hlutina. Þessi maður er
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi. Þessir menn hafa
verið þungamiðjan í samtökun-
um. Það má telja fleiri, til dæmis
Othar Örn Petersen, sem var for-
maður byggingarnefndar Vogs,
og aðra.
Ég er að fara út núna til Dan-
merkur og verð þar viðstaddur
opnun nýrrar sjúkrastöðvar að
okkar fyrirmynd, sem er einn
anginn af ævintýrinu"
Grétar hefur verið formaður
fjáröflunarnefndar SÁÁ og átt
drjúgan þátt í því líka að ævin-
týrið gerðist. Lesendum ætti að
vera orðið ljóst að maðurinn er
óvirkur alkóhólisti, hefur varið
tæpum áratug í uppbyggingar-
starf í Samtökum áhugamanna
um áfengisvarnir, SÁÁ. Stór
hluti tilveru hans snýst um sam-
tökin. Grétar er verslurprstjóri
Hjónin Guölaug og Grétar Bergmann.
í Bónaparte, einni verslun
Karnabæjar, sem Guðlaugur
Bergmann, bróðir hans, á. Ævi-
ferill Grétars frá því „kynhvötin
tók völdin“ og þar til hann fór í
meðferð á Freeport í New Jersey
fyrir níu árum hefur verið róstu-
samur. Margar myndir af Grétari
Bergmann hafa samborgarar
hans séð í gegnum tíðina. Hann
hefur stofnað nokkur fyrirtæki,
fengið margar snjallar hug-
myndir og hrint þeim í fram-
Hér áður byrgði ég
allt inni í mér árum
saman og var kominn
með svo signar auga-
brýr oggróinn fýlusvip
að ég er ekki búinn
að ná honum af mér
ennþá.
kvæmd. Landsmenn þekkja
gæruklæddar gestabækur sem
hafa verið í mörg ár á markaðn-
um. Hugvitsmaðurinn á bak við
þær er Grétar. Hann dvaldi í
nokkur ár í Svíþjóð ásamt fjöl-
skyldu sinni en segir að það hafi
verið leiðinlegasti tími ævinnar.
I Stokkhólmi var hann í textíl-
námi og formaður íslendingafé-
lagsins.
Um árabil dvaldi hann á Kan-
aríeyjum og fyrir vestan haf, í
New York. Hann lagði margt
fyrir sig á þeim tíma sem endra-
nær. Og flest fór forgörðum
vegna óreglu.
„Fyrirtækin gengu ekki frekar
hjá mér en öðrum þar sem óregl-
an ræður. Það eru margir sem
ekki hafa áttað sig á þessu enn
enda er Lögbirtingur orðinn dag-
blað.“
Við reynum að snúa talinu að
ættum og uppruna.
„Pabbi og ég vorum vanir að
segja að við værum komnir af
Skitu-Lása þegar tal manna barst
að ættfræði. Það var þegar menn
ætluðu að lifa af forfeðrum sínum
en ekki sjálfum sér. Svo ég svari
þér þá er ég í móðurætt kominn
af Eyjólfi landshöfðingja í
Hvammi í Landsveit, fæddur í
Hafnarfirði hjá Einari úra árið
1934. Bergmann nafnið er mér
sagt að komi frá Steini Hólabisk-
upi. Hann átti syni sem fóru til
náms til Þýskalands. Biskups-
sonum þótti sniðugast að breyta
Steinsson í Bergmann. Það sem
ég veit næst um föðurættina er
að hún kemur við sögu á Suður-
nesjum. Ég er bæði rakari og
bakari, pabbi var bakari. Hann
var stórkostlegasti félagi sem ég
hef átt. Ég veit ekki hvort það
fer vel saman að vera bakari og
rakari en það rímar. Ég vann á
Búrfelli í nokkur ár sem bakari
en setti upp auglýsingu þar sem
ég auglýsti klippingar og rakstur
og undirritaði hana auðvitað
rakarinn. Gárungarnir á staðn-
um bættu um betur eða einu béi
og útkoman var brakarinn.“
Það hefur víst oft brakað und-
an sporum Grétars Bergmann.
Stóru brestirnir að baki að hans
sögn: „Það sem skiptir mig mestu
máli í dag er að ég á góða fjöl-
skyldu, bæði bróður og konu sem
hafa staðið við hlið mér. Ég tel
mig lánsaman líka vegna þess að
ég á mikið af góðum kunningjum
og vinum. Og svo skiptir það mig
miklu að reyna að hækka í áliti
hjá sjálfum mér.“
38. TBL VIKAN 37